Stjörnur - 01.12.1945, Qupperneq 13

Stjörnur - 01.12.1945, Qupperneq 13
Fréf-f-arifrari vor skrifar . . . Hollywood 5. des. Já, og það er alveg satt. — Nora Eddington (kona Eroll Flynn) hefur verið prófuð, og það er mjög mikil ástæða til að halda að innan skamms fáum við að sjá hana á tjaldinu. Og því ekki það — hún er sérstaklega falleg og hún myndast svo vel að slíks eru fá dæmi. # # # Þegar Betty Grable var lítil stúlka, var hún kölluð „Ruth“. Hér um daginn var hún köliuð þessu ágæta nafni, en þá brást 'hún reið við og sagðist hata nafnið . . . Betty hefur engan einkaritara og labbar sjálf í bankann með aurana sína, án þess jafnvel að tala við fjármálaráðunaut sinn . . . Hún notar sjaldan sama lit af varalit meira en einu sinni, en gerir allt af nýjar tilraunir í hvert sinn, sem hún býr sig um . . . Henni þykir mest varið í að sofa í rauðlitum náttfötum. # # # Enginn hafði haldið að Helmut Dantine mundi slá Frank Sinatra út og hafa stúlkurnar sveimandi í kring um sig, þegar hann kæmi fram opinberlega í New York, en það er nákvæmlega það, sem gerðist. Helmut, sem virðist bara vera venjulegur ungur maður hérna vesturfrá, var sannarlega ekki líklegur til að yfirvinna stúlkurnar. En hvað gerði ’ann ekki! # # # Joan Crawford, sem er stjarna hjá Warner Bros., hefur átt heima í sama litla húsinu sínu alltaf síðan hún byrjaði að leika í kvikmyndum. Húsið er talið mjög yndislegt. # # # Susan Peters’ hefur verið talsvert veik undanfarið, en læknar hafa von um að hún nái sér bráðlega. # # # Bonita Granville er enn að undrast yfir því, hver hafi sagt útvarpsþulinum að hún ætlaði að giftast á næstunni. Það merkilegasta er, að Bonita hefur aldrei heyrt mannsins getið, sem átti að verða hinn ham- ingjusami. # # # Barbara Huttan hefur verið að fara einkennilega mikið út með Bhil Reed, en á sama tíma fer hinn fyrrverandi eiginmaður Barböru, Carry Grant, dálítið oft á skemmtigöngu með Betty Hensel. # * # Ný ást. Robert Arthur og Wanda Hendrix fara um allar trissur og gera eitt og annað sér til gam- ans. Þetta ráðslag er þó fullkomlega samþykkt af foreldrum beggja. # # # Einhver mesti kunningsskapur, sem talað er um í Hollywood, er þessi á milli Lana Turner og Frankie Sinatra. Þau kynntust, þegar Lana var að leika með Tommy Dorsey, sem þá var húsbóndi Frankie. En nú er Lana bara gift Steve Crane, og nú verða þau þrjú, — Lana, Steve og Frankie — að skemmta sér saman. Þetta sýnist allt ganga ákaflega vel. # # # Frá því í september í haust hefur Betty Grable fengið hvorki meira né minna en 3,215 bréf. Flest af bréfunum hafa verið beiðnir um eiginhandarskrift Betty. Eitthvert merkilegasta bréfið var frá náunga, sem heitir W. L. Fergus og á heima í Ulinois. Hann sendi beiðni um skrift Betty í umslagi, en í staðinn fyrir að skrifa utan á nafn og heimili, eins og flest venjulegt fólk gerir, þá setti hann blaðamynd af Betta Grable. Póstmennirnir gátu ekki gert bréfið afturreka á þeim röksemdum að „heimilisfang væri óþekkt“. Bréfið komst beint til móttakanda og hún sendi nafn sitt til W. L. Fergus með mestu ánægju. ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAGIÐ „STJÖRNUSKIN' UTANÁSKRIFT BLAÐSINS: KVIKMYNDABLAÐIÐ „STJÖRNUR" BALDURSGÖTU 36, REYKJAVÍK. ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN H.F. STJÖRNUR 13

x

Stjörnur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.