Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Qupperneq 13
ára afmæli Sjálfsbjargarheimilisins
*
fagnað við hátíðlega athöfn
Sjálfsbjargarheimilið fagnaði
30 ára afmæli sínu í júlí sl.
Fyrsta skóflustungann að
heimilinu var tekinn 28. október
1966 og fyrsti áfangi þess tekinn í
notkun árið 1973. Húsið, sem lengi
vel nefndist Vinnu- og dvalarheimili
Sjálfsbjargar, var fyrsta heimili
sinnar tegundar á íslandi og lang-
þráð. Með opnun þess var lyft
Grettistaki í búsetumálum fatlaðra
hér á landi. A heimilinu var pláss
fyrr 45 manns. Bygging og skipulag
Sjálfsbjargarhússins var á margan
hátt byggt á reynslu nágrannaþjóða.
Þar fengust fyrirmyndir að aðgengi-
legu húsnæði, dvalarheimilum fyrir
fatlaða og vernduðum vinnustöðum.
Margt í boði
Haldið var upp á afmæli Sjálfsbjarg-
arheimilisins með tvennum hætti.
Þann 4. júlí var haldin hátíð í garð-
inum við Sjálfsbjargarhúsið. Mikið
tjölmenni var, enda veður með besta
móti. Flutt voru ávörp og skemmti-
dagskrá og að því loknu var opið
hús. Sérstakur gestur hátíðarinnar
var Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra. Ymislegt
annað var í boði, m.a. sýning á mál-
verkum og skúlptúrum sem íbúar
heimilisins hafa gert. Þá gátu gestir
kynnt sér sögu heimilisins og nýja
gerð búsetu fyrir hreyfihamlaða.
Frumflutt var ljóð eftir Helgi Seljan,
fyrrum formann Öryrkjabandalags
Islands, sem hann samdi í tilefni
dagsins.
Fjölmargir einstaklingar sem að heimilinu koma,fengu þakklœtisvott fyrir störf sín
í þágu Sjálfsbjargarheimilisins.
Mikið fjölmenni var á afmælishátíðinni sem haldin var í
blíðskaparveðri í garðinum við Sjálfsbjargarhúsið. Með
opnun Sjálfsbjargarheimilisins var lyft Grettistaki í
búsetumálum fatlaðra hér á landi.
Þann 7. júlí fóru íbúar og starfs-
menn í skrúðgöngu frá Sjálfsbjarg-
arhúsinu að Nordica Hóteli þar sem
snæddur var hádegisverður. Þar
færði stjórn heimilisins 26 starfs-
mönnum þakklætisvott fyrir störf
sín í þágu heimilisins. Þá voru ýms-
ir aðrir er að heimilinu koma færðar
þakkir. Einnig voru flutt tónlistarat-
riði.
Þess má geta að Sjálfsbjörg á höf-
uðborgarsvæðinu færði forsvars-
mönnum Sjálfsbjargarheimilisins
platta með merki Sjálfsbjargar að
gjöf í tilefni afmælisins.
Þórir Karl Jónasson, formaður Sjálfs-
bjargar á höfuðborgarsvceðinu, fœrði
Sjálfsbjargarheimilinu platta með
merki Sjálfsbjargar að gjöf í tilefni af-
mœlisins. Jón Hlöðver Askelsson,
stjórnarformaður Sjálfsbjargar-
heimilisins, tekur við gripnum.
Öllum gestum var boðið upp a veitingar, kaffi og kökur og djús fyrir yngstu
kynslóðina. Gaman var að sjá gesti á öllum aldri taka þátt í hátíðinni og gleðjast
með íbúum og starfsfólki heimilisins.
Mœtingin á afmœlishátíðina var góð, enda blíðskaparveður. Flutt voru ávörp,
skemmtiatriði o.fl. Að dagskrá lokinni var opið hús.
Arndís Hrund Guðmarsdóttir og
Hulda Magnúsdóttir, sem báðar eru
félagar í Sjálsbjörg, skemmtu sér vel
eins og sjá má.
12
13