Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 4
120 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
127
Edda Dufþaksdóttir, Eva Jacobsen, Ása Valgerður Eiríksdóttir, Óla Kallý Magnúsdóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Þórhallur Ingi Halldórsson
Kvikasilfur í hári barnshafandi kvenna á höfuðborgarsvæðinu
Kvikasilfur er þungmálmur sem er náttúrulegur en losast út í umhverfið við eldgos,
brennslu jarðefnaeldsneytis og námuvinnslu. Kvikasilfur safnast fyrir í hafi og vötnum
og umbreytist í metýlkvikasilfur. Þetta lífræna form hvarfast auðveldlega við prótein og
magnast því styrkur efnisins upp og verður mestur í tegundum sem eru hærra í fæðu-
keðjunni. Metýlkvikasilfur frásogast í mönnum, fer auðveldlega bæði yfir blóð-heila
þröskuld og í gegnum fylgju. Hærri styrkur í naflastrengsblóði miðað við blóð móður
bendir til meiri útsetningar hjá fóstri.
F R Æ Ð I G R E I N A R
3. tölublað · 109. árgangur · 2023
123
Einar Stefán Björnsson
Klínískar rannsóknir og
mikilvægi þess að hafa
eigin gögn
Góður jarðvegur er til þess
að stunda klínískar rann-
sóknir á Íslandi. Vöruhús
gagna á Landspítala er fullt
af verðmætum upplýsingum
og gott að stunda fram-
skyggnar rannsóknir ef vilji
er fyrir hendi. Innviðir eru að
mörgu leyti góðir en auðvit-
að þyrfti meira fjármagn við
rannsóknir, sjúklingar kerfis-
bundið teknir inn í rannsókn-
ir og upplýsingar skráðar á
framskyggnan hátt.
L E I Ð A R A R
125
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Matvæla- og fæðu-
öryggi á meðgöngu
Fiskur er ráðlagður sem
hluti af næringarríku matar-
æði á meðgöngu, enda góð
uppspretta margra mikil-
vægra næringarefna sem
hafa hlutverki að gegna við
fósturvöxt og taugaþroska.
Í ráðleggingunum er mælt
með að fiskur sé á borðum
tvisvar til þrisvar sinnum í
viku.
Nýrnahettur (adrenal glands) eru ofan á hvoru nýra og búa til hormón sem
eru mannskepnunni alger nauðsyn í blíðu og stríðu, strax í móðurkviði og
ævina á enda. Myndin sýnir hvernig þær sitja í kviðarholinu.
141
Krister Blær Jónsson, Eiríkur Orri Guðmundsson, Margrét Sigurðardóttir, Jón Jóhannes Jónsson,
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
Sjúkratilfelli: Lyfjaþolinn háþrýstingur - hjáhnoðuæxli
Karlmaður var með þriggja áratuga sögu um lyfjaþolinn háþrýsting, svitaköst, hjart-
sláttaróþægindi og járnbragð í munni. Þrátt fyrir endurteknar komur á bráðamóttöku og
uppvinnslu á göngudeild var undirliggjandi orsök ekki greind. Síðustu ár hafði háþrýsting-
ur versnað og hann þróað með sér sykursýki af tegund 2. Uppvinnsla leiddi í ljós 3 cm hjá-
hnoðuæxli utan nýrans. Síðan æxlið var tekið er sjúklingurinn lyfja- og einkennalaus.
Krómfíkla- og hjáhnoðuæxli eru sjaldgæf orsök háþrýstings, en mikilvægt er að greina
þau vegna hættulegra fylgikvilla.
Á FORSÍÐU
134
Hera Birgisdóttir, Thor Aspelund, Reynir Tómas Geirsson
Mæðradauði á Íslandi 1976-2015
Mæðradauði á Íslandi er með því lægsta sem þekkist. Konur létust vegna meðgöngunnar,
en einnig af versnun undirliggjandi sjúkdómsástands eða ótengdum ástæðum. Árvekni
þarf sem fyrr vegna kvenna í áhættuhópum og gagnvart alvarlegum fylgikvillum þungun-
ar og barneigna. - Á Íslandi var mæðradauði algengur í fátæku samfélagi fyrri alda af
gamalþekktum ástæðum, það er að segja asablæðingum, fæðingakrömpum og barns-
farasótt. Veruleg fækkun varð loks eftir miðja 19. öld.
M
ynd/shutterstock