Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2017, Síða 30
Snæfellingum sendum við
óskir um gleðileg jól og
farsælt komandi ár.
Tanlæknastofa Ara Bjarnasonar
undirbúa jólin, hún bakar smá
kökur og steikir laufabrauð
uppá halds kökur fjölskyldunnar
eru rúsínukökurnar sem má
alls ekki vanta. Einnig býr hún
til ís og ananasfromages sem
hún gæðir sér á þegar hinir í
fjölskyldunni fá sér ís. Bjögga
lætur þó eiginmanni sínum
eftir að skreyta utanhúss þó
þau séu ekki alltaf sammála um
litaval og stíliseringu eins og
hún segir en hann fær að ráða
utanhúss. Henni finnst nefni
lega leiðinlegast að setja upp
seríur en leyfir þó engum að
koma nálægt neinu innanhúss
og setur þær sjálf upp þar.
En hvar fær hún allt þetta
fallega jólaskraut sem hún
hefur eignast í gegnum árin.
Þegar Bjögga var spurð að því
svaraði hún „maður þarf alltaf
að hugsa til jólanna” og brosir
en dóttir hennar skellir upp úr
og segir að hún finni jólaskraut
alls staðar. Hún hafi meira að
segja fundið jólaskraut á Tene
rife í ágúst eitt árið í fjölskyldu
ferð. Bjöggu hlakkar líka allt
árið að komast í Jóla húsið á
Akureyri og getur hún gleymt
sér þar við að skoða. Þegar hún
er spurð að því hvað sé í
uppáhaldi af skrautinu segist
hún ekki geta gert upp á milli
hlutanna sinna enda hafi hún
safnað því á löngum tíma og
það sé alls staðar frá, henni
þyki þó vænst um gömlu
hlutina frá mömmu sinni og
það sem hún eignaðist fyrst þó
það sé ekki endilega það
fallegasta enda hafi sumt af því
meira að segja dottið út um
glugga í snjóinn nokkrum
sinnum. Skrautið tekur hún svo
ekki niður fyrr en eftir að
jólahátíðinni lýkur og dregur
það stundum aðeins til að njóta
þess lengur.
Segist Bjögga vita fátt betra
en þegar allt er tilbúið, húsið
komið í sitt fínasta púss og
meira að segja búið að skreyta
svefnherbergið og setja jóla
rúm fötin á, en að setjast niður
við jólatréð með machintos,
konfekt og bók að lesa.
þa
Stæðilegur jólasveinn er hluti af
skrautinu hjá Bjöggu.
starfsfólki og viðskiptavinum gleðilegra
jóla og farsæls komandi árs
Megi nýja árið vera ykkur
hamingjuríkt og gjöfult.
Hátíðarkveðjur,
Kristín og Erlingur
Við óskum íbúum Snæfellsness
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þökkum ánægjuleg samskipti á líðandi ári.
God jul og godt nytt år.
Vi takker for samarbeidet i året som gikk.
Merry christmas and a happy new year.
Thank you for enjoyable moments in
the passing year.
Wesołych Świąt i szczęśliwego nowego.
Dziekujemy za owocna wspolprace w 2017 roku i
mamy nadzieje ze przyszly rok bedzie rownie udany
Счастливого Нового Года и светлого Рождества!!
С благодарностью за сотрудничество
и совместную работу в прошлом году,
Jólakveðja – Julehilsen • Christmas
greeting • życzenia świąteczne -
Поздравления с Рождеством!