Stjörnur - 01.12.1945, Qupperneq 4
20th CENTURY-FOX
Tyrone Power
Eftir Harry Brand
Við vitum ekki nákvæmlega hvaða átök það kostar
að byggja upp list eins manns. Hitt vitum við, að
engum er fært að ná frægð, án þess að vinna til henn-
ar, verða fyrir ýmsum óhöppum og yfirvinna þá erfið-
leika, sem verða á veginum.
Fáir munu þeir kvikmyndagestir, sém ekki þekkja
Tyrone Power, hinn glæsilega mann, sem árum saman
hefir notið aðdáunar og hylli milljóna manna og
kvenna — og þó einkum kvenna.
Þeir, sem orðið hafa þeirrar ánægju aðnjótandi að
kynnast Tyrone persónulega, tala mikið um fegurð
hans og sérstakt jafnvægi. Hann hefur það viðmót,
þá menntun og það útlit, sem kvikmyndaframleið-
endur og stjórnendur sífellt sækjast eftir. Hann heillar
alla með alúð, einlægum áhuga og hann hefir þann
sérstaka hæfileika að gefa samræðum feikandi líf.
Ættir Tyrone eru gamlar og góðar í báða liði.
Flestir úr föðurætt hans eru grafnir í Irlandi og
Englandi, en móðurættin hefir dvalið í Frakklandi
og í Ameríku.
Til eru menn, sem örlögin fá aldrei haldið niðri.
Slíkir menn sækja jafnan fram og taka við því bezta,
sem heimurinn hefir að bjóða. En árangur slíkrar
baráttu kemur ekki í ljós, nema að hugrekki sé fyrir
höndum —. vilji til að berjast og halda' baráttunni
áfram, hvað svart sem útlitið virðist vera. Þannig er
Tyrone Power og um það munuð þér sannfærast, er
þér lesið eftirfarandi æfiágrip.
Tyrone Power er hinn þriðji sinnar ættar, sem ber
þetta nafn. Hinn fyrsti var langafi h'ans, sem skírður
var eftir héraðinu Tyrone, heimkynni Powerfjölskyld-
unnar. Sonur hans, Harold Power, nefndi einkason
sinn Tyrone, en hans sonur er kvikmyndaleikarinn
mikli, sá er þessi þáttur fjallar um.
Móðir Tyrone, Patia Power, fæddist í Indianapolis,
Indiana. Hún er óvenjulega fögur kona og gáfuð.
Rödd hennar er af gagnrýnendum talin ein hinna
áhrifamestu, en um leið einhver hin mýksta, sem
heyrist á leiksviði og í útvarpi. Frá móður sinni hefir
Tyrone sín fögru augu og hið alþekkta bros, en þessir
eiginleikar móðurinnar eru meðal hinna auðsæustu
einkenna sonarins.
Tyrone Power, hinn þriðji, fæddist á yndislegum
vordegi, 5. maí, 1914 — kl. hálf sex að kveldi. — For-
eldrar hans höfðu um langt skeið stundað leikstarf-
semi og höfðu þar getið sér mikla frægð. Nokkru eftir
fæðingu drengsins hófu þau leikstarf að nýju, fyrst
í New York, en er barnið var eins árs, fluttust þau
til Hollywood. Nokkrum mánuðum seinna fæddist
systir Tyrone, Ann, en hún er nú frú Feslie Tyrer
og á heima í Honolulu. Ekki voru þau þó lengi í
Hollywood, en fluttust aftur til New York og stofn-
settu þar heimili.
Til 7 ár-a aldurs var Tyrone heldur pasturslítill, og
fyrir þá sök fór ’móðir hans með hann og systur hans
til Californíu. Þau settust að í San Diego.
Móðir Tyrone vann við ameríska Rauða Krossinn
og leysti þar mikið starf af höndum. A meðan átti
Tyrone litli góða daga, lék sér með systur sinni á
sendinni sjávarströndinni, umvafinn sól og heilnæmu
lofti.
Þegar frú Power hafði lokið starfi sínu í Rauða
Krossinum og hlotið fyrir það alþjóðar-viðurkenn-
4 STJÖRNUR