Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Page 7
Víkingar hafa fengið til sín
liðsstyrk fyrir komandi átök í
Lengjudeildinni í knattspyrnu.
Ólafur Bjarni Hákonarson var
lánaður til félagsins frá Stjörn
unni.
Um er að ræða tvítugan og
mjög efnilegan örvfættan strák
sem getur leikið sem bakvörður,
kantmaður og miðjumaður.
Hann á landsleiki að baki fyrir
yngri landslið Íslands og lék 10
leiki á láni hjá KFG í 2. deildinni
í fyrra.
Að sama skapi lék hann
æfinga leiki með Víkingum á
undir búnings tímabilinu og
þótti standa sig afar vel í þeim
leikjum.
Ólafur lánaður til
Víkings
Leikhópurinn Lotta var á
ferðinni um Snæfellsnes um
síðustu helgi og sýndi leikrit
sitt, Bakkabræður, í Grundarfirði,
Ólafsvík og Stykkishólmi.
Vel var mætt á sýniningarnar
og þótti leikritið ákaflega vel
heppnað. Um er að ræða fjöl
skyldu söngleik sem byggður er
á þjóð sögunum um bræðurnar
Gísla, Eirík og Helga en eins
og í öðrum sýningum hópsins
er undirtónninn alvarlegur og
boðskapurinn fallegur þó grín og
glens sé allsráðandi í sýningunni.
Bakkabræður er 13. frumsamda
sýningin sem leikhópurinn setur
á svið en leikritið verður sýnt víða
um land í sumar. Með fréttinni
fylgir mynd frá sýningu hópsins
í Klifi, Ólafsvík.
Víðir Haraldsson hefur sjó
mennsku að aðalstarfi bæði á
sínum eigin báti og fyrir aðra.
Sjómennskan er þó ekki það eina
sem Víðir gerir en hann tekur að
sér hin ýmsu köfunarverkefni.
Aðspurður sagði Víðir að hann
hafi keypt sér köfunargræjur
2004 eða 2005, æfði hann sig í
byrjun að kafa fyrir þá á Örvari
SH á Rifi. Sagði hann að verkefnin
væru mismunandi svo sem að
skera úr skrúfum, zinka báta þar
sem hægt er að skrúfa zinkinu
á og bara allt sem til fellur. Að
sögn Víðis er alltaf nóg að gera
og hafi lakasta árið verði 2017
en búið sé að vera nóg að gera
frá áramótum. Eiginkona Víðis
Kolbrún Þóra Ólafsdóttir fer alltaf
með honum þegar hann fer að
kafa og er honum til aðstoðar.
Sagði Víðir að það hittist nú oft
þannig á að hann væri nýkomin
í land þegar hann þyrfti að fara
til að kafa en hans aðalstarf er
sjómennska eins og áður segir.
Þegar blaðamaður hitti þau hjón
voru þau einmitt að undirbúa sig
að kafa til að skera úr skrúfunni á
báti sem fengið hafði veiðarfæri
í skrúfuna.
Grín, gleði og fallegur
boðskapur
Víðir kafar í aukastarfi
Árlegt umhverfisrölt Grundar
fjarðar bæjar fór fram 26. maí og
9. júní. Gengið var um bæinn
og bæjarbúum boðið í spjall um
það sem þeim liggur á hjarta um
umhverfi bæjarins.
Ýmsar góðar ábendingar komu
fram sem m.a. verður unnið úr
í sumar. Gerð verður grein fyrir
þessum atriðum og ýmsum öðrum
sem snúa að verklegum fram
kvæmdum og umhverfis málum á
heima síðu Grundar fjarðarbæjar
síðar í júní mánuði.
Skipulags og umhverfisnefnd
og bæjarráð munu einnig fara yfir
þessi atriði, á fundum á næstunni.
Rölt um Grundarfjörð