Bæjarblaðið Jökull - 11.04.2019, Síða 11
Tveir bátar úr Snæfellsbæ taka
þátt í netarallinu að þessu sinni
Magnús SH og Saxhamar SH. Hefur
þeim gengið mjög vel Magnús
landaði eingöngu í heimahöfn
tímabilið 1. til 7. apríl en Saxhamar
landaði 2 sinnum í Rifshöfn ásamt
því að landa í Reykjavík.
Þetta sama tímabil komu alls á
land í Snæfellsbæ 1274 tonn í 94
löndunum þar af var landað 783
tonnum í 43 löndunum í Rifshöfn
og 491 tonn í 51 löndun í Ólafsvík
en ekkert var landað á Arnarstapa.
Hjá dragnótabátunum var
Steinunn SH landhæðs og landaði
160 tonnum í 7, Rifsari SH 68
tonnum í 3, Matthías SH 64 tonnum
í 3, Guðmundur Jensson SH 48
tonnum í 2 og Egill SH 30 tonnum
í 1 löndun.
Einn grásleppubátur Rán SH
landaði 9 tonnum í 5 löndunum.
Sex handfærabátar lönduðu, í
Ólafsvík lönduðu 5 bátar 7 tonnum
í 9 löndunum og í Rifshöfn 1 bátur
2 tonnum í 3 löndunum.
Hjá litlu línubátunum landaði
Kristinn SH 55 tonnum í 4,
Gullhólmi SH 36 tonnum í 3,
Tryggvi Eðvarðs SH 31 tonni í 3,
Sverrir SH 30 tonnum í 6, Særif SH
27 tonnum í 4, Lilja SH 23 tonnum
í 5, Stakkhamar SH 21 tonni í 4,
Bíldsey SH 20 tonnum í 4, Kári SH
4 tonnum í 2 og Álfur SH 3 tonnum
í 1 löndun.
Hjá stóru línubátunum landaði
Tjaldur SH 86 tonnum í 2, Rifsnes
SH 76 tonnum í 2, Örvar SH 47
tonnum í 1 og Hamar SH 38
tonnum í 1 löndun.
Eins og fram kom í byrjun eru
tveir bátar í Snæfellsbæ sem taka
þátt í netarallinu þeir Magnús
SH og Saxhamar SH og lönduðu
þeir samtals 274 tonnum af
heildarafla tímabilsins sem landað
var í Snæfellsbæ en góð veiði
var hjá öllum netabátunum og
landaði Magnús SH 185 tonnum
í 6, Saxhamar SH 194 tonnum í
5, Bárður SH 68 tonnum í 5 og
Ólafur Bjarnason SH 47 tonnum í
5 löndunum.
Eins og sést á myndunum sem
Jón Bjarki Jónatansson stýri maður
á Magnúsi tók er búið að vera mjög
gott fiskerí á netarallinu hjá þeim.
þa
Aflabrögð
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar
FUNDARBOÐ - 320. FUNDUR
Fundur er boðaður í bæjarstjórn Snæfellsbæjar, fimmtudaginn 11. apríl 2019
og hefst hann í Ráðhúsi Snæfellsbæjar kl. 14:30
Dagskrá bæjarstjórnarfundarins:
1) Ársreikningur Snæfellsbæjar 2018 – fyrri umræða.
2) Fundargerð 303. fundar bæjarráðs, dags. 27. mars 2019.
3) Fundargerðir fræðslunefndar, dags. 25. febrúar, 2. apríl og 8. apríl 2019.
4) Fundargerð 182. fundar menningarnefndar, dags. 25. mars 2019.
5) Fundargerðir velferðarnefndar, dags. 11. mars og 2. apríl 2019.
6) Fundargerð 125. fundar umhverfis og skipulagsnefndar, dags. 28. mars
2019.
7) Fundargerðir 180. og 181. fundar félagsmálanefndar Snæfellinga, dags.
12. mars og 2. apríl 2019.
8) Fundargerð 56. stjórnarfundar Jeratúns ehf., dags. 14. mars 2019, ásamt
ársreikningi 2018.
9) Fundargerð 411. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands, dags. 22. mars
2019.
10) Fundargerð 869. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags.
15. mars 2019.
11) Fundargerð aðalfundar Búnaðarfélags Staðarsveitar, dags. 28. mars 2019,
ásamt ályktunum félagsins, annars vegar varðandi ósk um að stofnanir
Snfællsbæjar fái sem mest af góðum innlendum landbúnaðarafurðum og
hins vegar varðandi þau umhverfisverkefni sem verið hafa í gangi.
12) Bréf frá Sýslumanninum á Vesturlandi, dags. 27. mars 2019, varðandi ósk
um umsögn Snæfellsbæjar um umsókn Boðvíkur ehf. um leyfi til reksturs
gististaðar í flokki II, frístundahús, að Jaðri 11 á Arnarstapa, Snæfellsbæ.
13) Bréf frá Sýslumanninum á Vesturlandi, dags. 2. apríl 2019, varðandi ósk
um umsögn Snæfellsbæjar um umsókn Hellna ehf. um leyfi til reksturs
gististaðar í flokki II, frístundahús, að Kjarvalströð 1 á Hellnum, Snæfellsbæ.
14) Bréf frá Sýslumanninum á Vesturlandi, dags. 2. apríl 2019, varðandi ósk
um umsögn Snæfellsbæjar um umsókn Hellna ehf., um leyfi til reksturs
gististaðar í flokki II, frístundahús, að Kjarvalströð 14 á Hellnum,
Snæfellsbæ.
15) Bréf frá Sýslumanninum á Vesturlandi, dags. 3. apríl 2019, varðandi ósk
um umsögn Snæfellsbæjar um umsókn Verslunarinnar Hrundar ehf., um
leyfi til reksturs gististaðar í flokki II, íbúðir, að Mýrarholt 5 í Ólafsvík,
Snæfellsbæ.
16) Bréf frá N4 Sjónvarp, dags. 8. apríl 2019, varðandi ósk um samstarf við
Snæfellsbæ um gerð þáttaraðarinnar Að vestan árið 2019.
17) Bréf frá skipulags og byggingafulltrúa, dags. 8. apríl 2019, varðandi
samþykki bæjarstjórnar á endurauglýsingu deiliskipulags vegna
ferðaþjónustu á Arnarfelli.
18) Bréf frá fræðslunefnd, dags. 8. apríl 2019, varðandi eldvarnarhurðir á
leikskólanum Kríubóli.
19) Bréf frá leikskólastjóra, dags. 9. apríl 2019, varðandi tímasetningu skólaslita
Grunnskóla Snæfellsbæjar.
20) Bréf frá skipulags og byggingafulltrúa, ódags., varðandi lækkun á
umferðarhraða og fjölgun umferðarmerkja.
21) Áætlun um tekjur og framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2019.
22) Bréf frá Þjóðskjalasafni Íslands, dags. 27. mars 2019, varðandi tilmæli
vegna skjalavörslu og skjalastjórnun í Snæfellsbæ.
23) Bréf frá Samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags. 4. apríl 2019,
varðandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk 2019.
24) Yfirlýsing Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 3. apríl 2019, varðandi
lífskjarasamninga 20192022.
25) Bréf frá Brunabót, dags. 25. mars 2019, varðandi styrktarsjóð EBÍ 2019.
26) Fréttatilkynning afmælisnefndar aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis
Íslands.
27) Húsnæðisáætlun Snæfellsbæjar 20192027
28) Jafnréttisáætlun Snæfellsbæjar
29) Minnispunktar bæjarstjóra.
Snæfellsbæ, 9. apríl 2019
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
SNÆFELLSBÆR
þar sem jökulinn ber við loft...