Mosfellingur - 09.11.2023, Side 36
Í eldhúsinu
Rannveig og Bjarni skora á Ingu Ástu Bjarnadóttir að deila með okkur næstu uppskrift í Mosfellingi
Mildur kjúklingaréttur
- Heyrst hefur...36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Elías Þór Viktorsson fæddur 12. júní
2023, foreldrar eru Viktor Guðjónsson
og Elísa Kristín Sverrisdóttir, hann á
einn bróður, Alexander Emil.
Rannveig Eyberg Stefnisdóttir og Bjarni
Ásgeirsson deila að þessu sinni með okkur
Mosfellingum uppskrift að mildum kjúklinga-
rétti.
Hráefni
• 1 krukka Butter Chicken (PATAK‘S)
• 1 krukka Mango Chutney (SHARWOOD‘S)
• ¼ l rjómi
• salt og pipar
• 25 g íslenskt smjör
• rifinn ostur
• 6-8 bitar kjúklingur
Leiðbeiningar
Snöggsteikið kjúklinginn á heitri pönnu.
Setjið kjúklinginn í eldfast mót. Hitið saman
í potti Butter Chicken og Mango Chutney
sósurnar. Bætið úti í rjóma og salti og pipar
eftir smekk. Hellið síðan sósunni yfir kjúkling-
inn. Hitið í ofni í ca 40 mín við 160-170°C.
Stráið yfir rifnum osti í restina og bakið í ca
10 mín til viðbótar.
Meðlæti
Hrísgrjón, hvítlauksbrauð og gott ferskt salat.
Verðiykkuraðgóðu!
ER MIKIÐ
AÐ GERA?
Nýlega hlustaði ég á flottan fyrirlestur
þar sem farið var inn á álagsmenn-
ingu sem ríkir á Íslandi. Það er alltaf
svo mikið að gera hjá öllum að það er
orðin lykilsetning þegar við hittum
einhvern út í búð.
„Hæ hvað segir þú gott?“
„Hæ, bara fínt en þú?“
„Jú bara gott, er ekki bara nóg að
gera og svona? ...“
Hvernig dettum við alltaf í þennan
gír og síðan hvenær var þetta töff?
Það er mikið að gera hjá öllum en
það sem mér finnst vera mikið að
gera gæti verið lítið að gera fyrir þér.
Við dettum svo oft í þennan meting
ómeðvitað um hvort sé meira að gera
hjá mér eða þér.
Mig langar að skora á þig, kæri
lesandi, að hugsa um þetta næst þegar
þú hittir einhvern út í búð eða bara
á förnum vegi. Hvað getur þú spurt
um annað en hvort það sé ekki nóg
að gera eða mikið að gera. Ef þú færð
spurningu um hvort það sé mikið
eða nóg að gera þá skora ég á þig að
breyta um umræðuefni.
Nú eru jólin að ganga í garð og
þau einkennast oft af „mikið að
gera dögum“. Getum við skoðað það
aðeins, þessi tími á að vera nota-
legur tími. Við þurfum ekki að baka
allar smákökusortir eða mæta á alla
jólatónleika, við getum líka bara tekið
rólega stund heima með fjölskyldu
eða vinum. Frestunaráráttan að
kaupa jólapakka kemur líka sterk inn,
ég skora á þig að kaupa allavega einn
pakka í nóvember.
Njótum stundanna með fólkinu
okkar og minnkum álagið á okkur,
skoðum hvað við erum að gera og
tökum út þann óþarfa sem er yfir
okkur, hvað finnst okkur gaman að
gera og höldum því inni. Förum vel
með okkur!
Embla líf
Heyrst Hefur...
...að búið sé að loka kaffihúsinu Gloríu
í Bjarkarholtinu.
...að Steindi og Auddi verði veislu-
stjórar á Þorrablóti Aftureldingar
20. janúar 2024.
...að Herbert Guðmundsson verði í
Bankanum á laugardaginn.
...að Gísli Palli hafi orðið fimmtugur
á dögunum.
...að Sigurður íþróttafulltrúi sé að
hætta störfum á næstu vikum.
...að mest sóttu ferðamannastaðir
í Mosó samkvæmt nýjum lista
séu Gljúfrasteinn, Helgufoss og
Lágafellslaug.
...að búið sé að breyta stóra fletti-
skiltinu neðan Krikahverfis í Led
auglýsingaskilti.
...að Afturelding hafi selt heimaleik-
inn sinn í Evrópukeppninni og leiki
því báða leiki næstu umferðar í
Slóvakíu í lok mánaðar.
...að Rokkkór Íslands verði með Queen
sing-along í Hlégarði föstudaginn
17. nóvember.
...að Eyþór Wöhler sé búinn að gefa út
sína fyrstu bók, Frasabókina.
...að IceGuys-þættirnir hafi verið
teknir upp í Álafosskvos að miklu
leyti.
...að mosfellska rauðvínið Zenato hafi
unnið Gyllta glasið annað árið röð.
...að mesti samdráttur í fjölda íbúða í
byggingu á landinu sé í Mosfellsbæ,
45,5%, samkvæmt Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun.
...að búið sé að leggja til á Alþingi að
Kjósarhreppur verði ekki lengur
kenndur við Mosfellsbæ og fái sitt
eigið póstnúmer.
...að hinn vinsæli basar félagsstarfs
eldri borgara fari fram á Hlaðhömr-
um 25. nóv.
...að Kótilettukvöld handboltans verði
haldið á föstudaginn.
...að knattspyrnumaðurinn Ásgeir
Marteins sé búinn að rifta samningi
sínum við Aftureldingu.
...að líkamsræktarstöðin Elding muni
ekki opna á nýjum stað eftir lokun
að Varmá.
...að hið vinsæla Bókmenntahlaðborð
fari fram á bókasafninu miðviku-
dagskvöldið 15. nóvember.
...að einn heppinn Mosfellingur hafi
unnið 100 þúsund kall í Lottó með
miða úr Lukku láka.
...að aðeins 28% Mosfellinga séu
jákvæðir í garð borgarlínunnar
samkvæmt skoðanakönnun sem
Prósent framkvæmdi.
...að Steindi verði með Kahoot-
PubQuiz í kvöld í Bankanum.
...að tillaga borgarfulltrúa VG um að
sameina Mosfellsbæ og Reykjavík
hafi verið skotin niður.
...að Villý og Gunni Birgis eigi von á
barni á nýju ári.
...að Axel Lár sé 35 ára í dag.
mosfellingur@mosfellingur.is
Hjá rannsý og bjarna
davíð, Karl og
ragnhEiður
Bæjarróni ársins 2023
Bæjarróni ársins 2023 hefur verið útnefndur og er það Karl Hjartarson
sem hlýtur nafnbótina eftirsóttu. Á myndinni má sjá Karl taka við bikar
úr höndum Davíðs B. Sigurðssonar forseta Rónafélags Mosfellsbæjar og
Ragnheiðar Ríkharðsdóttur gefanda verðlaunanna.