Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Qupperneq 8

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Qupperneq 8
Ingibiörq Pálmadóttir. fulltrúi siúklinqa í viðtali: „Það gleður mig ef ég get leyst úr einhverjum hnútum.“ Ingibjörg Pálmadóttir, fyiTverandi heil- brigðisráðherra, tók til starfa sem full- trúi sjúklinga á Landspítalanum 1. maí s.l. Hlutverk fulltrúa sjúklinga er að veita sjúklingum og aðstandendum þeirra stuðning, koma málefnum þeirra á fram- færi og beina umkvörtunum þeirra í rétt- an farveg. Blaðamaður Sjálfsbjargar- frétta leitaði til Ingibjargar til að fræðast betur um starfið. „Starf fulltrúa sjúklinga felst í að hlusta á sjúklinga, aðstandendur þeirra og fulltrúa sjúklingafélaga. Oft finnst starfsfólki það einnig eiga erindi við mig. Sjúklingar vilja koma með ábendingar um það sem betur má fara, eru t.d. oft þreyttir á að bíða eftir svörum úr hinum ýmsu rannsóknum. Þá er það framkoma heilbrigðisstarfsmanna sem því miður er ekki alltaf til fyrirmyndar sem fólk vill gera athugasemdir við. Varðandi aðstandendur þá er það í lang flestum tilvikum að þeir hafi samband vegna aldraðra í fjölskyld- unni. Það gerist oft skyndilega að aðstæður þessa fólks breytist þannig að það þarf á meira öryggi að halda. Þá er ekki á vísan að róa með öruggt hjúkrunarpláss. Sama er uppi á ten- ingnum varðandi foreldra geðfatl- aðra barna. Þegar börnin eru komin yfir þann aldur að vera á barna- og unglingageödeild myndast oft ákveðið tómarúm. Þrátt fyrir að ég lumi ekki á neinum töfralausnum né nýjum plássum þá er oft hægt að finna leiðir þó kannski sé ekki um neinar óskaleiðir að ræða. Eg fer með viðkomandi mál til þeirra sem best hafa yfirsýnina á hverjum stað og í sameiningu reynum við alla möguleika. I sumum tilvikum skortir okkur nýjar lausnir og þá reyni ég að hamra því inn á rétta staði.“ Hefur það lengi verið á döfinni að setja þetta starfá laggirnar? „Með lögum um réttindi sjúklinga, sem samþykkt voru á Alþingi 1997, er kveðið á um að sjúklingar geti kvartað til yfirmanna. Eins og starf „Ég kem ekki til með að draga taum eins eða neins nema þá sjúklingsins. Ég erfulltrúi þeirra, “ segir Ingibjörg Pálmadóttir. Myndir/kmh. spítalans er þá þarf eyra sem hefur tíma lil að hlusta. Hér liggja inni þúsund sjúklingar á hverjum degi, hingað koma 1200 manns á göngu- og dagdeild, um 400 í röntgenrann- sókn og um 50-60 manns fara í stærri aðgerðir. Það segir sig sjálft að á svona stórum vinnustað þar sem svo mikil og flókin starfsemi á sér stað er ýmislegt sem fólk vill gera at- hugasemdir við og þess vegna tók stjórnin ákvörðun um að láta móta þetta starf. Ég er ráðin til 1. maí á næsta ári. Síðan er það stjórn spítal- ans sem tekur ákvörðun um fram- haldið. Ég hef þegar gefið stjóminni skýrslu varðandi þá mánuði sem ég 8

x

Sjálfsbjargarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.