Bæjarblaðið Jökull - 11.04.2019, Blaðsíða 1
Framkvæmdir við á lóð verð
andi Þjóðgarðsmiðstöðvar á
Hellis sandi hófust með form
leg um hætti á síðasta föstudag.
Um hverfis ráð herra Guð mundur
Ingi Guð brands son var af því til
efni kominn í heim sókn.
Hóf hann framkvæmdir með
tákn rænum hætti þegar hann
stökk upp í gröfu og byrjaði
að grafa. Við þetta tækifæri var
einnig viðstödd fyrirrennari hans
í em bætii, Sigrún Magnúsdóttir
sem hafði fyrir þremur árum tekið
fyrstu skóflustunguna að mið
stöðinni. Bæjarbúum var einnig
boðið til að fagna þessum tíma
mótum og að athöfn lokinni var
boðið upp á kaffi og kleinur í Sjó
minja safninu.
Verkið var boðið út fyrr á þessu
ári og bárust þrjú tilboð í verkið.
Stafnafell ehf átti lægsta tilboðið
og mun vinna verkið. Sem felur í
sér að grafa fyrir húsi, bílaplani.
lögnum og fyllingu undir sökkla
og burðarlags undir bílastæði á
lóð. Stærð lóðarinnar er um það
bil 11.500 m2 og stærð fyrirhugaðs
hús á henni u.þ.b. 700 m2. Helstu
magntölur í verkinu eru girðingar
260 m, gröftur 3.000 m3 og þar
af losun klappar 800 m3, fyllingar
2.500 m3 og vinnsla hrauns 250
m3. Eru verklok áætluð í maí á
þessu ári.
þa
872. tbl - 19. árg. 11. apríl 2019
Vinna hefst við Þjóðgarðsmiðstöð
Útgáfa næstu vikur
Útgáfudagar Bæjarblaðsins Jökuls næstu vikur:
miðvikudaginn 17. apríl,
skila þarf efni mánudag 15. apríl
föstudaginn 26. apríl,
skila þarf efni þriðjudag 23. apríl
mmtudaginn 2. maí,
skila þarf efni mánudag 29. apríl