Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 36
152 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 Rafræn viðvera í Kína Bergquist gegnir sem fyrr segir prófess- orsstöðu í Kína. Þar hjálpaði hann við uppsetningu nýrrar rannsóknarstofu og byggingu spítala. „Það var undravert að fylgjast með þessum framkvæmdahraða. Aðeins í Kína er hægt að byggja spítala á um þremur mánuðum eða svo,“ segir hann. „Nú í heimsfaraldrinum hef ég ekki náð að ferðast til Kína en sit rafræna fundi. Ég hlakka til að komast aftur þangað út seinna á árinu.“ Eins og þekkt er leggjast sjúklingar með ME oft í rúmið. Hreyfing, sem læknar mæli gjarnan með, geri þá verri. Bergquist er í rannsóknarhópi sem leitar að lífmerki fyrir ME/CFS. En telur hann að viðeigandi meðferð finnist við ME í framtíðinni? „Já, ég tel það,“ segir hann. „Nú þegar er fjöldi rannsókna í gangi. Það er enn of snemmt að segja til um hvort árangur næst en þær eru þó lofandi,“ segir hann. Rannsóknir á meðferðum hafi ekki farið fram en prófanir á hinu og þessu hafi far- ið fram, auk þess sem sjúklingarnir sjálfir hafi reynt ólík úrræði. „En nú erum við komin á það stig að kerfið er nægilega þroskað til að gera stýrðar klínískar rannsóknir. Ég tel þörf á því og miðað við það sem ég hef séð mun hópur sjúklinga taka vel við en aðrir munu ekki gera það og við verðum að finna annan valkost, lyf eða meðferð, fyr- ir hann.“ Innan 10 ára? „Já,“ segir Jonas Bergquist og hlær. „Það er alltaf öruggt að segja innan 10 ára því innan þess tíma munu hvorki þú eða ég muna eftir þessum orðum.“ En 5-10 ár sé ekki óraunhæft. Þekking sem eykst „Ég hef sjálfur fylgst með í 10 ár og sé stórkostlega aukningu og framfarir í rannsóknum og klínískum skilningi á sjúklingunum. Ég vona því innilega að það verði fyrr. Þá hefur COVID hjálpað okkur því við höfum getað safnað upp- Ásgeir Jóhannesson og Jonas Bergquist á Læknadögum. Mynd/gag „75 ár síðan ég varð veikur en það var 14. nóvemb er 1948,“ sagði Ásgeir Jóhannesson, fyrrum forstjóri Innkaupastofnunar til þrjátíu ára, þegar hann hitti Jonas Bergquist prófessor á Lækna- dögum. Jonas var þá nýkominn frá Akureyri þar sem hann heimsótti gömlu heimavist Menntaskólans á Akureyri þar sem nemendurnir lágu fárveikir af svokallaðri Akureyrarveiki. „Það lá helmingurinn af vistinni,“ segir Ásgeir, sem var heiðursgestur á málþingi um langvarandi eftirstöðvar sýkinga á Læknadögum. „Það veiktust örugglega fleiri því margir voru slappir og melduðu sig ekkert. Ég efast um að ég sé á skrá yfir veika því ég var sendur heim til Húsavíkur,“ segir Ásgeir sem fylgdist með fyrirlestri Jonasar. Ásgeir var á fjórðu önn en hafði aðeins verið 6 vikur í skólanum. Hann varð annar tveggja sem hættu námi vegna eftirkastanna. „Enginn læknir með þekkingu á sjúkdómnum talaði við mig. Þeir vissu ekki hvaða veiki þetta var. Þeir sögðu mér ítrekað að taka aspirín. Það var eina lyfið við veikinni,“ lýs- ir hann og hvernig hann hafi misst allan mátt. Hitastigið verið um 33 gráður á morgnana þegar hann vaknaði. Púlsinn 34-36. Jonas spyr hvort hjartað hafi ekki slegið hraðar þegar hann reis upp á morgnana. „Jú, hjartslátturinn varð hraður,“ sagði Ásgeir áður en hann grípur göngugrindina og gengur í átt að salnum með Jonasi. Pásan frá og fleiri erindi á dagskrá. „Ég náði mér aldrei fyllilega eftir þessi veikindi en hef þó náð að lifa vel.“ Heiðursgesturinn Ásgeir smitaðist fyrir nærri 75 árum lýsingum um sjúklinga og lífmerki,“ segir hann, og að hægt sé að yfirfæra þekkinguna á milli sviða. „Við vitum að þetta er COVID-sýking. Vitum nákvæmlega hvenær sjúklingur- inn smitaðist og höfum getað fylgt sama sjúklingnum og horft á þróunina. Það er einstakt og við ættum að læra af því núna,“ segir hann. „Það mun pottþétt hjálpa ME-samfélaginu.“ Þessi heimsfar- aldur muni því skila einhverju góðu. Bergquist, sem rannsakar nú einnig langtímaáhrif COVID, benti á að 1% af þeim sem smitist glími við langtímaein- kenni. „Það er gríðarlegur fjöldi og hvert og eitt okkar mun þekkja einhvern sem þjáist,“ segir hann. „Sú staðreynd mun skapa samkennd sem smitast yfir á ME og eykur skilning á langtímaáhrifum veirusýkinga.“

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.