Páskasól - 01.04.1944, Side 5

Páskasól - 01.04.1944, Side 5
Frá Vestmannaeyjum. oft að láta okkur þetta nægja, svo ekki er rúm fyrir upprisuboðskapinn. Og svo höfum við þó rúm fyrir hann. Mennirnir geta ekki alltaf fundið hvíld í fullyrðingum veraldarvizkunnar, látið sér nægja umbúðir mannanna um hið hulda, djúpa sár. Særð samvizka finnur þar engan frið. Henni nægja ekki ágizkanir um endi í gröf, engin hugsuð sjálfshjálp eftir dauða, engar hugmyndir um hjálp framliðinna, sem eins og þeir voru syndarar á jörð. Særð samvizka þráir Guðslausn á synd og dauða. Þakklát heyrir hún boðskapinn um upprisinn mannkynsfrelsara. Svo göngum við hinn skamma veg frá móðurskauti til moldar. Dauðinn er bak við næsta leiti. Menn hlæja á leiðinni, en oft er það hol- ur hlátur. Menn gráta á leiðinni, og beizkustu tár- in eru alltaf sönnust. Lífið er alvara en enginn leikur. Samvizkan lýgur ekki. Hún talar um dóm í dauða og uppgjör við lifandi Guð, og segir: þú færð ei staðizt Við þurfum frelsara. Ódeyfður, vakandi hugur hrópar eftir frelsara. Fagnandi ætt- um við að heyra hinn mikla boðskap. Krist- ur hinn krossfesti, sem bar synd heimsins, er upprisiirn. Hann dó til að afmá þín lífs- brot, hann reis upp þér til lífs, þér til eilífs lífs í friði Guðs. Við getum villzt um skeið. Við getum lát- ið berast með tálröddum tímans, látið þær vagga okkur í værð. En þegar á reynir, þegar hin mikla holskefla dauðans hvelf- ist yfir okkur, mun ei margur þá, ef ei fyrr, hrópa: Jesú, upprisni frelsari, miskunna

x

Páskasól

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Páskasól
https://timarit.is/publication/1914

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.