Bæjarblaðið Jökull - 11.04.2019, Síða 5
Verslunarmenn - Verslunarmenn
Verkalýðsfélag Snæfellinga auglýsir:
Kynningarfund um nýgerða kjarasamninga að Grundargötu 30,
Grundarrði, 2. hæð, mmtudaginn 11. apríl kl 20.00.
Nánari upplýsingar munu berast í pósti á næstu dögum, einnig er
hægt að kynna sér allar upplýsingar á heimasíðu okkar verks.is
Ath. að kosningin er rafræn og stendur til 23. apríl.
Snæfellsbær hefur ákveðið að
mæta eftirspurn og bæta þjónustu
við gesti með rýmri opnunartíma
upplýsingamiðstöðvar í Ólafsvík.
Nýr opnunartími tekur nú þegar
gildi og verður opið 3. apríl til
15. maí alla virka daga frá 10:00
til 16:00.
Frá 15. maí til 31. ágúst verður
opið alla virka daga frá 8:00 til
19:00 og opið verður um helgar
frá 9:00 til 17:00.
Upplýsingamiðstöðin er stað
sett í Átthagastofu Snæfells bæjar
í Ólafsvík. Síðastliðið sumar sóttu
þangað um 7.000 ferðamenn í leit
að upplýsingum, leiðbeiningum
og öðrum ráðum og standa vonir
til að með auknum opnunartíma
geti upplýsingamiðstöðin stutt
betur við þau fyrirtæki sem eru í
ferðaþjónustu í Snæfellsbæ.
Aukinn opnunartími upplýsingamiðstöðvar
Smíðavinna
Tökum að okkur þakskipti, klæðningar og aðra smíðavinnu,
eigum lausa tíma í vetur.
Kynnið ykkur málið í síma 840-6100