Upp í vindinn - 01.05.2009, Síða 81
Til móts við nýja dögun
i
i
i
I
Torg hins himneska friðar. Allt að verða tilbúið fyrir Ólympíuleikana.
Fuglshreyðrið, aðalleikvangur Ólympíuleikana
JÓN ÞÓRGUNNARSSONOGRÚNARÖRN
ÁGÚSTSSON Útskriftarnemarogferðalangar
vorið 2008.
Myndir:
Daníel Gunnarsson
Peking
Eftir millilendingar í London og Dubai var lent
í Peking. Peleing bar það með sér að í borginni
yrðu haldnir ólympíuleikar nokkrum vikum
síðar. Gríðarleg mannvirki höfðu verið byggð,
einkennismerki leikanna var í íjölmörgum
búðargluggum og marga fræga staði var búið
að gera upp. Við byrjuðum skoðunarferð um
borgina á torgi hins himneska friðar þar sem
fræðst var um byggingarnar sem voru næst
torginu. Sumar þeirra voru gríðarmiklar en
byggðar á örskömmum tíma af borgarbúum
í sjálfboðavinnu. Eftir að hafa litið grafhýsi
Maós og iðandi mannlífið á torginu augum
héldum við yfir götuna og í forboðnu borgina,
sem almenningur fékk ekki að líta augum fyrr
en árið 1911 eftir daga Pu Yis sem var síðasti
keisari Kína. Búið var að gera upp stóran hluta
borgarinnar nýlega en þar fræddumst við
meðal annars um bygggingarstíl sem einkenndi
keisaratímabilin.
Skipulagssafn borgarinnar var heimsótt
og fengum við ágætan fyrirlestur þar.
Heimsóknin var á fyrsta degi og því var hægt
að átta sig betur á borgarskipulaginu þegar
ferðast var um borgina næstu daga. Sama dag
var Beijing University of Civil Engineering
and Architecture sóttur heim þar sem vel var
tekið á móti okkur með fyrirlestri um skólann.
Síðar voru deildir skólans heimsóttar þar sem
prófessor úr hverri deild sýndi okkur aðstöðu
og rannsóknir.
Arla næsta morguns var haldið í átt að
Kínamúrnum. Það var ekki annað hægt sem
nemar í byggingarverkfræði á ferð um Kina
að skoða múrinn. Múrinn sem enn í dag er
stórkostlegt mannvirki hefur verið hreint
ótrúleg framkvæmd 200 árum fyrir Krist
þegar Quin, fyrsti keisarinn, lét tengja saman
fjölmarga múra og búa til varnarmúr til að
verjast óvinum úr norðri. Á leiðinni í átt að
múrnum sagði fararstjórinn okkur frá skipulagi
grænna svæða á leiðinni. I bakaleiðinni börðum
við glæsilega sundhöll og íþróttaleikfang
ólympíuleikanna augum. Arkitektúrinn var
glæsilegur og hefur um leið kallað á fjölmörg
ögrandi verkefni fyrir verkfræðinga. Sama má
segja um ólympíuleikvanginn sjálfan, Hreiðrið,
en gaman var að berja hann augum þar sem í
fyrrnefndri heimsókn í háskólann fengum við
stuttan fyrirlestur um stálvirkið í byggingunni
og samsetningu Hreiðursins.
Hutong, elsta borgarhverfið í Peking, var
gríðarleg mótsögn við ólympíuþorpið og
nútímalegar byggingar og samgöngukerfi nærri
þeim. Við vorum svo heppin að fá að snæða
hádeigisverð á einu heimili í Hutong þar sem
við fengum að heyra sögu hverfisins og hvernig
vandamál eins og skolp og rafmagn væri leyst.
Á leið í móttöku í íslenska sendiráðinu litum
við nýjar höfuðstöðvar ríkissjónvarps Kína
augum en byggingin er gríðarlega sérstök
stálbygging. Að lýsa byggingunni er verkefni
í heila grein útaf fyrir sig. Sendiráðið tók vel
á móti okkur og hittu sumir ferðalanganna
æskuvini eða ættingja þar, lítill heimur. Við
fengum fyrirlestur um íslensk fyrirtæki í
Kína og hvaða hlutverki sendiráðið gegnir.
Úr sendiráðinu var haldið í fyrirtækið Lucky
Trading sem hefur verslað þónokkuð við
Islendinga. Forstjóri fyrirtækisins hélt stutta
tölu en fól svo tveimur starfsmönnum að kynna
fyrirtækið betur og bauð hópnum á frægasta
veitingahús Peking, the Golden Duck þar sem
... upp í vindinn I 81