Mosfellsblaðið - 01.05.1999, Page 3
Be^im árangri náðu Guðjón Valgeirsson, Jenný Magnúsdóttir og Ómar Garðarsson.
I toppfonni
Síðla vetrar stóð líkamsræktarstöðin
f Toppformi fyrir 9 vikna áskorun sem
lauk laugardaginn 1. maí. Þátttakan í
áskoruninni var mjög góð enda til mik-
ils að vinna því vegleg verðlaun voru í
boði fyrir þá sem náðu besta heildarár-
angri, s.s. utanlandsferð fyrir tvo með
Atlanta, fataúttektir í Hreysti, ljósatím-
ar frá Sólbaðsstofu Mosfellsbæjar,
kjúklingabringur frá Holtakjúkling og
líkamræktarkort.
Til þess að meta árangurinn voru
mælingar á þoli, ummáli, vöðva- og
fituprósentu og þyngd, í upphafi, hálf-
leik og lok áskomnnar.
Um helmingur þátttakenda lauk
áskoruninni eða 37 manns. Sameigin-
legt markmið þessa hóps var að bæta
líkamslegt ástand og heilsu. Sumir
vildu léttast og auka þol en aðrir vildu
byggja upp vöðvamassa o. s. frv. Til
gamans má nefna að saman missti
þessi hópur sem lauk átakinu 345 cm,
232% af fitu og 90 kg.
Sigurvegarar áskorunarinnar voru
þeir Guðjón Valgeirsson og Ómar
Garðarsson en ekki var hægt að gera
upp á milli þeirra svo jafnir voru þeir.
í öðm sæti var Jenný Magnúsdóttir
og í því þriðja Jóhanna Eysteinsdóttir.
Margir aðrir náðu frábæmm árangri
og má segja að allir þeir sem luku
keppni hafi verið sigurvegarar því bætt
heilsa og líkamlegt ástand er svo sann-
arlega átaksins virði.
Me/ra af líkamsræktinni
og hressu fólki
Laugardaginn 15. maí fóm hópar frá
líkamsræktarstöðvunum HREYF-
INGU og í TOPPFORMI í hjólreiða-
ferð til Þingvalla. Um það bil 40
manns hjóluðu báðar leiðir, alls 80 km.
Slökkvilið Reykjavíkur var einn af
stuðningsaðilum ferðarinnar og fylgdu
þeir hópnum alla leið. Boðið var upp á
orkudrykki á leiðinni og á Þingvöllum
var boðið til grillveislu enda ekki van-
þörf á að nærast vel eftir allt erfiðið
sem þá var rétt hálfnað. Ferðin endaði
í sundlauginni að Varmá og var mjög
vel heppnuð enda strax farið að huga
að þeirri næstu!
Dröfn Sigurgeirsdóttir í Hvammi var að hlúa að sumarblómunum sínum í litla
gróðurhúsinu nú á dögunum. Allt lítur mjög vel út með blómaræktina og hún
á til sumarblóm fyrir góða viðskiptavini og kunningja, en það er enginn svikinn
af blómunum hennar Drafnar.
EindEismál
Tekin hefur verið sameiginleg
ákvörðun Foreldrafélaganna í
bama- og gagnfræðaskólanum að
koma á fót hópi sem tekur að sér for-
vamir í eineltismálum. Hópurinn
myndi samanstanda af skólastjórum
beggja skóla, fulltrúum kennara,
fulltrúum foreldra, fulltrúa frá for-
eldraráði ásamt fulltrúa frá Nem-
endavemdarráði. Vönast er til að
hægt verði að koma hópnum saman
áður en skóla líkur í vor og haldi síð-
an starfinu áfram næsta vetur.
f.h. Foreldrafélaga Gagnfrœðaskólans
og Varmárskóla, Elín Reynisdóttir og
OlöfBjörk Bjömsdóttir.
Á refaveiðum
Bragi B. Steingrímsson og Hjalti stundað refaveiðar undanfarin ár,
G. Lúðvíksson úr Mosfellsbæ hafa vegna hins mikla skaða sem refur-
inn veldur lífrík-
inu og hann er
fljótur að íjölga
sér, ef ekki er
spymt á móti.
Þeir liggja
fyrir ref aðal-
lega í Húna-
þingi, í sérstöku
skothúsi eða
ijárhúsi oft tvær
nætur í einu.
Myndin sýnir
refaskyttumar
og veiði vetrar-
ins, tveir refir
og fimm refa-
skott, einn
minkur lá líka.
17. júní
í Mosfellsbæ
Hátíðahöld í tilefni þjóðhátíðar verða með
hefðbundnu sniði. Árdegis verður eins og venjulega
sundmót o§ víðavangshlaup.
Hátíðin hefst síðan með skrúðgöngu frá íþróttahúsinu
að Álafosskvos, þar sem hin eina og sanna
þjóðhátíðarstemming verður.
Skemmtiatriðiýmiss konar verða flutt á palli, sett
verða upp leiktæki og brugðið á leik með ungu fólki á
öllum aldri.
Tökum öll þátt í hátíðahöldunum!
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar
Mosfcllsblaðið e