Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2017, Side 26
Þann 16. september festi
Björgunarsveitin Klakkur kaup á
nýjum Nissan Patrol jeppa sem
er 44 tommu breyttur af Arctic
trucks, hann leysir af hólmi 35
tommu breyttan Nissan Patrol
ár gerð 2006 sem sveitin hefur átt
í nokkur ár.
Talsverð vinna hefur farið í að
setja fjarskiptabúnað og önnur
tæki og tól í bílinn en hann var
til búinn núna rétt fyrir jól.
Svona bíll er ekki ódýr og vill
stjórn Klakks þakka þeim sem
hafa styrkt sveitina, ein stakl
ingum, fyrirtækjum og ekki síst
Grundar fjarðarbæ.
Já, ég kom að lokuðum dyrum
í blómabúðinni hennar Mundu,
Blóma verk!
Það var leiðinlegt, ég sem
ætlaði að gleðja vin með
blómum, alltaf fengið svo falleg
blóm hjá henni Mundu. En nú
er hún hætt rekstri búðar innar
og það er vissulega eftisjá í
henni.
Ég segi, að svona lítið bæjar
félag eins og okkar megi ekki við
því að missa neinn! En því miður
gerist það að fyrirtæki hætti.
Fyrirtæki sem við höfum kanski
bara litið á sem sjálfsagðan
hlut að þjónusti okkur.
Ég vil þakka Mundu fyrir
þjónustun í gegn um árin og
óska henni velfarnaðar.
Eins langar mig að koma
þeirri skoðun minni á framfæri,
að við hér í Snæfellsbæ erum
mjög heppin með öll þau góðu
fyrir tæki sem þjónusta okkur,
það er þakkarvert.
Meigum við öll eiga gleðileg jól!
Ester Gunnarsdóttir
Björgunarsveitin Klakkur fær nýjan bíl
Ég kom að
lokuðum dyrum
Kæru vandamenn og vinir.
Gleðileg jól, farsælt komandi ár.
Megi Guð og lukka fylgja bátum og byggð
yfir ókomna tíð
Kærar kveðjur,
Vigfús Kr. Vigfússon
Gunnar Jóhannesson ehf, Grundarfirði,
óskar viðskiptavinum sínum árs og friðar
og þakkar viðskiptin á liðnu ári.