Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2017, Blaðsíða 8
Fullorðnir nemendur í Tón
listarskóla Snæfellsbæjar ásamt
Kór Ingjaldshólskirkju héldu
tónleika í safnaðarheimili
Ingjaldshólskirkju fyrr í des
ember.
Jólatónlist var auðvitað fyrir
ferðarmikil enda aðventan hafin.
Jóhann Steinn Gunnars son
spilaði á trommur og bróðir hans
Trausti Leó Gunnarsson ásamt
Aðalheiði Nönnu Þórðar dóttur
spiluðu undir hjá honum.
Steinunn Stefánsdóttir söng tvö
jóla lög. Guðbjörg Helga Hall
dórs dóttir spilaði á píanó, Davíð
Viðars son á gítar og Þor steinn
Jakobs son á har monikku. Inga
Fanney Jónas dóttir söng og
maður hennar Ólafur Vignir
Siguðrs son spilaði á rafgítar.
Sigur rós Magnús dóttir spilaði á
gítar og Rúna Björg Magnús
dóttir á bassa. Kór Ingjalds hóls
kirkju söng þrjú lög og sungu
þau Rúnar Reynis son og Sóley
Jóns dóttir ein söng með kórnum.
Vel var mætt á tónleikana og
myndaðist notaleg aðventu
stemm ning, virtust tón leika gestir
njóta kvöldsins vel og að þeim
loknum var gestum og þeim sem
fram komu boðið upp á kaffi,
konfekt og pipar kökur áður en
haldið var heim.
þa
Jólatónleikar á Ingjaldshóli
Jólakveðja frá Jaðri!
Sendum öllum bæjarbúum okkar bestu jóla- og nýársóskir
með kærri þökk fyrir hlýhug á árinu sem er að líða.
Jólakveðja.
Íbúar, starfsfólk og stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Jaðars.
Sendi öllum ættingjum og vinum
mínar bestu jóla- og nýársóskir
með þökk fyrir það liðna.
Kær kveðja
Bjarni Ólafsson, Geirakoti
Óskum ættingjum og vinum nær og fjær
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum samstarf á liðnum árum.
Kveðja,
Ómar og Kay