Goðasteinn - 01.09.1964, Page 38

Goðasteinn - 01.09.1964, Page 38
Jón er kvæntur Ingibjörgu Ásgeirsdóttur frá Framnesi í Mýrdal, og eiga þau þrjú börn. Finnur Torfi Hjörleifsson, f. 7. nóv. 1936, frá Sólvöllum í Flat- eyrarhreppi í Vestur-lsafjarðarsýslu. Hann stundaði nám í Núpsskóla í Dýrafirði og lauk lands- prófi 1952. Fór í Menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi 1956. Hóf nám við Háskóla íslands 1957. Lauk prófi í forspjalla- vísindum 1959 og fyrrihluta-prófi í íslenzkum fræðum 1960. Hann var kennari við Núpsskóla 1956-57 og við gagnfræða- skólann í Kópavogi 1962. Settur kennari við Skógaskóla haustið 1963. Jón Jósep Jóhannesson, f. .11. marz 1921, frá Hofstöðum í Skaga- firði. Hann hóf nám í Gagnfræðaskóla Reykvíkinga og lauk gagn- fræðaprófi 1938. Fór síðan í Menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi 1942. Stundaði nám í íslenzkum fræðum við Háskóla Islands og lauk cand. mag. prófi 1949. Var á námsskeiði í dönsk- um bókmenntum í Kaupmannahöfn 1952. Fékk ársorlof frá störf- um 1960-61 og dvaldist þá við nám í Cambridge og víðar í Eng- landi. Hann réðst kennari að Skógaskóla haustið 1949 og kenndi þar samfleytt til ársins 1960, er hann fékk orlof. Eftir heimkomu sína úr orlofi réðst hann að Vogaskólanum í Reykjavík og kenndi þar árin 1961-63. Vinnur nú hjá Atvinnudeild Háskóla Islands. Aðalkennslugrein hans var íslenzka, en hann kenndi einnig ís- landssögu, grasafræði og fleira. Jón er mikill áhugamaður um skógrækt og hefur unnið mikið að henni hér við Skógaskóla og á vegum Skógræktar ríkisins víða um land. Hann hefur ritað greinar í blöð og tímarit um skógrækt og fleira. Júlíus Daníelsson, f. 6. jan. 1925, frá Syðra-Garðshorni í Svarf- aðardal. Hann stundaði nám í Menntaskólanum á Akureyri og lauk stúdentsprófi 1945. Var síðan um langt árabil við nám í Uppsala- háskóla í Svíþjóð og lagði stund á landbúnaðarhagfræði. 36 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.