Mosfellingur - 09.11.2023, Side 12
- Frítt, frjáls og óháð bæjarblað12
Mosfellingurinn og þúsundþjalasmiðurinn
Eyþór Wöhler hefur gefið út sína fyrstu bók
og ber hún heitið Frasabókin.
Frasabókin er samansafn rúmlega þús-
und frasa, þar má finna ýmis snjallyrði, orð-
tök og slanguryrði sem geta glatt alla. Eyþór
skrifaði bókina með félaga sínum Emil Erni
Aðalsteinssyni og vonast rithöfundarnir
ungu til þess að bókin reynist skemmtileg
og hnyttin en jafnframt fræðandi.
„Markmið okkar með útgáfu bókarinnar
er fyrst og fremst að gleðja okkur og aðra
en vonandi í leiðinni að brúa ákveðið kyn-
slóðabil og fræða landsmenn,“ sagði Eyþór
þegar Mosfellingur gaf sig á tal við hann.
Talsverður munur milli kynslóða
„Við Emil höfum tekið eftir hversu miklu
getur munað í málfari og orðalagi milli
kynslóða. Það er auðvitað ærið verkefni að
finna út hvar munurinn liggur og hvernig
hann brýst fram en með útgáfu bókarinnar
náum við að skýra út fjölmarga nýmóðins
frasa og snjallyrði. Þó að íslenskan sé nær
mállýskulaus þá líður okkur stundum
þannig að það séu mismunandi mállýskur,
munurinn á því hvernig við tölum saman-
borið við eldri kynslóðir er talsverður.“
Rithöfundarnir telja að bókin komi út á
góðum tíma þar sem dvínandi málkunnátta
ungs fólks hefur verið í brennidepli síðast-
liðin ár. Þeir vonast til að geta hjálpað ung-
mennum að meta mikilvægi íslenskunnar.
Líkir íslenskunni við gamla bifreið
„Íslenskt tungumál er eins og gamall
bíll, það rúllar ekkert endalaust áfram án
þess að hugsa um það. Það er mikilvægt
að smyrja, setja í skoðun og hugsa vel um
tungumálið. Það má alveg setja uppfærslur
í málið en svo lengi sem það passar við, líkt
og á við í gömlu bifreiðinni,“ segir Eyþór
sposkur á svip.
Það er ekki langt síðan að bókin kom
út en þeir segja bókina hafa fengið góðar
móttökur. „Við höfum meðal annars hald-
ið fyrirlestra í menntaskólum þar sem við
ræddum við nemendur um þróun íslensk-
unnar. Þetta framtak hefur fengið virkilega
góðar móttökur en við höfum verið bókaðir
á fund með Katrínu Jakobsdóttur og bíðum
spenntir eftir að tala við forsætisráðherra á
tandurhreinni og nýmóðins íslensku,“ segir
Eyþór að lokum.
Beauty Star
Munið að bóka
tímanlega fyrir jólin
Gjafakort / Gjafaöskjur
Snyrtistofan BeautyStar, Sunnukrika 3, s. 868-7827
Starfsárið hjá Lionsklúbbnum Úu fer vel af
stað. Nýtt starfsár hófst í ágúst og er fundað
í hverjum mánuði.
Á fund í október kom góður gestur, Hekla
Guðmundsdóttir eigandi Bandvefslosunar
ehf og Body Reroll æfingakerfisins, sem
fræddi fundargesti um bandsvefslosun.
Um miðjan október létu félagar sköpunar-
gáfuna blómstra og fóru á Noztru skapandi
smiðju og kaffihús þar sem félagar áttu
rólega stund með góðu spjalli og málaðir
voru hlutir úr keramik.
Október er sjónverndarmánuður og þá
hefur verið fjallað um gildi hvíta stafsins
í fréttamiðlum og boðið til opins fræðslu-
fundar í húsi Blindrafélagsins.
Mánuður sykursýki
Nóvember er mánuður sykursýki. Þá hafa
Lionsklúbbar gefið almenningi kost á því að
fá ókeypis blóðsykursmælingu. Munu heil-
brigðisstarfsmenn sjá um mælingarnar og
er læknir á staðnum sem veitir upplýsingar
ef þörf krefur. Lionsklúbbarnir í Mosfellsbæ
munu bjóða upp á mælingu í Bónus Mos-
fellsbæ á Alþjóðlega sykursýkisdeginum
þann 14. nóvember kl. 17-19.
Lions lætur sig umhverfismál varða og
hefur sinnt þeim á ýmsan hátt. Úur útbúa og
selja á aðventunni vistvænar leiðisgreinar
og er það þeirra stærsta fjáröflun. Því verk-
efni hefur verið vel tekið og ekki síst þar sem
mikil umræða hefur verið um loftslagsmál
og þörf á minnkandi kolefnisspori.
Öll innkoma af sölunni fer í styrktarsjóð
klúbbsins sem fer svo til góðgerðamála.
Klúburinn er á Facebook „Lionsklúbbur-
inn Úa“.
Nýtt starfsár hjá Úunum
hafið með krafti
Lionsklúbburinn fundar reglulega • Vistvænar leiðisgreinar
Sögur útgáfa gefur út Frasabókina
og er hægt að nálgast hana í
flestum betri verslunum landsins og inn
á vef útgáfunnar, www.sogurutgafa.is.
Gefa út Frasabókina • Brúa kynslóðabil • Góðar viðtökur
Frumraun Eyþórs
á ritvellinum
emil örn og
eyþór wöhler