Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Blaðsíða 5

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Blaðsíða 5
„Ég lærði ýmislegt og varð margs vísari.“ -sagði Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, eftir að hafa eytt degi í hjólastól. Lúðvíkfór víða um í Hafnarfirði til að vekja athygli á aðgengi fyrir fatlaða. Hann segir stöðuna í þessum málum ekki nógu góða í hœjaifélaginu, en hún hafi hins vegar batnað töluvert. Reynsla sem þessi leiðir hugann að hlutum sem mað- ur er kannski ekki að velta fyrir sér dags daglega, að smáu hlutirnir geta skipt miklu. Ég mun hafa þetta meira í huga framvegis. Þetta situr í mér og ég er alveg ákveðinn í því að ég ætla að leggja mitt af mörkum til að bæta aðgengi fyrir fatlaða. Sjálfsbjörg á höfuðborgar- svæðinu fékk Lúðvík Geirs- son, bæjarstjóra Hafnarfjarð- ar, til að verja einurn degi í hjólastól til að vekja athygli á Evrópuári fatl- aðra sem nú er. „Þessi reynsla var mjög einstök fyrir mig. Eg hef sem betur fer ekki þurft að búa við þess- ar aðstæður áður. Eg lærði ýrnis- legt og varð margs vísari,“ sagði bæjarstjórinn eftir þessa reynslu sína. „Mér fannst sjálfsagt að verða við þessari bón og heiður að fá að veita Sjálfsbjörg iið í því að vekja athygli á þeirra stöðu og baráttu- málum í tilefni af Evrópuári fatl- aðra. Það er hið besta mál að halda mönnurn við efnið.“ Þarf að laga aðgengið heima hjá mér Lúðvík segist strax hafa lent í erfið- leikum með að koma sér út af sínu eigin heimili. „Eg sé að ég þarf að laga aðgengið heima hjá mér. Eg reyndi að fara sem víðast um hérna í bænum til þess að vekja athygli á aðgengi fyrir fatlaða, hvort sem það var í stofnunum bæjarins eða öðr- um stöðum.“ En hver er staðan í þessum mál- um í Hafnarfirði? „Hún er auðvitað ekki nógu góð, en hún hefur hins vegar batnað töluvert. Ráðhúsið er nær 60 ára gamalt og því ekki byggt með bestu aðstæðum fyrir fatlaða. Hins vegar hefur verið komið fyrir lyftu í húsinu og aðgengið að hús- inu lagað. Öll afgreiðsla og þjón- usta hefur verið færð niður á neðstu hæðina, þannig að allir eigi þar jafn greiðan aðgang.“ Lúðvík segist hafa séð heintinn með öðrum augum í hjólastólnum. „Þetta var erfitt og tók á. Maður sér hindranirnar og að það þarf ekki stóra þröskulda til að stoppa fólk. Reynsla sem þessi leiðir hugann að hlutum sem maður er kannski ekki að velta fyrir sér dags daglega, að smáu hlutirnir geta skipl miklu. Eg mun hafa þetta meira í huga fram- vegis. Þetta situr í mér og ég er al- veg ákveðinn í því að ég ætla að leggja mitt af mörkum til að bæta aðgengi fyrir fatlaða.“ Texti: Kristrún M. Heiðberg. 5

x

Sjálfsbjargarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.