Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 11
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 127 R A N N S Ó K N Edda Dufþaksdóttir1 næringarfræðinemi* Eva Jacobsen1 næringarfræðinemi* Ása Valgerður Eiríksdóttir2 lífeindafræðingur Óla Kallý Magnúsdóttir3 næringarfræðingur Kristín Ólafsdóttir2 lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði Þórhallur Ingi Halldórsson1 faraldsfræðingur og prófessor *framlag þessara höfunda var jafnt við ritun greinarinnar. 1Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, 2Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, læknadeild Háskóla Íslands, 3Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu. Fyrirspurnum svarar Þórhallur Ingi Halldórsson, tih@hi.is Á G R I P BAKGRUNNUR Rannsóknir frá Færeyjum hafa sýnt fram á skýr tengsl milli útsetningar móður fyrir kvikasilfri á meðgöngu og taugaþroska fósturs og hafa Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) og Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (US-EPA) lagt til mismunandi heilsuverndarmörk fyrir neyslu kvikasilfurs. Margar þjóðir hafa gefið út ráðleggingar um fiskneyslu barnshafandi kvenna og framkvæma reglulegt eftirlit með kvikasilfri í lífsýnum. Fáar slíkar mælingar hafa verið gerðar hér á landi. AÐFERÐIR Slembidreifð íhlutandi rannsókn meðal 120 barnshafandi kvenna á höfuðborgarsvæðinu. Íhlutunarhópurinn fékk ítarlega fræðslu um fiskneyslu á meðgöngu en viðmiðunarhópurinn almenna fræðslu hjá mæðravernd. Styrkur kvikasilfurs í hári var mældur við upphaf og lok rannsóknar, hann borinn saman við heilsuverndarmörk og tengsl við fiskneyslu voru metin. NIÐURSTÖÐUR Meðalstyrkur (staðalfrávik) kvikasilfurs í hári við upphaf rannsóknar var 0,48 μg/g (0,33) sem er undir þeim styrk í hári sem heilsuverndarmörk EFSA byggja á (1,8 μg/g) en 5% þátttakanda var yfir þeim styrk í hári sem heilsuverndarmörk US-EPA byggja á (1,1 μg/g). Skýr tengsl (p<0,001) sáust milli fiskneyslu og styrks kvikasilfurs í hári sem var að meðaltali 0,25 mg/g hjá þeim sem borðuðu fisk ≤3/mánuði en 0,80 mg/g hjá þeim sem borðuðu fisk 3-4 sinnum í viku. Þær konur sem sögðust hafa borðað hákarl nýlega (3%) mældust með tiltölulega há gildi. Íhlutunin leiddi ekki til marktækrar breytingar á styrk kvikasilfurs við lok rannsóknar. ÁLYKTUN Styrkur kvikasilfurs í hári barnshafandi kvenna er innan þeirra heilsuverndarmarka sem gefin hafa verið út í Evrópu. Rétt væri að skerpa enn frekar á ráðleggingum varðandi neyslu mengaðra tegunda eins og hákarls. Kvikasilfur í hári barnshafandi kvenna Inngangur Kvikasilfur er þungmálmur sem finnst náttúrulega í umhverfinu en losast einnig út í umhverfið meðal annars við eldgos, brennslu jarðefnaeldsneytis og námuvinnslu.1 Kvikasilfur sem losað er með þeim hætti safnast á endanum fyrir í hafi og vötnum þar sem örverur umbreyta því í metýlkvikasilfur. Þetta lífræna form efnisins hvarfast auðveldlega við prótein og magnast því styrk- ur efnisins upp og verður mestur í tegundum sem eru hærra í fæðukeðjunni.2 Metýlkvikasilfur frásogast greiðlega í mönnum (~90%), fer auðveldlega bæði yfir blóð-heila þröskuld og í gegnum fylgju.3 Hærri styrkur í naflastrengsblóði miðað við blóð móður bendir til meiri útsetningar hjá fóstri.3 Há tíðni greininga alvarlegra taugasjúkdóma í Minamata-flóa í Japan um miðja síðustu öld, sem rakin var til neyslu á sjávar- fangi sem hafði mengast af kvikasilfri vegna losunar affallsvatns frá nærliggjandi verksmiðju, varpaði ljósi á mögulega skaðsemi kvikasilfurs í sjávarfangi. Rannsóknir á þessu slysi sýndu fram á greinileg áhrif á taugaþroska fósturs í tilvikum þar sem lítil merki eitrunar voru sjáanleg hjá móður.4 Síðari rannsóknir á áhrifum metýlkvikasilfurs á taugaþroska barna hafa einkum beinst að útsetningu á meðgöngu á minna menguðum svæðum þar sem neysla sjávarfangs er algeng. Í framskyggnum ferilrannsóknum frá Færeyjum á börnum sem fæddust í kringum 1990 komu fram

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.