Feykir


Feykir - 25.01.2023, Side 11

Feykir - 25.01.2023, Side 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Skör. Sudoku Krossgáta Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar. Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ótrúlegt – en kannski satt... Napóleon Bonaparte lést þann 5. maí árið 1821. Til eru tvær kenningar um það hvernig hann lést, annars vegar úr magakrabbameini, eða að honum hafi verið byrlað arsenik eitur. Krufning var framkvæmd í kjölfar dauða hans og segir sagan að ýmis líffæri og líkamshlutar hafi þá horfið. Ótrúlegt, en kannski satt, þá keypti bandaríski þvagfærasérfræðingurinn John J. Lattimer getnaðarlim Napóleons á uppboði árið 1977 á 40.000 dollara. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Þetta er sko ekki tréhestur. FEYKIFÍN AFÞREYING F RÉTTUR 1 Beef Bourguignon 600 g nautakjöt ólífuolía beikon eftir smekk 1 stk. laukur gulrætur eftir smekk sveppir 4 stk. skarlottulauk 500 ml vatn 500 ml rauðvín 2 nautakjötsteningar 1 tsk. timían salt og pipar Aðferð: Nautakjöt skorið í litla bita og steikt í potti í ólífuolíu ásamt lauk og beikoni. Kryddað með salti, pipar og timían. Vatni og rauðvíni bætt út í pottinn ásamt nautakjötsteningum. Látið malla við hægan hita í a.m.k. tvær klst. Best að láta malla allt að sex klst. Þegar klukkustund er eftir af eldunartíma eru sveppir skornir mjög gróft, gulrætur skornar niður í litla bita og skarlottulaukur skorinn í fernt og þessu bætt út í pottinn. Sætkartöflumús Tvær sætar kartöflur afhýddar, skornar í bita og soðnar í vatni í um það bil 25 mín. Kartöflur stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með salti og pipar. RÉTTUR 2 Epla/rabarbarapie með rjóma Botn: 4 græn epli 1 bolli af niðurskornum rabarbara 2 msk. salthnetur 1/2 tsk. kanill 100 g smátt skorið suðusúkkulaði 150 g sykur 150 g hveiti 150 g smjör Aðferð: Epli skorin niður og blönduð saman við rabarbarann og sett í eldfast mót. Kanil, salthnetum og súkkulaði sáldrað yfir. Sykri, hveiti og smjöri blandað saman og dreift yfir epla blönduna. Inn í ofn við 180°C í 30 mínútur. Borið fram með þeyttum rjóma. Verði ykkur að góðu! Helga og Gulli skora á Þyrey og Dag í Víðiholti að taka við mat- gæðingaþætti Feykis. Fullkominn vetrar- matur í frostinu sem verið hefur undanfarið Matgæðingar vikunnar eru þau Helga Sjöfn Helgadóttir og Gunn- laugur Hrafn Jónsson (Gulli) í Hátúni í Skagafirði. Þau eiga þrjú börn, Jón Dag, Dagmar Ólínu og Hrafn Helga, og tvö barnabörn. Helga og Gulli eru bæði úr Skagafirðinum, Helga frá Laugarbökkum í Lýtingsstaðahreppi og Gulli frá Stóru-Gröf ytri í Staðarhreppi. Helga er kennaramenntuð og Gulli vann við tamningar áður en þau ákváðu að gerast kúabændur í Hátúni. „Við erum engir ástríðukokkar en höfum gaman af að slá upp matarveislum annað slagið. Þar er það helst villibráðin sem Gulli veiðir og ég matreiði sem verður fyrir valinu. Skemmtilegast er að matreiða úr hráefni sem við framleiðum eða veiðum sjálf,“ segir Helga. Helga Sjöfn og Gulli. MYND AÐSEND Spakmæli vikunnar Aldrei trufla óvin þinn þegar hann er að gera mistök. – Napóleon Bonaparte Feykir spyr... Ætlar þú á mörg þorrablót í ár? Spurt á Facebook UMSJÓN: klara@nyprent.is „Fer á eitt fjölskyldublót, svo liklega Króksblótið.“ Íris Ósk Elefsen „Nei ég reikna ekki með því að fara á neitt þorrablót.“ Gunnar Páll Ólafsson „Nei, ekkert, enginn tími.“ Gylfi Ingimarsson „Mun allavega skella mér á eitt sem er ákveðið.“ Sigurlína Erla Magnúsdóttir ( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is Helga Sjöfn og Gunnlaugur | Hátúni í Skagafirði 04/2023 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Langamma og langafi. Ljósa gæta í stjökum. Hár hans ýfðu harðviðri. Hún þó lín í vökum. KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.