Mosfellingur - 09.11.2023, Side 4

Mosfellingur - 09.11.2023, Side 4
www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið - Bæjarblaðið í 20 ár4 HelgiHald næstu vikna sunnudagur 12. nóvember Kl. 13: Sunnudagaskóli í Lágafellskirkju. Kl. 20: Taize messa í Lágafellskirkju. Prestur: Sr. Henning Emil Magnússon. sunnudagur 19. nóvember Kl. 13: Sunnudagaskóli Lágafellskirkju. Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafellskirkju. Prestur: Sr. Hólmgrímur Elís Bragason. sunnudagur 26. nóvember Kl. 11: Guðsþjónusta í Lágafellskirkju. Prestur: Sr. Hólmgrímur Elís Bragson. Kl. 13: Sunnudagaskóli í Lágafellskirkju. leiðisljós í kirkjugörðum lágafellssóknar Í nóvember hefst undirbúningur við uppsetningu ljósakrossa á leiði í kirkjugörðunum. Til að auðvelda uppsetningu (vegna veðurs) mun fyrirtækið hefja undirbúning fyrr en áður. ljósin tendruð Ljósin verða svo tendruð fyrsta sunnu- dag í aðventu eins og áður. Aðstand- endur fá sendar frekari upplýsingar og greiðsluseðla. Allar nánari upplýsingar gefur Ingibjörg B. Ingólfsdóttir í síma 899 2747 og í gegnum netfangið leidisljos@gmail.com kyrrðarbænastundir í lágafellskirkju Á þriðjudögum kl. 17:30, byrjendur velkomnir kl. 17:15. Umsjón hefur Arna Harðardóttir. lagafel lsk i rk ja . i s Endilega fylgdu okkur á samfélagsmiðlunum facebook & instagram. Bryndís kjörin forseti Norðurlandaráðs Mosfellingurinn Bryndís Haralds- dóttir, alþingismaður Sjálfstæðis- flokksins, var á dögunum kjörin forseti Norðurlandaráðs fyrir árið 2024. Á sama tíma var formennsku- áætlun Íslands fyrir Norðurlandaráð kynnt undir yfirskriftinni Friður og öryggi á norðurslóðum. Þar er talað um þörfina á að tryggja öryggi Norðurlanda og bandalagsþjóða þeirra á norðurslóðum og jafnframt að draga úr spennu á svæðinu og áherslu á friðsamlegar lausnir. Bryndís hefur setið á Alþingi síðan 2016. Hún er formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis síðan 2021 og jafnframt verið formaður Íslandsdeildar Norð- urlandaráðs frá sama ári. Næsta Norðurlandaráðsþing verður haldið að ári í Reykjavík. Endurnýjun og fjölgun hleðslustöðva Í sumar var boðin út uppsetning, rekstur og fjölgun hleðslustöðva í Mosfellsbæ. Fjölgun hleðslustöðv- anna er í samræmi við loftslags- markmið Mosfellsbæjar sem miða að því að auðvelda almenningi að draga úr losun og þar eru umhverf- isvænni samgöngur mikilvægur hluti. Hleðslustöðvarnar verða settar upp á eftirfarandi stöðum: Jarðlínan: Krikaskóli, Hamrahlíð og íþróttamiðstöðin við Lágafellsskóla Rafmáni: Íþróttamiðstöðin að Varmá. Ísorka: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ. Orka náttúrunnar: Helgafellsskóli, Þverholt 2 og Golfklúbbur Mosfellsbæjar við Æðarhöfða. Hleðslustöðvarnar verða átta í heildina og eru tvær þeirra nú þegar í notkun, við FMOS og Þverholt 2. Áætlað er að hinar sex verði tilbúnar til notkunar í lok nóvember. Meðan á framkvæmdum stendur verða stöðvarnar við Varmá og Lágafellslaug tímabundið óstarfhæfar. Reykjalundur fagnar 40 ára afmæli lungna- endurhæfingar um þessar mundir en slík endurhæfing hófst formlega í núverandi mynd árið 1983 á Reykjalundi. Nýlega var haldið upp á afmælið með glæsilegu málþingi þar sem meðal annars einn af frumkvöðlunum, Steinunn Ólafs- dóttir hjúkrunarfræðingur, var heiðruð sérstaklega fyrir sitt merka framlag til lungnaendurhæfingar á Íslandi. Þetta 40 ára ferli lungnaendurhæfingar hefur verið afar farsælt enda hefur Reykjalundur verið einstaklega heppinn með metnaðarfullt og vandað starfsfólk. um 200 manns í endurhæfingu á ári Tæplega 200 manns njóta lungnaendur- hæfingar á Reykjalundi á ári hverju, flestir í 4-6 vikur í senn. Lungnaendurhæfing er fyrir fólk á öllum aldri með langvinnan lungnasjúkdóm, skerta getu og minnkuð lífsgæði vegna mæði og þrekleysis. Endurhæfing er einnig fyrir lungna- sjúklinga sem þurfa stuðning til að breyta skaðlegum lífsháttum, svo sem að losa sig við reykingar, bæta hreyfingu eða ná stjórn á mataræði. Markmið lungnaendurhæfing- ar eru til dæmis að auka þol og vöðvastyrk, rjúfa vítahring mæði og hreyfingarleysis, auka skilning á áhrifum lifnaðarhátta, ná betri stjórn á sjúkdómseinkennum og breyta lífsstíl varanlega. steinunn Ólafsdóttir heiðruð Í tengslum við afmæli lungnaendur- hæfingar heiðraði Reykjalundur Steinunni Ólafsdóttur hjúkrunarfræðing, fyrir framlag sitt til Reykjalundar og sögu lungnaendur- hæfingar. Steinunn var frumkvöðull í endurhæf- ingarhjúkrun og einbeitt í að stuðla að betra lífi fyrir fólk með langvinna lungna- sjúkdóma. Hún hóf störf á Reykjalundi árið 1984 og starfaði í 20 ár, lengst af sem hjúkrunarstjóri á lungnadeild Reykjalund- ar. Steinunn var sannkallaður frumkvöðull innan endurhæfingarhjúkrunar og kom af stað þverfaglegri endurhæfingu í lungna- teyminu, í nánu samstarfi við Björn Magn- ússon, þáverandi yfirlækni. Bæta lífsgæði fjölda Íslendinga Lungnaendurhæfing Reykjalundar hefur sannarlega komið við sögu við að bæta lífs- gæði fjölda Íslendinga og fjölskyldna þeirra og svo mun verða áfram. „Endurhæfing á Reykjalundi skapar fólki tækifæri til betra lífs og erum við staðráð- in í því að halda áfram að nýta okkur þau tækifæri sem aukin og bætt endurhæfing- arstarfsemi þjónar í heilbrigðiskerfinu, samfélaginu okkar til heilla,“ segir Pétur Magnússon forstjóri Reykjalundar. Pétur Magnússon forstjóri Reykjalundar og Steinunn Ólafsdóttur hjúkrunarfræðingur. Reykjalundur stóð fyrir málþingi til að fagna áfanganum • Steinunn Ólafsdóttir heiðruð Lungnaendurhæfing í 40 ár Hluti af núverandi lungnaendur- Hæfingarteymi reykjalundar Sunnudaginn 22. október var haldin guðsþjónusta í Lágafellskirkju í tilefni af því að 160 ár eru frá því að Ólafía Jóhannsdóttir fæddist að Mosfelli. Hún beitti sér fyrir stofnun Hins íslenska kvenfélags 1894 og Hvítabandsins 1895. Hvatti til stofnunar Háskóla Íslands og helgaði líf sitt líknarmálum. Eftir guðsþjónustuna var haldið að Mosfelli og lagður blómsveigur að minnsvarða Ólafíu. Það voru Félags- ráðgjafafélag Íslands, Hvítabandið og Kvenréttindafélag Íslands sem stóðu fyrir því að heiðra minningu þessarar merkiskonu og frumkvöðuls á þessum tímamótum. Í guðsþjónustunni talaði Dr. Sigrún Júlíusdóttir um Ólafíu og það sem einkenndi mannúðarstörf hennar. Sr. Henning Emil Magnússon þjónaði. Kór Lágafellssóknar söng undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar organista. Oddný Sigrún Magnúsdóttir var fulltrúi Lágafellssóknar þegar kom að því að leggja blómsveiginn að minnis- merki Ólafíu. 160 ár liðin frá því Ólafía Jóhannsdóttir fæddist • Ólafíumessa haldin í Lágafellskirkju Blómsveigur lagður að minnis- varða um Ólafíu Jóhannsdóttur við minnisvarðann að mosfelli

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.