Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2017, Side 38
LIONSKLÚBBURINN
RÁN
ÓLAFSVÍK
Stofndagur
5. apríl 1994
1987 - 1994
21. janúar 1973
Lionsklúbburinn
Rán, Ólafsvík
Lionsklúbbur
Ólafsvíkur
Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar
var lögð fram til samþykktar á
bæjar stjórnarfundi fimmtu
daginn 7. desember s.l. Fjár hags
áætlunina sjálfa má nálgast á
heimasíðu Snæ fellsbæjar snb.is.
Fjár hags áætlunin var samþykkt
samhljóða og var meðfylgjandi
bókun lögð fram af því tilefni:
“Bæjarstjórn Snæfellsbæjar
hefur unnið að gerð fjár hags
áætlunar fyrir Snæfellsbæ. Þriðja
árið í röð voru gjaldskrár
leikskóla og grunnskóla ekki
hækkaðar. Á nokkrum gjaldskrám
varð smávægileg hækkun.
Út svars prósenta í Snæfellsbæ
verður óbreytt og sama er að
segja um álagningarprósentu
fasteigna gjalda. Bæjarstjórn vill
vekja sérstaka athygli á álags
prósentu gatnagerðargjalda, en
sú prósenta var lækkuð út 6% í
2% fyrir íbúðarhúsnæði, sem er
300% lækkun. Sem dæmi, þá
verða gatnagerðargjöld á 150
fermetra íbúðarhúsnæði u.þ.b.
kr. 638.358. á árinu 2018, en
gjöld fyrir samskonar húsnæði
2017 hefðu verið kr. 1.915.074.
Þetta er gert til að koma til móts
við þá sem hafa áhuga á að
byggja og munu þá gatna
gerðargjöld verða óverulegur
kostnaður við byggingu íbúðar
húss.
Bæjarstjórn leggur á það
áherslu að haldið verið áfram
þeirri góðu þjónustu sem veitt er
í sveitarfélaginu og að henni
hlúð eins og kostur er. Styrkir til
félagasamtaka hækka á árinu
2018 og verða rétt rúmar 38
milljónir. Að venju eru hæstu
styrkirnir til barna og unglinga
starfs íþróttafélaganna.
Gert er ráð fyrir miklum
framkvæmdum á árinu 2018, en
gert er ráð fyrir að fjárfestingar
ársins verði 446,5 milljónir
króna, þar af 244,5 milljónir hjá
Snæfellsbæ og 202 milljónir hjá
hafnarsjóði. Stærstu fjárfestingar
ársins eru framkvæmdir við
nýjan gervigrasvöll í Ólafsvík,
eða um 165 millj., endurnýjun á
sundlauginni á Lýsuhóli, um 35
millj., hafnarframkvæmdir í Rifi
og dýpkun hafnarinnar á Arnar
stapa. Auk þess verður farið í
ýmsar aðrar framkvæmdir hjá
hafnarsjóði og aðrir smærri
framkvæmdir hjá Snæfellsbæ.
Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar er
góð og undanfarin ár hefur tekist
að borga skuldir niður jafnt og
þétt ásamt því að fjárfesta í
innviðum samfélagsins. Ný lán
voru tekin á árinu 2017 vegna
mikilla framkvæmda og gert er
ráð fyrir áframhaldandi lántöku á
árinu 2018 til að fjármagna fyrir
hugaðar framkvæmdir. Gert er
ráð fyrir að langtímalán hækki
því að raunvirði um rúmar 100
milljónir króna.
Þrátt fyrir þessar lántökur og
niðurgreiðslur lána gerum við
samt sem áður ráð fyrir því að
skuldahlutfall Snæfellsbæjar
verði vel undir 90%, en skv.
sveitar stjórnarlögum má skulda
hlut fallið ekki fara yfir 150% og
er þá Snæfellsbær vel innan
marka.
Hafnarsjóður Snæfellsbæjar er
vel rekinn og verða miklar
framkvæmdir á hans vegum árið
2018, eins og áður kemur fram,
eða rúmar 200 m.kr. Hafnar
sjóður er fjárhagslega vel stæður
og skuldar engin langtímalán, og
gerir ekki ráð fyrir lántöku á
árinu 2018.
Rekstur Snæfellsbæjar hefur
verið með ágætum undanfarin ár
og er það að miklu leyti því að
þakka hversu gott samstarf hefur
verið við forstöðumenn og starfs
fólk Snæfellsbæjar. Bæjarstjórn
Snæfellsbæjar treystir á að sam
starfið verði áfram jafngott, því
einungis þannig verður hægt að
ná fram góðum rekstri.
Samstarf í bæjarstjórn Snæ
fells bæjar er gott og vann öll
bæjar stjórn saman að gerð fjár
hags áætlunar á sérstökum vinnu
fundum sem haldnir voru og er
full samstaða um alla liði fjár
hagsáætlunar og er það afar
mikil vægt að samstaða sé góð í
bæjar stjórn.
Björn H Hilmarsson
Kristjana Hermannsdóttir
Júníana Bj. Óttarsdóttir
Rögnvaldur Ólafsson
Kristján Þórðarson
Fríða Sveinsdóttir
Svandís Jóna Sigurðardóttir“
Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar
árið 2018
Næsti Jökull
Jökull kemur ekki út milli jóla og nýárs.
Næsta blað kemur út fimmtudaginn 4. janúar
og þarf að skila efni og auglýsingum
fyrir kl. 16 þriðjudaginn 2. janúar
Snæfellingum óskum við
gleðilegra jóla
og þökkum viðskiptin á árinu.
Óskum Snæfellingum geðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Félag eldri borgara í Snæfellsbæ
óskar Snæfellsbæingum og öðrum velunnurum
gleðilegra jóla, árs og friðar.
Nýir félagar ætíð velkomnir.
Stjórnin.