Stjörnur - 01.12.1945, Side 9
20ch Centure-Fox
f
Kynnsst
Gregory Peck
Hann œtlaði að verða
læ\nir, en varð heims-
frægur lei\ari á
s\ömmum tíma.
Jafnvel hin vandláta Hollywood
fann það og íbúar borgarinnar töl-
uðu um það með hrifningu — hinn
stóri, dökkeygi ungi maður er hinn
fyrsti þar í borg til að gera samning
við fjögur félög í einu. Hann lofaði
að leika í tólf myndum á skömmum
tíma. Allir vildu fá Gregory Pec\.
Það þarf mikla hæfileika til þess
að verða heimsfrægur leikari á svip-
stundu, en Gregory hafði þá hæfi-
l'eika. Hann hafði ekki langa æf-
ingu á leiksviðinu áður en hann
varð að stjörnu í Hollywood, en það
varð hann, er hann lék á móti
Tamara Toumanova í „Days of
Glory“.
Þegar Gregory var við nám í háskólanum, komu
leikarahæfileikar hans greinilega í ljós og það sá hann
sjálfur. Þess vegna fór hann til New York árið 1939
og leitaði á náðir vinar föður síns, sem sá strax að það
var eitthvað það 1 fari þessa þriggja álna slána, sem
öllum konum hlyti að geðjast vel að, enda varð sú
raunin.
Gregory komst þó ekki undir eins á leiksviðið. Fyrst
varð hann „kallari" fyrir utan leikhús eitt og sjálfur
hefur hann sagt, að á því hafi hann æft röddina hvað
bezt. Loks komst Gregory svo í leikhlutverk og eftir
það var leiðin auðveld, því að „hann er fæddur til
að leika“ eins og vinir hans segja stundum.
Kona Gregory heitir Greta og er af finnskum ætt-
um. Þau eiga lítið hús á fallegri hæð fyrir ofan
Hollywood. Engin börn eiga þau, en halda mikið upp
á hvítan hund og bröndóttan kött, sem þau eiga. Síð-
asta myndin, sem Gregory lék í heitir „Lyklar
Himnaríkis“ (Keys of the Kingdom) og eru
allir kvikmyndagagnrýnendur sammála um að hon-
um hafi aldrei tekist betur. Hann er enn að auka
frægð sína.
STJÖRNUR 9