Stjörnur - 15.05.1947, Side 16

Stjörnur - 15.05.1947, Side 16
Konan á leið hans (frh. af bls. 9) yndæl lítil stúlka. Nú skil ég ekki, hvernig ég gat komist hjá að meta hana að verðleikum, meðan ég enn þekkti hana. En ég var þá blindaður af ást til annarar stúlku. Hún var lagleg og munnhvöt, ein þessarar tízkufljóða, þóttafull og drambsöm ■— í stuttu máli sagt, stúlka af þínu tagi. Ég varð þess var, að Helenu var hlýtt til mín, en ég hélt henni í hæfilegri fjarlægð. Ég umgekkst hana sem félagi, og lét sem ég vissi ekkert um tilfinningar hennar til mín. Aldrei gleymi ég þeim degi, er hún bað mig að tala við sig einslega. Við fórum á göngu saman. Hún reyndi hikandi og feimin að segja mér, að hana hefði langað til að tala við mig, vegna þess, að hún væri að fara úr bænum, og að hún yrði eina viku í burtu. Og áður en hún færi, hefði sig langað til að vita, hvers virði hún væri mér. Hún var svo yndis- leg og kvenleg, og það var ekki vitund óviðfeldið er hún sagði mér, að henni þætti vænt um mig og að hún mundi aldrei geta gleymt mér. Að vísu varð ég að játa, að ég hugsaði ekki til hennar á sama hátt, heldur hefði ég ávallt litið á hana sem vin og félaga. Það var sárt að sjá þessa litlu, yndælu stúlku berjast við grátinn. Ég kenndi ynnilega í brjósti um hana og — svo rangt sem það var af mér — þá beygði ég mig niður að henni og kyssti hana á munninn. Ég gat ekki annað; auðvitað var það illa gert af mér. Hún mundi aldrei geta gleymt kossinum þeim. En hve ég var þá heimskur. Ég lét einu heiðarlegu og ósviknu stúlkuna, sem ég hefi fyrir hitt á lífs- leiðinni, fara frá mér ,vegna þess, að ég gat ekki slitið hugann frá lítilsigldri eftirlætisbrúðu. En minninguna um ást hennar mun ég ávallt geyma sem óumræðilega dýrmæta eign, allt of dýrmæta til þess, að þú eða þínir líkar geti metið hana, eða skilið. Að svo mæltu kveð ég þig, Rita. Ég mun ekki ásaka þig. Mér er ljóst, að þú getur ekki að því gert, þótt þú, tizku'barnið, eigir ekki hina ósviknu kvenlegu siðprýði. Slíkir eiginleikar eru sjaldgæfir, eins og fagurt blóm, sem menn geta naumast vænzt að finna nema einu sinni á lífsleiðinni. Með vinarkveðju, Henry. Rita hafði nánar gætur á andliti Sylviu, meðán hún braut bréfið saman og lét það í umslagið. „Jæja, ‘hvernig finnst þér?‘ ‘spurði hún. „Það hlýtur að vera sært hjarta, sem kallar fram svo bitur orð“. „Já, vesalings Henry. En finnst þér, að ég geti að því gert, þótt ég ekki. gæti verið honum meira en eg varr „Nei, vissulega ekki. En ég vorkenni honum. Það hlýtur að vera sárt að uppgötva, að enginn hafi nokkru sinni elskað mann“. „Já, en þú gleymir því, að hann á þó mynd hinnar kæru Helenu ti;l þess að lifa fyrir. Hvernig sem hún nú kann að hafa verið, þá mun hann, svo lengi sem hann lifir, hugga sig við tilhugsunina um það, að hún gleymi honum aldrei“. Sylvia handlék bréf Henrys hugsandi og sagði: „Ojá, og svo yrði hann áreiðanlega mjög vonsvik- inn, ef hann nú finndi hana í dag. Ef til vill hefir hún, síðan hann þekkti hana, breyzt í eina þessara tízkunnar kvenna, sem hann fyrirlýtur svo mjög, vegna þess, að hann ræður ekki við þær“. „En góða Sylvia“, sagði Rita. „Það er naumast að þú ert hátíðleg á svipinn. Ég fæ ekki annað séð, en að þú ætlir að fara að tárast vegna vesalings Henrys“. Sylvia stóð upp. „Nei, það er miklu fremur vegna sjálfrar mín, sem mig langar til að gráta. Mér finnst ég allt í einu vera svo ónærgætin og leiðinleg í fram- göngu, en þannig hefi ég ekki ætíð verið. Jæja, nú verð ég að halda áfram. Eg var eiginlega á leið í verzl- anir, til þess að leita að efni í blússu. Heldurðu ekki að gult muni klæða mig vel? Eða er ég máske orðin of gömul til þess að klæða mig svo ljósum lit?“ „Of gömul! Ef þú aðeins vissir, hve ungleg þú ert, þá mundirðu ekki hugsa um aldur þinn!“ „Nú verð ég að flýta mér. Vertu sæl, Rita!“ „Vertu sæl“. Rita horfði hugsandi á eftir vinkonu sinni, þar sem hún gekk niður stíginn. Fætur hennar vísuðu ofurlítið inn, er hún gekk. Því hafði Rita ekki fyr veitt athygli, því að göngulag Sylviu var svo fagurt. Litlu munaði. Þrír Skötar voru staddir í kirkju á sunnudegi, þegar presturinn skoraði á allan söfnuðinn að láta eitthvað af hendi rakna til kirkjunnar. Skotarnir urðu mjög órólegir þegar samskotabauk- urinn nálgaðist. Skyndilega féll einn þeirra í ómegin en hinir tveir ruku til og báru hann út. 16 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.