Goðasteinn - 01.09.1964, Blaðsíða 55
Skólinn er settur að hausti, þegar allir nemendur eru mættir,
skömmu eftir miðjan október, en uppsögn að vori fer fram i.
eða 2. dag júnímánaðar.
Félaijsllf og ílirnílir
Félagslíf nemenda er allþróttmikið. Á hverju hausti er haldinn
aðalfundur skólafélagsins og kosin stjórn. Hlutverk þessa fclags er
að skipuleggja kvöldvökur, málfundi og aðrar skemmtanir. Mesta
hátíð vetrarins er árshátíðin. Hún er haldin síðari hluta vetrar
og nú seinni árin þriðjudaginn fyrir páska. Er hún hin fjölbreyti-
legasta og vandaðasta skemmtun, og sækir hana mikill fjöldi
fólks. Á árshátíðinni kemur út fjölritað blað, er heitir Fossbúinn.
Á helgum eru haldnar kvöldvökur með söng, upplestri, leik-
sýningum og gamanþáttum, stundum eru málfundir haldnir, spiluð
félagsvist, teflt fjöltefli, sýndar kvikmyndir ,og skuggamyndir, farið
í þjóðdansa eða þá að keppt er í einhverjum íþróttum. Að loknum
öðrum skemmtiatriðum er oftast dansað á laugardagskvöldum, og
hafa nemendur sína eigin hljómsveit.
Allir nemendur starfa með í bindindisfélagi skólans. Félag þetta
sendir árlega nokkra fulltrúa á sambandsþing bindindisfélaga í
skólum, sem háð er í Reykjavík. Einnig gengst það fyrir skólamóti
í Skógum á bindindisdaginn i. febrúar ár hvert í samvinnu við
áfengisvarnanefndirnar í Rangárvallasýslu. Til móts þessa er boð-
ið öllum börnum í efstu bekkjum barnaskóla sýslunnar. Fyrstu ár
skólans var haldin Lúcíuhátíð skömmu fyrir jól, en hún er nú
aflögð. Skólamótið kemur að nokkru í hennar stað.
Á hverjum vetri fær skólinn marga góða gesti, sem flytja er-
indi, sýna kvikmyndir, halda námskeið í einu og öðru, leika á
hljóðfæri eða skemmta og fræða á annan hátt.
fþróttalífið í skólanum er fjölskrúðugt. Á hverju hausti velja
bekkirnir hver sinn fulltrúa í íþróttanefnd, sem starfar með íþrótta-
kennara að því að efla og skipuleggja íþróttaiðkanir.
Knattspyrna nýtur jafnan mikillar hylli, og eru alltaf starfandi
Goðasteinn
53