Páskasól - 01.04.1944, Side 9

Páskasól - 01.04.1944, Side 9
PÁSKASÓL 7 kann ég ekki að lesa. Ég heyrði þá oft lesa um það, að Jesús læknaði sjúka. Og nú stóð einmitt svo á, að móðir mín lá veik. Það var lítið um það skeytt. Og mér var heldur ekki ljóst hver alvara var á ferð, fyrr en faðir minn keypti handa henni líkkistu. Þó stalst ég út í hof nokkr- um sinnum, og færði guðunum fórnir og bað þá um líf móður minnar. En henni versnaði svo, að hún var að dauða komin. Hún var eina manneskjan, sem mér þótti vænt um og sem vænt þótti um mig. Ég fór í örvæntingu minni út fyrir húsvegg, fleygði mér þar á grúfu og lofaði Jesú því, að ég skyldi samstundis trúa á hann, ef hann vildi lækna móður mína. Um nótt- ina fór henni að batna og var kistan seld, en ég trúði upp frá því á Jesú. — Svo var það kvöld eitt, þegar ég var að biðja til Jesú, að frændi minn kom að mér óvörum. Hann aðvaraði föður minn, sem spurði mig hvort ég hefði gleymt hvaða fjölskyldu ég tilheyrði, og hvílík smán það væri ef það spyrðist nú að ég væri orðinn kristinn. Hann skipaði mér að hætta al- gjörlega að biðja til Jesú. En ég gat það ekki. Bæði faðir minn og afi börðu mig. Og nú fyrir nokkrum dögum var ég rekinn að heiman.“ , „Hvað hugsarðu þér nú?“ „Ég ætla að verða burðarmaður. Fái ég svo að halda til hér á kristniboðsstöðinni, þá gæti ég lært meira um Jesúm.“ Þannig varð Sung Deh-tsuen kristinn. Og þannig voru fyrstu kynni kristni- boðans af manni, sem síðar skyldi verða samverkamaður hans í mörg ár, oft til mikillar hjálpar og gleði, í erfiðu starfi. Venjulegast er að sagt sé frá mönnum, sem þykja frábærir að einhverju leyti. Sung Deh-tsuen telst ekki til þeirra, þó margt væri vel um hann, eins og ráða má af eftirfarandi frásögu. En hún er ekki skrifuð honum til hróss heldur Guði, sem í óendanlegri náð sinni kallaði hann og frelsaði fyrstan í stóru heiðnu byggðar- lagi, gaf honum að vera frumgróður, telj- ast til sinna fyrstu votta í einni þéttbýl- ustu sýslu Honanhéraðs. Sung Deh-tsuen var ólatur að vinna. Og námfús að sama skapi, þótt námsgáfur hefði hann ekki meiri en í meðallagi. En hann átti ríka trúhneigð samfara mikilli alvöru og einlægni. Þegar hann var skírð- ur, eftir tveggja ára dvöl á kristniboðs- stöðinni, átti hann óskipt traust krist- inna manna þar, sem sannur lærisveinn Jesú Krists. Hann gat legið á bæn tím- unum saman, og oft fastaði hann. En hann átti líka við margvíslega örðugleika að etja. Hann fékk ungur augnsýki. Það var al- manna trú, að fólk, sem gengi með þá sýki yrði ekki eldra en 30 ára. Sá dauða- dómur vofði yfir honum. Nokkuð var um geðveiki í ætt hans, og var hann ekki ósmeykur við þá ættarvofu. Hann átti oft erfitt með að stilla skap sitt. — Það var morgun einn, að hann var í strætakapellunni og talaði við menn, sem þar gengu út og inn. Þar kom þá inn ramm- ur heiðingi, snýr sér að honum og segir, með miklum þjósti: „Útlendi hundurinn þinn, hér hefir þú setið nógu lengi.“ — Þá gat Sung ekki á sér setið, en rauk á fætur og gaf manninum löðrung. En svo iðraði hann þess á sömu stundu að hann bað manninn fyrirgefningar, og gekk síðan 60 km., til þess að ná á fund kristniboðans. Kom þá í ijós hve einlægur hann var. Nú fannst honum vera úti um sig. Hann hafði fyrirgert barnarétti sínum hjá Guði og orðið frelsaranum til vanvirðu. Hann lét þó huggast og sneri aftur til starfs síns

x

Páskasól

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Páskasól
https://timarit.is/publication/1914

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.