Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Blaðsíða 18

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Blaðsíða 18
Evrópsk samgönguvika - aðgengi fyrir alla - Hvað hafði Rey kj a víkurbor g upp á að bjóða? Dagana 16.-22. september sl. tók Reykjavík- urborg þátt í Evrópskri samgönguviku. Meginþema hennar var „aðgengi fyrir alla“ og var í tengslum við Evrópuár fatlaðra. Einn dagur þessarar viku var tengdur aðgengi fatl- aðra, - að lífsgæðum, menntun og upplýsingum. Tvær stofnanir sem tengdar eru fötluðum tóku þátt í þeim degi en það var 18. september. Þessar stofnan- ir voru Hringsjá - náms- og starfsendurhæfing fatl- aðra og Fjölmennt - fullorðinsfræðsla fatlaðra. Var gestum kynnt sú starfsemi sem þar fer frarn en hún er vissulega mjög merk og margt gott um þeirra störf að segja. Aftur á móti saknaði ég þess að Reykjavíkurborg gengst ekki fyrir því að sýna hvað hún hefur upp á að bjóða hvað varðar aðgengi að menntun og upp- lýsingum. Ekki einn einasti skóli eða stofnun var sérstaklega opinn til að kynna fötluðum þá þjónustu sem í boði er hjá þeim. Vissulega hefur Reykjavík- urborg gert ýmislegt á undanförnum árum til að bæta gangstéttar og göngustíga borgarinnar þannig að umferð hreyfihamlaðra þar um er auðveldari. Evrópsku umferðarvikunni var ætlað að vekja at- hygli á ýmsum hliðum umferðar í borg. Guðríður Olafsdóttir. Ekki einn einasti skóli eða stofnun var sér- staklega opinn til að kynna fötluðum þá þjón- ustu sem í boði er hjá þeim. Þökkum eftirtöldum fyrirtækjum veittan stuðning Hafnarfjörður Elding ferðaþjónusta Fasteignasalan Hraunhamar hf. Feðgar ehf. - Byggingaverktakar Ferskfiskur ehf. Filmur og Framköllun sf. Fínpússning sf. Fjarðarkaup ehf. Fjarðarmót hf. Garðafell ehf. Garðyrkja ehf. Hafnarfjarðarhöfn Heiðar Jónsson, járnsmíði Hópbflar hf. Húni II Húnaströnd ehf. Hvalur hf. Iðnvélar hf. J.V.J. hf. Jeppahlutir 4X4 ehf. Kambur ehf. Kaupþing Búnaðarbanki hf. v/Hafnarfjarðar Krýsuvíkurskóli Magnús Páll sf. Marko-Merki ehf. 18

x

Sjálfsbjargarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.