Feykir - 25.01.2023, Qupperneq 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Skör.
Sudoku
Krossgáta
Vísnagátur Sigurkarls
Stefánssonar. Finna skal út
eitt orð úr línunum fjórum.
Ótrúlegt – en kannski satt...
Napóleon Bonaparte lést þann 5. maí árið 1821. Til eru
tvær kenningar um það hvernig hann lést, annars vegar úr
magakrabbameini, eða að honum hafi verið byrlað arsenik eitur.
Krufning var framkvæmd í kjölfar dauða hans og segir sagan að
ýmis líffæri og líkamshlutar hafi þá horfið. Ótrúlegt, en kannski satt,
þá keypti bandaríski þvagfærasérfræðingurinn John J. Lattimer
getnaðarlim Napóleons á uppboði árið 1977 á 40.000 dollara.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Þetta er sko ekki tréhestur.
FEYKIFÍN AFÞREYING F
RÉTTUR 1
Beef Bourguignon
600 g nautakjöt
ólífuolía
beikon eftir smekk
1 stk. laukur
gulrætur eftir smekk
sveppir
4 stk. skarlottulauk
500 ml vatn
500 ml rauðvín
2 nautakjötsteningar
1 tsk. timían
salt og pipar
Aðferð: Nautakjöt skorið í litla
bita og steikt í potti í ólífuolíu
ásamt lauk og beikoni. Kryddað
með salti, pipar og timían. Vatni
og rauðvíni bætt út í pottinn
ásamt nautakjötsteningum. Látið
malla við hægan hita í a.m.k. tvær
klst. Best að láta malla allt að sex
klst. Þegar klukkustund er eftir af
eldunartíma eru sveppir skornir
mjög gróft, gulrætur skornar
niður í litla bita og skarlottulaukur
skorinn í fernt og þessu bætt út í
pottinn.
Sætkartöflumús
Tvær sætar kartöflur afhýddar,
skornar í bita og soðnar í vatni í
um það bil 25 mín. Kartöflur
stappaðar fínt með smjöri og
bragðbættar með salti og pipar.
RÉTTUR 2
Epla/rabarbarapie
með rjóma
Botn:
4 græn epli
1 bolli af niðurskornum
rabarbara
2 msk. salthnetur
1/2 tsk. kanill
100 g smátt skorið
suðusúkkulaði
150 g sykur
150 g hveiti
150 g smjör
Aðferð: Epli skorin niður og
blönduð saman við rabarbarann
og sett í eldfast mót. Kanil,
salthnetum og súkkulaði sáldrað
yfir. Sykri, hveiti og smjöri
blandað saman og dreift yfir epla
blönduna. Inn í ofn við 180°C í
30 mínútur. Borið fram með
þeyttum rjóma.
Verði ykkur að góðu!
Helga og Gulli skora á Þyrey og
Dag í Víðiholti að taka við mat-
gæðingaþætti Feykis.
Fullkominn vetrar-
matur í frostinu sem
verið hefur undanfarið
Matgæðingar vikunnar eru þau Helga Sjöfn Helgadóttir og Gunn-
laugur Hrafn Jónsson (Gulli) í Hátúni í Skagafirði. Þau eiga þrjú börn,
Jón Dag, Dagmar Ólínu og Hrafn Helga, og tvö barnabörn.
Helga og Gulli eru bæði úr Skagafirðinum, Helga frá Laugarbökkum
í Lýtingsstaðahreppi og Gulli frá Stóru-Gröf ytri í Staðarhreppi. Helga er
kennaramenntuð og Gulli vann við tamningar áður en þau ákváðu að
gerast kúabændur í Hátúni. „Við erum engir ástríðukokkar en höfum
gaman af að slá upp matarveislum annað slagið. Þar er það helst
villibráðin sem Gulli veiðir og ég matreiði sem verður fyrir valinu.
Skemmtilegast er að matreiða úr hráefni sem við framleiðum eða
veiðum sjálf,“ segir Helga.
Helga Sjöfn og Gulli. MYND AÐSEND
Spakmæli vikunnar
Aldrei trufla óvin þinn þegar hann er að gera mistök.
– Napóleon Bonaparte
Feykir spyr...
Ætlar þú á
mörg þorrablót
í ár?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Fer á eitt fjölskyldublót,
svo liklega Króksblótið.“
Íris Ósk Elefsen
„Nei ég reikna ekki
með því að fara á neitt
þorrablót.“
Gunnar Páll Ólafsson
„Nei, ekkert,
enginn tími.“
Gylfi Ingimarsson
„Mun allavega skella
mér á eitt sem
er ákveðið.“
Sigurlína Erla Magnúsdóttir
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Helga Sjöfn og Gunnlaugur | Hátúni í Skagafirði
04/2023 11
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Langamma og langafi.
Ljósa gæta í stjökum.
Hár hans ýfðu harðviðri.
Hún þó lín í vökum.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson