17. júní - 17.06.1945, Blaðsíða 18
16
þann ávöxt trúa þeir. Það er gjaldmiðill, sem velta má
milli handanna, og taka til hvenær sem á þarf að halda.
Það er hverjum einum nauðsynlegt að hafa góða gát
efnalegrar afkomu sinnar, en það er ekki síður nauð-
synlegt, að gæta andlegrar afkomu sinnar. Maðurinn cr
sál og líkami. Fyrir hvorutveggja þarf að sjá, ef vel á
að fara, og styrkleiki andans er mikilsverðari en styrk-
leiki líkamans.
Lítir þú í kring um þig, ungi sveinn eða meyja,
muntu fljótt sjá dæmi af samferðafólkinu sem eldra er,
að sá, sem trúað hefir á hugsjónirnar og barizt fyrir
þær, hefir lifað fegurst og fullkomnast. Sá eða sú hefir
ekki einungis lifað sínu lífi glæsilegast heldur gert líf
fjölda annara manna fegurra, frjálsara, glaðara.
Fá okkar erum gædd þeim krafti, að við getum
kveikt stórar hugsjónir, og staðið í fylkingarbrjósti
þeim til sóknar og varnar, en öll getum við verið liðs-
menn þeirra hugsjóna, sem miða að fegurri og frjáls-
ari veröld, nýj um tíma, sem viðurkennir að réttur
þess smáa. eða fátæka vigti jafn mikið og réttur þess
stóra og ríka.
Þegar sá tími kemur er sigrinum náð. Þá fá hug-
sjónirnar völdin og auðurinn sitt afmarkaða sæti, og
ckkert þar fram yfir.
— Svo mikill er máttur hins andlega arfs og auðs,
a.ð honum getur ekki ryð grandað. Hann ávaxtar sig alla
tíma, og gildi hans vex með hverjum degi scm frá
líður.