Marx - 01.04.1944, Blaðsíða 8
8
í þeirri baráttu.
Það veltur á okkur að meira eða minna leyti, hvernig Sosíalistaflokknum
reiðir af a komandi árum, eftir að þeir, sem nú standa fremstir, eru fallnir frá.
Hvernig getum við þa bezt búið okkur undir að rækja okkar mikla hlutverk? Því er
auðsvarað, Við getum það aðeins með einu móti og það er að standa sem fastast um
okkar fólagsskap og gera hann að öflugustu og bezt skipulögðu æskulýðshreyfingu
landsins, sem veitir meðlimum sínum þá fræðslu, sem í hans valdi stendur.
Munið: Hver einasti meðlimur .2.F. a að vera sístarfandi áróðursmiðstöð
fyrir stefnuna.
Halldór B. Stefánsson.
1. M A í.
FÓlagar.’
FTÚ nalgast óðum dagur verkalýðsins. Það er tiltölulega stutt síðan alþýð-
an á íslandi for að halda upp á þennan dag. Fyrst í stað voru hátxðahöldin 1. maí
fremur famenn og klofin. En þetta hefur stöðugt verið að breytas.t, og nú er svo
komið, að aldrei safnast annar eins mannfjöldi út a götur Reykjavíkur og þennan dag,
þegar verkalýðsfelögin efna til hátíðahalda. Einkum hefur þó þessi breyting orðið á
síðastliðnum arum.
En það, sem mest er um vert, er það, að nú hefur verkalýðurinn a öllu land-
inu safnast saman í eina órjúfanlega heild undir forustu Alþýðusambands íslands.
Enginn vafi er á því, að hin mikla atvinna, sem verkafólk hefur haft að
undanförnu, hefur att sinn þatt í því að auka svo hátíðahöldin 1. max, sem orðið er.
Það er vitað, að meðan atvinnuleysi var, gat margt af því fólki, sem atvinnu hafði,
ekki farið í kröfugöngu 1. maí af hættu við að missa atvinnuna. Vegna hinnar nægu
atvinnu hefur slíkt sem þetta ekki þekkzt nú um nokkurn tíma. En nú er svo komið,
að við getum ekki lengur lokað augunum fyrir þeirri hættu, að atvinnuskortur fari
aftur að gera vart við sig. Ekki er hægt að taka a moti slíku með öðru en því, að
verkalyðurinn fylki ser sem fastast saman og láti engan bilbug á sór finna. Þess
vegna er það nauðsynlegt, að kröfugangan 1. maí n.k. verði stærri og glæsilegri en
nokkru sinni aður. Og það mun hun verða.
G.
"MARX".
Útgefandi .fskulýðsfylkingin í Reykjavík, fólag ungra sósíalista. - Ritstjóri: Gísli
Halldórsson. - Blaðið fæst á skrifstofu ,Æ.F.R. og kostar þetta hefti kr. 1,50.
Utanáskrift blaðsins er: FÓlagsblað Æ.F.R., "MARX", Skólavörðustíg 19, Reykjavík.