Bæjarblaðið Jökull - 11.04.2019, Síða 2
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og
dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ og
Grundarfirði. Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 1.100
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf.
Sandholt 22a, Ólafsvík
355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
Útgerðin opnaði í Ólafsvík á
síðasta föstudag. Útgerðin sem
staðsett er í Pakkhúsinu í Snæ
fellsbæ mun bjóða upp á minja
gripi, handverk, sæl kera vörur,
íslenska hönnun og léttar
veitingar svo sem boozt, skyr,
vefjur og annað léttmeti.
Að sögn Rutar Rangarsdóttur
eiganda Útgerðarinnar heppn
aðist opnunin stórvel og var hún
ánægð með fjöldann sem mætti
en um 150 manns kíktu við. Við
opnunina var boðið upp á smakk
á drykkjum, engiferskotum og
fleiru sem á boðstólum verður.
Einnig var opið um helgina og
voru flestir þeir sem komu við
þá daga heimamenn.
Sagðist Rut vera enn aðeins að
finna taktinn með opnunartíma
og mun á næstunni opna alla
daga klukkan 10:00 og hafa opið
eitthvað frameftir degi. Hún ætlar
einnig að hafa opið alla páskana
og að fastari opnunartími kæmi
síðar.
Óskum við Rut innilega til ham
ingju með þenna fallega stað sem
er góð viðbót við það sem fyrir er
í bæjarfélaginu.
Á myndinni eru þær mægður
Rut Ragnarsdóttir og Aðalheiður
Aðal steins dóttir sem munu
standa vaktina í Útgerðinni.
þa
Fjölmenni við opnun Útgerðarinnar
Samgöngu og sveitar
stjórnar ráðherra hefur úthlutað
styrkjum að upphæð 71,5
milljónum króna til verkefna á
vegum sex landshlutasamtaka
sveitarfélaga. Styrkjunum er
úthlutað til sértækra verkefna
á sóknaráætlunarsvæðum fyrir
árið 2019 í takt við stefnumótandi
byggðaáætlun fyrir árin 2018
2024 (aðgerð C1). Alls bárust 19
umsóknir um styrki að fjárhæð
rúmar 278 m.kr. fyrir árið 2019.
Þriggja manna valnefnd fór
yfir umsóknir og gerði tillögur
til ráðherra.
Eitt af verkefnunum sem hljóta
styrk árið 2019 er Gestastofa
Snæ fells ness á Breiðabliki.
Samtök sveitarfélaga á Vestur
landi fær styrk til að efla Gesta
stofu Snæfellsness. Í umsögn
segir að Gestastofan gegnir
lykil hlutverki við eflingu ferða
þjónustu á sunnanverðu nesinu.
Þar verður miðlað upplýsingum
og þekkingu um svæðið til
ferðamanna. Styrkurinn nýtist
til endurbóta á húsnæði
og lagfæringa á umhverfi
þess. Verkefnið er styrkt um
10.000.000 kr. á árinu 2019, en
hlaut 15 m. kr. styrk úr sama
sjóði árið 2018.
Styrkur til Gestastofu
á Breiðabliki
Þau eru ófá vorverkin hjá
starfsmönnum Vegagerðarinnar
og hafa þeir því í nógu að
snúast þó snjórinn hörfi. Eitt af
vorverkunum er að laga þær holur
sem hafa komið yfir veturinn og
eru þær ansi margar. Eru tonnin
af olíumöl sem starfsmenn
Vegagerðarinnar eru búnir að
handleika orðin nokkur. Svæðið
sem starfsstöð Vegagerðarinnar í
Ólafsvík sér um er víðfemt en það
nær að Narfeyri að norðanverðu
á nesinu og að Haffjarðará að
sunnanverðu sem eru um 390
kílómetrar og þar af eru um 240
kílómetrar með bundnu slitlagi.
Einnig munu starfsmenn skifta út
þeim stikum sem þarf á svæðinu
en þær losa rétt rúmlega 13
þúsund.
þa
Vorverkin