Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Qupperneq 8

Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Qupperneq 8
Það var sannkölluð hátíðar­ dagskrá í menningarhúsinu Frysti klefanum á Rifi um síðustu helgi þegar Frystiklefinn fagnaði tíu ára afmæli sínu. Veisluhöldin hófust á föstu­ deg inum þegar Bjartmar Guð­ laugsson hélt vel sótta tónleika. Á laugardeginum var gestum og gangandi boðið í afmælisveislu. Þar gátu gestir fengið sér köku og veitingar auk þess sem kynning var á dagskrá sumarsins og um kvöldið var haldið Pubquiz. Afmælishelginni var svo lokað með krakkabíói þar sem boðið var upp á múminálfamynd. Nóg verður um að vera í Frysti­ klefanum í sumar en má þar nefna töfrasýningar, uppistand með Sóla Hólm og fjölbreytta tónleika. Meðal þeirra sem munu halda tónleika í sumar eru bræðurnir Friðrik Dór og Jón Ragnar Jónssynir sem og stórsöngvarinn Eyjólfur Kristjánsson. Eins og fram hefur komið áður er frítt fyrir íbúa Snæfellsbæjar á alla viðburði í sumar í tilefni tíu ára afmælisins. Haldið upp á 10 ára afmæli Frystiklefans Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ var hlaupið um helgina, hlaupið var í Staðarsveit föstudaginn 12. júní, í Eyja­ og Miklaholtshreppi var hlaupið á laugardaginn en þann sama dag var einnig hlaupið í Ólafsvík og Grundarfirði. Þetta var í 30. skiptið sem Kvennahlaupið var hlaupið í Ólafsvík. Á þessum tímum er mikilvægt sem aldrei fyrr að hlúa að heilsunni og rækta sambandið við vini okkar og vandamenn. Konur á öllum aldri á 80 stöðum á landinu tóku þátt í Kvennahlaupinu að þessu sinni, allt frá litlum stelpum í kerrum til langamma þeirra. Hver kona tók þátt á sínum forsendum og flestir fundu vegalengd við sitt hæfi. Engin tímataka var í hlaupinu heldur var lögð áhersla á að hver komi í mark á sínum hraða, með bros á vör. Meðfylgjandi mynd var tekið í Sjómannagarðinum í Ólafsvík þegar hitað var upp fyrir hlaupið. Kvennahlaup hlaupið á Snæfellsnesi Efni og auglýsingum í Jökul þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu. Það er í lagi að skila fyrr. Upplýsingar um auglýsingaverð á www.steinprent.is

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.