Feykir - 25.01.2023, Qupperneq 7
veður sem koma að norðan,“
segir Óðinn og vísar í með-
fylgjandi skjáskot af vef Veður-
stofunnar [hér til vinstri] sem
tekið var sl. föstudagsmorgun
þegar hvassviðri og asahláka
gekk yfir landið. Áður, þegar
aðeins voru tvær veðursjár á
Miðnesheiði og Fljótsdals-
heiði, segir Óðinn ljóst að
greinaleikin á veðrinu úti fyrir
Norðurlandi hefði verið um-
talsvert verri. Myndin sýnir
úrkomu, en á myndum sem
aðgengilegar eru innanhúss á
Veðurstofunni er t.d. einnig
hægt að sjá vindinn á sambæri-
legum myndum.
Óðinn segir að því miður
verði bið á því að Bjólfur verði
virkur og frestast það verkefni
fram á vorið. En þessar tvær
veðursjár á Selfelli og Bjólfi,
ásamt þeirri á Miðnesheiði við
Keflavíkurflugvöll, breytingu
úr færanlegri í fasta veðursjá á
Kirkjubæjarklaustri og síðan
veðursjám sem til stendur að
setja upp á Melrakkasléttu og á
Vestfjörðum mun gefa þá þekju
sem Óðinn segir nauðsynlega.
„Með þessum veðursjám höf-
um við góða þekju yfir landinu
og erum jafnframt að horfa út
fyrir ströndina og fylgjast með
lægðagangi sem kemur upp að
landinu. Þar er fyrsta veður-
sjáin, á Miðnesheiði, í ákveðnu
lykilhlutverki því að flestar
lægðirnar koma upp að suð-
vestur horninu. En það eru líka
lægðir sem berast til okkar úr
norðri, fara hringinn og læðast
þannig á bak við okkur en þeim
fylgir oft á tíðum úrkoma sem
getur valdið usla með miklum
rigningarveðrum og flóð-
ástandi. Radarinn á Skagatá og
á Melrakkasléttu eru hugsaðir
til þess að sjá þennan lægða-
gang og úrkomu sem lægðirnar
eru að bera með sér upp að
landi og það sama má segja
með fyrirhugaða veðursjá á
Vestfjörðum, hún hefur mikinn
tilgang í ofanflóða- og snjó-
flóðaeftirliti sem Veðurstofan
stendur fyrir.“
Óðinn segir þetta verkefni
um uppbyggingu veðursjár-
kerfisins vera með allra stærstu
verkefnum sem Veðurstofan
hefur ráðist í m.t.t. fjárfestingar
og uppbyggingar innviða. „Við
höfum verið með veðursjána á
Miðnesheiðinni í mjög langan
tíma og hún hefur löngu
sannað gildi sitt. En þetta er
það mikil fjárfesting að það
hefur þurft að hafa töluvert
fyrir því að koma þessu verkefni
á koppinn. Við vonumst til þess
að fyrirhuguð uppbygging geti
gengið eftir á næstu árum, alla
vega fyrir 2030 og þá verði allar
þessar veðursjár komnar upp
sem ég hef sagt frá, á Skagatá
sem nú er virk og á Bjólfi sem
vonandi kemst í gagnið á miðju
næsta ári. Við höfum einnig
endurnýjað allan búnað á
Miðnesheiði þannig að þetta er
heljarinnar áfangi sem er búinn
nú þegar en síðan þurfum við
að ráðast í þessar uppsetningar
bæði á Melrakka-sléttunni,
fyrir vestan og svo á Kirkju-
bæjarklaustri.
Síðasta stórverkefni
Helga verktaka
Húni.is segir frá því í des-
ember að bygging mannvirk-
isins hafi verið í höndum Helga
Gunnarssonar, verktaka á
Skagaströnd, og hefur eftir
Ólafi Bernódussyni, í pistli
hans í Morgunblaðinu, að hafi
verið síðasta „stóra“ verkefni
Helga sem hefur nú látið af
störfum eftir 42 ára þjónustu
við íbúa og nágrannabyggðir
sem húsasmíðameistari en
hann hefur á þessum árum séð
um allar meiriháttar byggingar-
framkvæmdir á Skagaströnd,
t.d. kirkjuna og íþróttahúsið.
Fram kemur einnig að tveir
ungir og atorkusamir menn,
Gísli Reynisson og Ragnar
Björnsson, hafi keypt fyrirtæki
Helga og tekið við keflinu úr
hans höndum.
Selfellið er þar sem merkingin er.
MYND AF KORTI LANDMÆLINGA ÍSLANDS
Ekki amalegt útsýnið á heiðinni. MYND: GUNNI RÖGG
Þá er bara að koma kúlunni á sinn stað. MYND: JÓI ÞÓRÐAR
Steypa flutt um erfiðan vegarslóða að Selfelli. MYND: GUNNI RÖGG
Veðursjáin er engin smá smíði. MYND: JÓI ÞÓRÐAR
Þar sem ekkert er eins og það sýnist
er erfitt að lifa og þrá.
Þar sem allt inn í tómleikann týnist
og tilveran öll verður grá.
Þar sem ljós er ei lengur að finna
er lífið svo andlega snautt.
Þar sem sótt er til síðustu kynna
og sólskin í augum er dautt.
Hvað er þá til reisnar og ráða,
hvað réttir þá stefnuna við,
og styrkir það hrellda og hrjáða
sem hrópar og biður um frið?
Hver einasti maður þess minnist
að mennskan er gjöful á þor.
Að fyrst er hann fórnarlund kynnist
þá fara að léttast hans spor.
Svo leiðin til friðar er fengin
ef forðast er allt sem er hjóm.
Og verði hún virkjuð og gengin
þá vaxa í sálinni blóm.
Sá gróður er andlega gjöfin
sem gildir til blessunar jöfn.
Með sólskini send yfir höfin
hún síðast menn leiðir í höfn.
Rúnar Kristjánsson
Andlega gjöfin
04/2023 7