Læknablaðið - 01.03.2023, Page 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 123
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Góður jarðvegur er til þess að stunda
klínískar rannsóknir á Íslandi.
Vöruhús gagna á Landspítala er fullt
af verðmætum upplýsingum og gott
að stunda framskyggnar rannsóknir ef
viljinn er fyrir hendi. Innviðir að mörgu
leyti góðir en auðvitað þyrfti meira
fjármagn að koma til við rannsóknir sem
krefjast þess að sýni séu tekin.
doi 10.17992/lbl.2023.03.731
Það er kunnara en frá þurfi að segja að háskóla-
sjúkrahús gegna þríþættu hlutverki. Í fyrsta lagi að
bæta heilsu fólks, sem er það hlutverk sem almenn-
ingur skynjar best, í öðru lagi að mennta eða þjálfa
heilbrigðisstarfsfólk og síðast en ekki síst að stunda
rannsóknir. Á okkar háskólasjúkrahúsi eru það
fyrst og fremst klínískar rannsóknir sem eru fyrir-
ferðarmestar. Rannsóknir frá Bandaríkjunum sýna
að horfur sjúklinga sem eru í meðferð á kennslu-
eða háskólasjúkrahúsum eru betri en hjá sjúkling-
um með sömu sjúkdóma á öðrum sjúkrahúsum þar
sem ekki er stunduð rannsóknarvinna1,2 og meðferð
ekki endilega dýrari.2
Á síðustu áratugum hefur það færst í vöxt að
læknar stundi doktorsnám á Íslandi og hefur það
verið mikil hvatning fyrir marga að drífa áfram
verkefni, sækja um styrki og klára verkefni. Mikl-
ir möguleikar eru í að stunda klínískar rannsóknir
á Íslandi. Vöruhús gagna á Landspítala er fullt af
verðmætum upplýsingum og góður möguleiki að
stunda framskyggnar rannsóknir ef viljinn er fyr-
ir hendi. Innviðir að mörgu leyti góðir en auðvitað
þyrfti meira fjármagn að koma til við rannsóknir
sem krefjast þess að sýni séu tekin og sjúklingar
kerfisbundið teknir inn í rannsóknir og upplýs-
ingar skráðar á framskyggnan hátt. Það var mikið
framfaraspor þegar vísindaverkefni læknanema
á þriðja ári voru tekin upp í læknadeild og eiga
þeir sem stóðu að þeirri nýbreytni mikinn heiður
skilinn. Margir þriðja árs nemar hafa fengið áhuga
fyrir verkefninu, unnið það í launaðri vinnu næstu
sumur á milli ára í læknisfræðinni og ef mikil vinna
er lögð í verkefnið er komið efni í doktorsverkefni
innan fárra ára.
Að byrja snemma á rannsóknum í læknanáminu
gefur mikla möguleika miðað við að byrja að loknu
læknaprófi. Þeir íslensku læknar sem útskrifast frá
erlendum læknaskólum (um það bil 40% allra ís-
lenskra lækna sem útskrifuðust á síðustu þremur
árum), missa því miður af þessu tækifæri þar sem
þetta er ekki hluti af þeirra námskrá. Það er mjög
mikilvægt að stjórnvöld og þeir sem ábyrgir eru fyr-
ir fjárveitingum til heilbrigðismála sjái sóma sinn í
því að tryggja það að hægt sé að fjölga læknanem-
um, sem krefst fleiri kennara við læknadeild HÍ og
rýmri aðstöðu til kennslu.
Að stunda klínískar rannsóknir gerir það að
verkum að menn læra samtímis meira í klínískri
læknisfræði og þjálfa krítíska hugsun. Að læra
aðferðafræðina er nauðsynlegt til að læknar geti
skrifað og birt athuganir sínar. Að birta vel skrif-
uð og áhugaverð sjúkratilfelli krefst þjálfunar og er
til þess fallið að auka þekkingu í klínískri læknis-
fræði. Spurningar sjúklinga geta verið kveikja að
rannsóknum og að sjá um sjúklinga með óvanalega
sjúkdómsmynd getur leitt til rannsókna, til dæmis
sjúklingur með brisbólgu af völdum blóðþurrðar
sem skapaði þá nýju þekkingu að um það bil 20%
sjúklinga á gjörgæslu hafa brisbólgu vegna blóð-
þurrðar (ischemic pancreatitis).3 Mikilvægt er að
skapa þekkingu sem nýtist í klínískri læknisfræði
á Íslandi því að ekki er hægt að treysta „UpToDate“
í öllum tilfellum og þá er hægt að kanna hvað ís-
lenskar rannsóknir hafa sýnt.
Klínískar íslenskar rannsóknir
rata líka í tímarit í fremstu röð.4,5
Nákvæm svipgerð, gagnagrunn-
ar og lýðgrundaðar rannsóknir
skapa þannig mikla möguleika.
Ef ungir læknar fá áhuga á
rannsóknum og stunda þær af
kappi verða þeir fljótlega sér-
fræðingar á þessu sviði og geta
farið að fræða hina eldri. Það er
ótrúlega skemmtilegt að stunda
klínískar rannsóknir og sem leið-
beinandi að kynnast hæfum og
áhugasömum unglæknum sem
þróa frumstæðar hugmyndir leiðbeinandans og
verða oft á tíðum betri en leiðbeinandinn og taka
keflið áfram. Það er klárt mál að menntun lækna
þarfnast fólks sem hefur þekkingu og þjálfun í
rannsóknum. Rannsóknir eru grundvöllur að nýj-
um vinnubrögðum. Það er skylda lækna á íslensku
háskólasjúkrahúsi að nýta möguleika sem þar leyn-
ast.
Klínískar rannsóknir og mikilvægi
þess að hafa eigin gögn
Clinical research and the
importance of having your
own data
Einar S. Bjornsson
MD PhD
Professor and Chief of the
Department of Internal Medicine,
Landspitali University Hospital
and Faculty of Medicine,
University of Iceland
Einar S. Björnsson
yfirlæknir á Landspítala,
prófessor og forstöðu-
maður fræðasviðs
lyflækninga við
læknadeild Háskóla
Íslands
Heimildir
1. Burke LG, Frakt AB, Khullar D, et al. Association Between Teaching
Status and Mortality in US Hospitals. JAMA 2017; 317: 2105-13.
2. Burke LG, Khullar D, Zheng J, et al. Comparison of Costs of Care
for Medicare Patients Hospitalized in Teaching and Nonteaching
Hospitals. JAMA Netw Open 2019; 2: e195229.
3. Baldursdottir MB, Andresson JA, Jonsdottir S, et al. Ischemic pancrea-
titis is an important cause of acute pancreatitis in the Intensive Care
Unit. J Clin Gastroenterol 2023; 57: 97-102.
4. Thorsteinsdóttir S, Gislason GK, Aspelund T, et al. Prevalence of
smoldering multiple myeloma based on nationwide screening. Nat
Med 2023 Feb 6.
5. Ingason AB, Hreinsson JP, Agustsson AS, et al. Rivaroxaban is associ-
ated with higher rates of gastrointestinal bleeding than other direct
oral anticoagulants: A nationwide propensity score–weighted study.
Ann Intern Med 2021; 174: 1493-502.