Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Page 3
Evrópuár fatlaðra
og kjarasamningar!
/
rið 2003 er tileinkað ári
fatlaðra í Evrópu, og er það
vel að okkar mál komist á
dagskrá. En því miður hafa íslensk
stjómvöld fylgt þessu máli afar illa
eftir og byrjuðu ekkert að aðhafast
fyrr en félög fatlaðra og öryrkja
bentu stjórnvöldum á þetta málefni,
og nú hefur verið ákveðið að fram-
lengja ár fatlaðra fram í apríl á
næsta ári þ.e. 2004.
Að sjálfsögðu verðum við að gera
margt til þess að minna á okkar mál-
stað og vera sívakandi um það hvað
við viljum gera og hver eru mark-
mið okkar. Það er eðlilegur hlutur.
En það er samt grátlegl hvað stjórn-
völd sýna okkar málstað lítinn
áhuga. Við þurfum sífellt að vera að
funda, með ráðherrum, alþingis-
mönnum og sveitarstjórnarmönn-
um.
Þann 3. desember er alþjóðadagur
fatlaðra og veitum við þá viður-
kenningar fyrir gott aðgengi þar
sem það á við eða veitum hegning-
arverðlaun fyrir slæmt aðgengi. Við
höfum hugsað okkur að vera alveg
sérstaklega vel á varðbergi vegna
Evrópuárs fatlaðra.
Við höfunr hafið þá vinnu og von-
andi getum við verið rausnarlegri
nú í ár vegna þess sem ég fyrr
nefndi árs fatlaðra í Evrópu. Þú, fé-
lagi góður getur þar lagt þitt fram-
lag, með því að vera vakandi og
koma með ábendingar til okkar á
skrifstofuna sem fyrst.
Nú um áramótin renna út kjara-
samningar á almennum vinnumark-
aði, sem ég hef nefnt hér oft áður í
skrifum mínum. Eg vil bara ítreka
það sem fulltrúar verkalýðshreyfing-
arinnar sögðu hér á fundi í fyrra
haust. Þeir sögðu það berunr orðum
að fatlaðir og öryrkjar fengju að
koma að gerð þeirra samninga. Nú
er að sjá hvort þeir standi við
STÓRU orðin. Við hér hjá Sjálfs-
björg, félagi fatlaðra á höfuðborgar-
svæðinu, ætlum að koma okkur í
samband við þessa herra og herma
þetta loforð uppá þá.
Það eru að mínu mati sjálfsögð
mannréttindi að við fáum að koma
að gerð þessarra samninga, því kjör
okkar skipta svo miklu máli. T.d.
Þórir Karl Jónasson,
formaðw S'jálfsbjargar, félags fatlaðs
fólks á höfuðborgarsvœðinu, skrifar.
Mynd/kmh.
verðum við að fá það í gegn að öll
skerðingaratriði verði felld út úr ís-
lenskum lögum. Það eru mannrétt-
indi, eins og segir í dórni Hæstarétt-
ar Islands í öryrkjadómnum sem er
ný fallinn, og vil ég hvetja ykkur til
þess að kynna ykkur dóminn, en því
miður nær hann ekki til ársins í ár,
því hann er bara yfir ákveðið árabil.
Eg vil rninna ykkur á jólabasarinn 6.
og 7. desember hér í salnum okkar.
Að lokum óska ég félagsmönnum,
tjölskyldum þeirra og að sjálfsögðu
öllum gleðilegra jóla og farsældar á
nýju ári.
Það eru að mínu mati sjálfsögð mannréttindi að við
fáum að koma að gerð þessa samninga, því kjör okkar
skipta svo miklu máli. T.d. verðum við að fá það í gegn
að öll skerðingaratriði verði felld út úr íslenskum lögum.
En það er samt grátlegt hvað stjórnvöld sýna okkar
málstað lítinn áhuga. Við þurfum sífellt að vera að
funda, með ráðherrum, alþingismönnum og sveitar-
stjórnarmönnum.
Kær kveðja
GLEÐILEG JÓL.
3