Bæjarblaðið Jökull - 26.03.2015, Síða 6
„Atkvæðagreiðslu um verk
falls aðgerðir sextán aðildarfélaga
Starfs greina sambands Íslands
lýkur á mánudaginn og gert er
ráð fyrir að niðurstaðan liggi fyrir
á þriðju daginn, rúmri viku áður
en aðgerðirnar eiga að hefjast,“
segir Sigurður A. Guðmundsson
formaður Verkalýðsfélags
Snæfellinga. Atkvæðagreiðslan er
rafræn, þeir sem rétt hafa til að
greiða atkvæði hafa þegar fengið
bréf þar sem gerð er grein fyrir
kosningunum.
„Samtök a tv innul í f s ins
vildu ekkert tala við fulltrúa
Starfs greina sambandsins um
þær kröfur sem lagðar voru
fram, þannig að sambandið
var nauðbeygt til að hefja
undirbúning aðgerða og leita
heimildar hjá sínum félögum til
verkfallsboðunar. Okkar kröfur
eru sanngjarnar, það gengur ekki
að verkfólk sitji enn eina ferðina
eftir í launum eða kjörum, miðað
við aðra hópa í samfélaginu. Ég
hvet þess vegna alla til að taka
þátt í atkvæðagreiðslunni og
sýna þannig samstöðu. Hlutverk
samninganefndarinnar er að ná
fram ásættanlegum samningum
og þess vegna verður hún að hafa
fullan stuðning félagsmanna.
Komi til verkfalla, er ábyrgðin
alfarið Samtaka atvinnulífsins,
það er alveg ljóst,“ segir Sigurður.
Fyrstu verkfalls
aðgerðir 10. apríl
Verði verkfallsboðun samþykkt,
verður allsherjarvinnustöðvun
10. apríl frá hádegi til miðnættis
sama dag á félagssvæðum þeirra
16 aðildarfélaga sem veitt hafa
Starfsgreinasambandi Íslands
umboð.
„15. apríl verður vinnustöðun
hérna á Snæfellsnesi og svo
aftur 27. apríl. Öll félögin
fara svo í verkfall 30. april
frá hádegi til miðnættis. Svo
þyngjast þessar aðgerðir enn
frekar, því alla virka daga frá
12. til og með 22. maí verður
allherjarvinnustöðvun og frá og
með 26. mai hefst svo ótímabundin
allsherjarvinnustöðvun allra
félaganna. Auðvitað vona ég að
ekki þurfi að grípa til þessara
aðgerða. Samtök atvinnulífsins
hafa hins vegar skellt í lás og þess
vegna er nauðsynlegt að grípa til
þessa ráðs.“
Samstaða
beittasta vopnið
„Það er auðvitað glórulaust að
fólk geti ekki lifað sómasamlegu
lífi af dagvinnulaunum, en þurfi
ekki að treysta á botnlausa
yfirvinnu. Samtök atvinnulífsins
bjóða innan við fimm prósenta
hækkun launa, þátt fyrir að
opinberar rannsóknir sýni
að dagvinnulaun verkafólks
séu um 30 prósentum lægri
hérna á Íslandi en á hinum
Norðurlöndunum. Ef verkafólk
ætlar sér að ná hærri launum
en sjö til átta þúsund krónum
á mánuði verður að grípa til
aðgera. Samstaðan er okkar
beittasta vopn,“ segir Sigurður
A. Guðmundsson formaður
Verkalýðsfélags Snæfellinga.
Viðtal: Karl Eskil Pálsson,
sjálstætt starfandi fjölmiðlamaður
karlesp@simnet.is
AÐALSAFNAÐARFUNDUR
ÓLAFSVÍKURKIRKJU
Aðalsafnaðarfundur Ólafsvíkurkirkju verður haldinn
mánudaginn 20. apríl 2015 kl: 18.00.
Dagskrá:
1. Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar
á liðnu starfsári.
2. Afgreiðsla endurskoðaðra reikninga sóknar og
kirkjugarðs fyrir s.l. ár.
3. Kosningar
5. Önnur mál.
Formaður sóknarnefndar
Aðalfundur
Aðalfundur Félags stjórnenda við Breiðaörð
verður haldinn miðvikudaginn 8. apríl
á RúBen, Grundargötu 59, Grundarrði, kl. 20:00
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestir fundarinsKristján Örn Jónsson forseti og
framkvæmdastjóri VSSÍ ytur erindi um störf VSSÍ,
og Skúli Sigurðsson varaforseti VSSÍ fer yr og
kynnir „Frímann“ orlofshúsavenn – og arnám.
Stjórnin
Verkalýðsfélögin undirbúa verkföll