Stjörnur - 15.05.1947, Side 8

Stjörnur - 15.05.1947, Side 8
Gilda sagði: „Ég hef heyrt margt um yður“. Johnny sagði: „Ég hef ekki heyrt minnst á yður einu orði“. Er Johnny gekk heim, var hugur hans í uppnámi. Gleymt henni! Henni gat hann ekki gleymt á meðan blóðið rann í æðum hans. Og hún var gift manninum, sem hann átti allt að þakka. Og dagar liðu. Johnny virtist Gilda gera fullmikið að því, að líta aðra karlmenn en eiginmann sinn hýru auga. Hann reyndi að tala um það við hana, en ár- angurslaust. Hann gerði þá allt, er hann gat, til að koma í veg fyrir að maður hennar veitti þessu athygli. Eitt kvöldið, er Munson kom niður úr skrifstofu sinni í spilasalinn, kvað við skot og þaut kúlan rétt hjá höfði hans. Allir litu til dyranna. Þar stóð litli maðurinn með hökutoppinn með rjúkandi skamm- byssu í hendinni. Eins og elding sneri hann nú hlaup- inu að höfði sér og hleypti aftur af. Munson varð mikið um þetta tilræði, og gerði nú Johnny að trúnaðarmanni sínum. Heima hjá sér sýndi hann honum leyniskáp, þar sem hann geymdi skjöl varðandi alþjóðaeinokun á frumefninu Wolfram (Tungsten). „Spilasalurinn var aðeins til að skýla þess- um félagsskap, Maður, sem hefur yfirráð á þýðingar- miklu frumefni, getur stjórnað heiminum!“ Jo'hnny var ekki vel ljóst hvernig máli þessu var háttað, en hann ákvað að reynast Munson trúr hér eftir sem hingað til. Eitt kvöld hélt Munson grímuball, til heiðurs Gildu, í spilasalnum, og var húsið lokað fyrir öðrum en boðs- gestum. Gleðin var að ná hámarki og menn voru farnir að rífa grímurnar hver af öðrum. Einn maður tók þó ekki þátt í gleðinni. Hann lá fram á veitinga- borðið og hreyfðist ekki. Hópur af kátu fólki þusti að honum og reif af honum grímuna, en hljóðuðu upp yfir sig. Maðurinn var dauður, stunginn í bakið. Þetta var annar Þjóðverjanna. En Gilda var horfin. Munson bað Johnny að fara strax og leita að henni og koma með hana heim. Hann ók til hótels þess, er hann vissi að hún myndi vera í og hitti hana og ók henni heim. Er hann opnaði fyrir hana bíldyrnar til að hleypa henni út, hvíslaði hún: „Þú hatar mig, Johnny, er það ekki?“ Hún lagði handleggina um háls honum. „Ég hata þig líka. Svo ákaflega, að ég held að það geri út af við mig“. Hann hafði ekki ætlað að kyssa hana, en þó gerðist það. En í því sá hann Munson aka fram hjá í sínum bíl. Hann vissi að hann hafði séð þau. Þó nam hann ekki staðar, heldur ók áfram á fleygiferð. Johnny rauk strax upp í sinn bíl og ók á eftir honum. Hann Hann spurði gamla þjóninn, Píó jrænda, hver þetta vceri. „Slcepingur", svaraði sá gamli. Síðan leit hann á sþildinginn, sem johnny hajði rétt honum og sagði: „Bóndi". náði honum ek'ki, en elti hann út á flugvöll og sá þar á eftir honum upp í flugvél, er þegar hóf sig til flugs. Þar var þá líka kominn hr. Obregon. Og hann skipaði fyrir með lögregluvaldi: „Símið strax til hafnarlögreglunnar!“ þegar flugvélin sást missa flugsins og steypast í sjóinn. Samkvæmt erfðaskrá Munsons tók nú Johnny við stjórn fyrirtækja hans. Og hann giftist Gildu. En honum fannst alltaf að þau standa bæði í óbættum sökum við Munson, fyrir það, að hann höfði dáið með þá hugmynd að þau hefðu svikið hann ■— vegna þess, sem hann sá, er hann ók framhjá þeim í bílnum. Þjóðverjinn, sem eftir var á lífi, hélt því fram, að Munson hefði svikið Þjóðverja um hlutdeild í Wol- fram-einokuninni. „Munson var brjálaður, herra Ferrell", sagði hann. „Hann hélt sig geta stjórnað heiminum". Johnny var ölvaður af hinu nýja valdi sínu og hélt sig geta stjórnað einan, og vildi engin ,ráð þýðast. Hann áleit líka, að Gilda elskaði hann ekki og hann hélt sig geta kæft niður ást sína til hennar. Þá kom Obregon enn til sögunnar. Hann afhenti Johnny sverð-staf Munsons: „Ur því að sá, er drap með honum, er dauður, datt mér í hug að þér kynnuð að vilja eiga hann til minja um fyrsta fund okkar, þegar ég sagði yður, að þér hefðuð ennþá engan blett Framhald á bls. 18. 8 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.