17. júní - 17.06.1945, Qupperneq 3
17. júní
fagnaðar- og friðardagur.
17. júní Jjcr í sér voryl frá hauðri og hafi, og voryl
minninga frá langri og strangri stjórnfrelsisbaráttu
þjóðarinnar. 17. júní er lika sigurtáknið, stofndagur
hins endurheimta lýðveldis á Islandi.
1 skjóli minninganna og sigursins frá þessum helgi-
degi verðum við að berjast áfram. Sækja sífellt fram
til batnandi og bjartara þjóðfélags. Hiti og funi þessa
mikla minninga- og sigurdags á að eyða kulda og kviða
úr hugum okkar og hjörtum. Hann á að eyða sundur-
lyndinu og hinni þröngu sérhagsmunastefnu í málefn-
um, er varða alla þjóðina.
Andinn frá 17. júní kennir og bendir til samstarfs
um nauðsynjamálin, og hann á að gera okkur öll,
karla og konur, að vormönnum þjóðarinnar, stæltum
og stoltum landvarnarmönnum, hvenær sem kallið
kemur og tækifæri býðst.
Lýðveldið er endurreist, fullveldið viðurkennt, frels-
ið fengið. Jú, mikið rétt. Þetta er fengið með langri bar-
áttu og þrotlausu erfiði ágætustu sona. og dætra þjóð-
arinnar, en stoðir lýðveldis og fullveldis eru enn ungar
og veikar. Þær þurfa að styrkjast, því er áreiðanlega
engin hvíld framundan, ef frelsið á ekki að glatast.
Kraftinn til þeirrar baráttu á að sækja. í sjálfa sig, og
sýna þá samheldni, að „íslendingar viljum við allir
vera“, hvar sem starfið er háð eða sporin liggja.
Rit það, sem hér kemur fyrir almenningssj ónir, vill