Læknablaðið - 01.03.2023, Page 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 125
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Matvæla- og fæðuöryggi
á meðgöngu
Hugtökin fæðuöryggi og matvælaöryggi hafa verið
töluvert í umræðunni undanfarin misseri. Þó svo
að hugtökin þyki keimlík hafa þau mismunandi
þýðingu. Á vef matvælaráðuneytisins má finna eft-
irfarandi skilgreiningar á hugtökunum: 1
Fæðuöryggi: Þegar allt fólk, á öllum tímum, hefur raunveru-
legan og efnahagslegan aðgang að nægum, heilnæmum og nær-
ingarríkum mat sem fullnægir þörfum þess til að lifa virku og
heilsusamlegu lífi.
Matvælaöryggi: Þegar matvæli eru örugg til neyslu. Matur
er meðhöndlaður, matreiddur og geymdur þannig að hætta á
matarsjúkdómum er í lágmarki. Matvæli eru varin fyrir sýk-
ingarvöldum og efnasamböndum sem valdið geta neytendum
heilsutjóni.
Grein sem birtist í þessu hefti Læknablaðsins tengist
matvælaöryggi, en í rannsókninni voru gerðar
mælingar á styrk kvikasilfurs í hársýnum frá barns-
hafandi konum. Fyrstu höfundar greinarinnar eru
Edda Dufþaksdóttir og Eva Jacobsen, nemendur í
næringarfræði, sem unnu greinina í samstarfi við
þverfaglegan hóp sérfræðinga. Matvælaöryggi er
sérstaklega mikilvægt á meðgöngu. Að sama skapi
er aðgangur að heilnæmum og næringarríkum mat
nauðsynlegur og fæðuöryggi því einnig gríðarlega
mikilvægt á þessu viðkvæma tímabili. Bæði hug-
tök endurspeglast í ráðleggingum um mataræði
barnshafandi kvenna.2 Þar er fjallað um mikilvægi
góðrar næringar, en einnig er lögð mikil áhersla á
matvælaöryggi, bæði með tilliti til sýkingavarna en
einnig ýmissa efnasambanda (meðal annars þung-
málma) sem geta verið skaðleg fóstrinu.2
Fiskur er dæmi um fæðutegund sem er ráðlögð
sem hluti af næringarríku mataræði á meðgöngu,
enda góð uppspretta margra mikilvægra næring-
arefna sem hafa hlutverki að gegna við fósturvöxt
og taugaþroska.2,3 Í ráðleggingunum um mataræði
á meðgöngu2 er mælt með að fiskur sé á borðum
tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Á sama tíma og
fiskur er góð uppspretta næringarefna á borð við
prótein, joð, selen og langar ómega-3 fitusýrur get-
ur hann borið með sér þungmálma, sér í lagi þær
tegundir sem eru ofarlega í fæðukeðjunni. Er það
mjög ánægjulegt að sjá í grein þeirra Eddu, Evu og
félaga að styrkur kvikasilfurs í hári kvenna sem
sögðust borða fisk jafnvel þrisvar til fjórum sinnum
í viku var innan viðmiða sem Evrópska matvæla-
öryggisstofnunin setur. Niðurstöðurnar má túlka á
þann hátt að það séu hverfandi líkur á að fiskneysla
um og jafnvel aðeins yfir núverandi ráðleggingum
um fiskneyslu (tvisvar til þrisvar sinnum í viku)
doi 10.17992/lbl.2023.03.732
Fiskur er ráðlagður sem hluti af
næringarríku mataræði á meðgöngu,
enda góð uppspretta margra
mikilvægra næringarefna sem hafa
hlutverki að gegna við fósturvöxt
og taugaþroska. Í ráðleggingunum
er mælt með að fiskur sé á borðum
tvisvar til þrisvar sinnum í viku.
Food safety and food
security during pregnancy
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Professor at the University
of Iceland and Head of
Department of Clinical Nutrition
at Landspítali-National
University Hospital
Ingibjörg Gunnarsdóttir
prófessor í næringarfræði
við Háskóla Íslands og
deildarstjóri næringastofu
Landspítala
hafi áhættu í för með sér. Hins vegar benda niður-
stöðurnar til þess að það gæti verið ástæða ∆127til
að gera því betri skil í núverandi ráðleggingum
hvers vegna skuli varast neyslu á tegundum ofar-
lega í fæðukeðjunni (sérstaklega hákarli) á með-
göngu. Telja höfundar jafnvel þörf á að kynna ráð-
leggingarnar betur fyrir öllum konum sem geta
orðið barnshafandi í ljósi þess að helmingunartími
kvikasilfurs er langur. Nýlegar rannsóknir benda
til þess að hluti íslenskra kvenna hefji meðgöngu
með joð- og D-vítamínskort 3,4 og ýmislegt bendir til
þess að mikilvægt sé að leiðrétta til dæmis joðskort
áður en konan verður barnshafandi.5 Það gæti því
verið margvíslegur ávinningur af því að leggja
aukna áherslu á mikilvægi næringar og heilnæmi
matvæla fyrir konur sem geta orðið barnshafandi.
Í Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030 er
meðal annars lögð áhersla á matvælaöryggi, en
einnig gæði og heilnæmi matvæla. Tillaga til þings-
ályktunar liggur nú fyrir um að unnið verði sam-
kvæmt matvælastefnu til ársins 2040
og lögð er fram framtíðarsýn varðandi
matvælaframleiðslu. Um metnaðarfulla
sýn er að ræða og full ástæða til að gera
sér vonir um að mikilvægum verkefn-
um sem tengjast matvæla- og fæðuör-
yggi verði hrint í framkvæmd. Má þar
nefna mælingar á næringarinnihaldi og
styrk ýmissa efnasambanda í íslenskum
matvælum. Um er að ræða mikilvæga
undirstöðu bæði fæðu- og matvælaör-
yggis og forsendu þess að unnt sé að
setja fram ráðleggingar um fæðuval sem tryggja
hæfilegt magn lífsnauðsynlegra næringarefna, án
þess að hætta sé á því að styrkur óæskilegra efna
geti valdið heilsutjóni.
Heimildir
1. Fæðuöryggi og matvælaöryggi eru ekki það sama. Matvælaráðuneytið,
Reykjavík 2022. stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-
frett/2022/06/24/Faeduoryggi-og-matvaelaoryggi-eru-ekki-thad-sama/
febrúar 2023.
2. Mataræði á meðgöngu. Fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri.
Embætti landlæknis í samstarfi við Matvælastofnun, Mæðravernd,
Þróunarstofu heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Rannsóknastofu
í næringarfræði, Reykjavík 2018. landlaeknir.is/servlet/file/store93/
item35168/Mataraedi%20a%20medgongu%20baekl.2018-5.pdf - febrú-
ar 2023.
3. Adalsteinsdottir S, Tryggvadottir EA, Hrolfsdottir L, et al. Insufficient
iodine status in pregnant women as a consequence of dietary changes.
Food Nutr Res 2020; 64.
4. Magnusdottir KS, Tryggvadottir EA, Magnusdottir OK, et al. Vitamin
D status and association with gestational diabetes mellitus in a pregn-
ant cohort in Iceland. Food Nutr Res 2020; 65.
5. Dineva M, Fishpool H, Rayman MP, et al. Systematic review and meta-
analysis of the effects of iodine supplementation on thyroid function
and child neurodevelopment in mildly-to-moderately iodine-deficient
pregnant women. Am J Clin Nutr 2020; 112: 389-412.