17. júní - 17.06.1945, Blaðsíða 16

17. júní - 17.06.1945, Blaðsíða 16
14 ]>að sigla sinn sjó. En eigi viðunandi lausn að fást, þurfa allir velunnarar þess að taka höndum saman, til þess að koma því í höfn. Félagsmenn „Bylgjunnar“ hafa ávallt haft mikinn áhuga fyrir aukinni menntun stéttar sinnar, enda er þeim full-ljóst, hver nauðsyn það er þessu byggðarlagi, að uppvaxandi æskulýður cigi þess kost að njóta full- kominnar menntunar í þeim fræðum, sem eru megin stoðir alls athafnalífs hér í bænum, sem og öllum fjórðungnum. Sú staðreynd blasir við, að megin þorri þeirra ungmenna, sem sækir langt nám í fjarlæg og stærri byggðarlög, eru að mestu leyti horfnir æsku- stöðvunum. Að Hér sé rétt með farið sést greinilega á ])ví að verulegur hluti sunnlenzkra skipstjóra eru Vest- firðingar, sem sótt hafa nám suður á land“. Bj örgunarskútumálið. Mikið starf er nú unnið i slysavarnasveitum bæjar- ins til eflingar björgunarskútusjóði. Má vænta, að strax og umróti styrj aldarinnar léttir, verði hafin samfeld átök til smíði og reksturs björgunarskútu, sem starfi aðallega við Vestfirði, en annar staðar þegar sérstakar þarfir kalla að. Kvennadeild Slysavarnafélagsins hér hefir verið mjög athafnasöm i björgunarskútumálinu, og víst er að vestfirzkar konur ætla sér að leiða þetta mál til farsællegra lykta áður en langt líður.

x

17. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 17. júní
https://timarit.is/publication/1909

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.