Stjörnur - 01.12.1945, Side 7
WARNER BROS
Cali-
Los-
Hin heppna og
fagra Smith
Alexis Smith er fædd í Canada, en fluttist
með foreldrum sínum til Hollywood, þegar
hún var fimm ára. Hér er æfisaga hennar í
stuttu máli:
10 ára. Þá var hún álitin sérstök í píanóleik
sínum.
11 ára. Bætti söng og dansi við list sína.
13 ára. Sýndi listdans í hinu fræga skemmti-
húsi, „Hollywood Bowl“.
16 ára. Vann fegurðarsamkeppni
fiorníu.
17 ára. Stundaði leiklistarnám
Angeles háskólanum.
19 ára. Agætur leikari.
20 ára. Mikil kvikmyndastjarna.
Faðir Alexis var gullgrafari í Canada, afi
hennar gróf eftir gulli í Afríku og langafi
hennar gróf eftir því sama i Alaska. Sjálf
grefur hún í Hollywood og finnur gnótt.
Samt lifir hún sparlega og segir, að peningar
geti komið sér vel seinna.
Alexis segir, að steik sé uppáhaldsmatur
sinn. Skauta og badminton íþróttaiðkanir eru
aðal tómstundavinna hennar, en mest þykir
henni gaman að horfa á fótbolta. Hún segist
trúa þvi, að fólk geti verið bæði heppið og
óheppið.
Eiginmaður Alexis heitir Graig Stevens og
giftu þau sig 1944, eftir að hann hafði fengið undan-
þágu frá herþjónustu. — Alexis er fædd 8. júní 1921,
vegur 114 pund, er 168 cm. á hæð, ljóshærð og með
fallega blá augu.
STJÖRNUR 7