Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 27

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 27
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 143 S J Ú K R A T I L F E L L I Í aðgerðinni var lagður skurður undir vinstri rifjaboga og kom- ið inn í frítt kviðarhol. Æxlið var staðsett þétt upp við nýrnaslag- æð og -bláæð og þótti strax ljóst að róttæku brottnámi æxlis varð aðeins náð með því að fjarlægja einnig vinstra nýrað. Þegar verið var að eiga við nýrnabláæðina fór að blæða frá nýrnahettu og því tekin ákvörðun um að fjarlægja einnig nýrnahettuna. Nýrað var losað úr nýrnabeðnum og nýrað, nýrnahettan og æxlið send sem ein heild til vefjagreiningar. Aðgerðin gekk vel og var sjúklingurinn innlagður á gjörgæslu til sólarhringseftirlits. Í aðgerðinni bar á sveiflum í blóðþrýstingi sem héldu áfram við komu á gjörgæslu. Á öðrum degi eftir að- gerð sagðist sjúklingur ekki hafa sofið eins vel í mörg ár, fannst hann loksins geta slakað á. Á þriðja degi útskrifaðist sjúklingur á sjúkrahótel Landspítala, til einnar nætur, við góða líðan. Fastandi normetanefrín eftir aðgerðina reyndist eðlilegt, sjá töflu I. Tafla I. Niðurbrotsefni hormóna í blóði og þvagi. Niðurbrotsefni (frí) 1. Koma* 2. Koma* Eftir aðgerð Viðmiðunarmörk P-3-Methoxýtýramín 533 757 <88 <110 pmól/L P-Metanefrín 185 207 <124 <450 pmól/L P-Normetanefrín 4502 4663 341 <900 pmól/L sÞ-Normetanefrín 2325** <280 nmól/klst 1975** <280 nmól/klst *Koma til innkirtlalæknis **Mælt tvívegis eftir aðra komu Mynd 2.a Tölvusneiðmynd af kvið- arholi, coronal sneið. Slagæð gengur beint frá ósæð og liggur aftan við fyrirferðina. Þessi æð er illa skugga- efnisfyllt milli fyrirferðar og nýrans, mögulega vegna blóðsega. Æðin bungar undan fyrirferðinni. b Tölvusneiðmynd af kviðarholi, axial sneið. Milli ósæðar og nýra er fyrirferð sem mælist um 3,1 x 2,8 x 2,6 cm. Ekki greinist áberandi slagæðafylling í fyr- irferðinni þó hún hlaði að því er virðist randstætt upp. Vefjagreining sýndi hjáhnoðuæxli í vinstra nýrnaporti. Vinstri nýrnahetta var án greinanlegra sjúklegra breytinga og vinstra nýra með nýrnahersli, mynd 3. Fjölgenarannsókn meingena framkvæmd með tilliti til króm fíkla- og hjáhnoðuheilkenna (Hereditary Paraganglioma - Pheochromocytoma Panel Plus), þar sem 11 tengd gen voru skoðuð, skilaði neikvæðri niðurstöðu. Í framhaldi var gerð stökk- breytingaleit í útröðum en engin erfðaorsök fannst. Eftir útskrift leitaði sjúklingur í fjórgang á bráðamóttöku Landspítala sem leiddi að lokum til greiningar á garnastíflu vegna lokaðrar þarmalykkju og innvortis þarmahauls í efri vinstri fjórðungi. Var sjúklingurinn því tekinn til aðgerðar í sam- vaxtarlosun og útskrifaðist við góða líðan. Í eftirfylgd hjá innkirtlalækni nokkrum vikum eftir aðgerð var sjúklingurinn lyfja- og einkennalaus. Sjúklingur sagði sér Mynd 3.a H/E litun, 2,5x stækkun. Í neðra vinstra horni sést æxlisvöxtur og hægra megin sést stór æð sem tengdi æxlið við nýra. Í æxlisvexti sjást hópar af frumum með ríkulegt granulert umfrymi og kjarna sem hafa lítil kjarna- korn. Ekki sést greinileg mítósuaukning. b Chromogranin ónæmislitun. Sýnir jákvæði í æxlisfrumum.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.