Stjörnur - 01.12.1945, Qupperneq 3

Stjörnur - 01.12.1945, Qupperneq 3
5T”]ÖRnUR 1. tölublað Desember 1945 ■ 1. árgangur Til lesenda Kvikmyndablaðið „Stjömur", sem hér kemur fyrir almenningssjónir, er fyrsda kvikmyndablað, er út kem- ur hér á landi. Megin tilgangurinn með útgáfu þess er sá, að auka nokkuð þau litlu kynni, sem íslenzkir kvikmyndagestir hafa af ýmsum þeim stjörnum, er skært ljóma á kvikmyndahimninum, svo og því öðru, er varðar kvikmyndir, framleiðslu þeirra og flutning. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að kvikmynda- listin hefir rutt sér til rúms vítt um heim og náð æ sterkari tökum á hugum þjóðanna. Hér á landi hefir þróun í þessa átt eflzt mjög hin síðari ár. Þannig hafa kvikmyndir á tiltölulega fáum árum hafizt i þann sess, er þær nú skipa í íslenzku þjóðlífi, þ. e. orðið verulegur þáttur í skemmtanalífi íslenzkra manna og kvenna, þeirra, sem í þéttbýli búa, og þó einkum unga fólksins. Með bættum skilyrðum og auk- inni tækni til framleiðslu kvikmynda, svo og til sýn- inga þeirra, fylla æ fleiri þann flokk, er telur góða kvikmynd hina beztu skemmtun og eygir einnig glögglega þá menningarstrauma, er hún í mörgu tilliti færir með sér. Víða um heim, þar sem kvikmyndir eru þekktar, starfa tímarit, er hafa þann tilgang að brúa bilið milli þeirra, sem byggja upp kvikmynd- ina, lifa og hrærast á fæðingarstað hennar, og svo hinna, er njóta ávaxtanna af starfi þeirra, kvikmynda- gestanna. Hér hjá okkur á viðleitni í þessa átt engan starfsvettvang, en með útgáfu blaðs þessa er gerð tilraun til úrbóta í því efni. Allir ættu að gera sér ljóst, að menn þeir og konur, sem á hendi hafa hin ýmsu hlutverk kvikmynd- anna, eru listamenn, misjafnlega miklir eins og geng- ur. Þeir, sem fram úr -skara á einhvern hátt, skapa sér hróður um heim allan, verða dáðir og mjög um- talaðir meðal allra, er á kvikmyndir horfa. Kynni okkar af þessum listamönnum eru að vonum lítil, og ' AUDSSOKASAFn' I..M: LG00 87 |__ÍS L A.'JlJb að því er frá snýr leik þeirra í kvikmyndunum, nær engin. Mun þó margan fýsa að kynnast þeirri hlið, kynnast manninum sjálfum, uppruna hans, fyrri æfi og för hans þá bröttu braut, er liggur til alheims- frægðar. Þetta atriði munu „Stjörnur" hafa í huga og gera þau skil, sem unnt verður. Auk kynningar ýmissa kvikmyndaleikara mun blað- ið birta nýjar fréttir, er því munu ávallt berast beint frá vöggu kvikmyndanna, Hollywood. Kvikmynda- húsin í Reykjavík munu kynna nýjar myndir, er þau taka til sýninga. Ymislegt annað efni mun fram koma eftir því, sem ástæður verða til á hverjum tíma. Okkur, sem að útgáfu blaðsins stöndum, er ljóst, að ýmsu mun ábótavant og margt þarf að laga. Við vitum um örðugleika þá, er jafnan gera vart við sig í byrjun. En við munum yfirstíga þá örðugleika, og til þess mun reynslan hjálpa okkur. Við væntum skilnings og velvildar lesenda, en lofum í staðinn ein- dreginni viðleitni til að gera þá ánægða, og með ein- lægri ósk um að það megi takast hefja „Stjörnur" göngu sína. Útgefendur. Bing Crosby Paramount- stjarna STJÖRNUR 3

x

Stjörnur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.