Læknablaðið - 01.03.2023, Qupperneq 41
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 157
Hrafnhildur Runólfsdóttir
Dagur í lífi sérnámslæknis
Glæný mynd af Hrafnhildi sem
Auður Katrín Linnet Björnsdóttir tók.
07:30 Stilli vekjaraklukkuna til að
vakna á undan fjölskyldunni, líka um
helgar. Munaður að njóta fyrsta kaffi-
bolla dagsins í ró og næði. Framundan
er helgarvakt á bráðadagdeild lyflækn-
inga – nýrri deild á Landspítala sem
er ætlað að þjónusta sjúklinga með að-
kallandi vandamál á sviði lyflækninga.
Hugmyndin kviknaði þegar ég vann á
COVID-göngudeildinni og stjórnendur
sáu tækifæri til að heimfæra vinnu-
lagið þar yfir á önnur svið. Deildin
sinnir tilvísunum frá læknum innan
og utan Landspítala, meðal annars frá
heilsugæslu og hjúkrunarheimilum.
Hleyp út í bíl 5 mínútur í 9, alltaf á síð-
ustu stundu.
09:00 Yndislegt samstarfsfólkið tekur
brosandi á móti mér - allir mættir og
byrjað að undirbúa daginn. Förum yfir
erindi sem hafa borist síðastliðinn sól-
arhring og forgangsröðum verkefnum.
Lítum yfir stöðuna á bráðamóttökunni
og könnum hvort einhverjir á biðstofunni
gætu komið til okkar. Þar er kona með
tilvísun frá Læknavaktinni vegna gruns
um lungnabólgu sem við bjóðumst til að
sinna, ljúkum við uppvinnslu og hefjum
meðferð. Henni líður fljótlega betur og
fer heim með endurkomutíma á morgun
í sýklalyfjagjöf og endurmat. Fáum líka
til okkar einstakling með krabbamein
og næringarvanda sem þarf vökva í æð
og nýja magasondu. Síminn hringir og
vaktstjórinn á bráðamóttökunni spyr
hvort við getum tekið við manni sem er
með gulu en að öðru leyti við þokkalega
líðan. Blóðrannsóknir leiða í ljós röskun á
lifrarprófum með hækkun á bilírúbíni og
grunurinn beinist fljótlega að sýklalyfja-
meðferð sem hann hóf fyrir rétt um viku.
Ég ræði við vakthafandi meltingarlækni
til að ákvarða næstu skref og fæ tíma fyr-
ir viðkomandi á göngudeild meltingar-
lækninga, en þangað til verður eftirliti
sinnt hér.
12:30 Tími til að grípa matarbita. Hitti
sérnámslæknana sem eru á vakt fyrir
lyflækningateymin um helgina og læt til-
leiðast að setjast niður með þeim í nokkr-
ar mínútur. Frábærir kollegar og líflegar
umræður að vanda.
13:00 Nokkrir sjúklingar hafa bæst við
enda aðflæðið oftast meira þegar líður
á daginn. Sjáum ýmis vandamál, með-
al annars svæsna húðsýkingu, bráðan
nýrnaskaða, nýgreint blóðleysi og grun
um sýkingu í nýra. Reynum að láta allt
ganga hratt og þökk sé góðri samvinnu
við myndgreiningardeildina er unnt að
ljúka öllum rannsóknum fljótt og vel.
Hitti síðan á vakthafandi sérfræðing í lyf-
lækningum og við förum yfir tilfellin og
leggjum drög að meðferðaráætlun. Í þetta
skipti stefnir í að allir skjólstæðingar
okkar komist heim en flestir með bókað
endurmat að morgni.
18:00 Lýk við nóturnar í sjúkraskrá og
hringi síðustu símtölin sem felast í eft-
irliti með líðan, mati á árangri meðferðar
og að upplýsa um niðurstöður rann-
sókna. Líst þannig á einn sjúklinga okkar
að ég bóka hann í skoðun strax morgun-
inn eftir. Skýst svo í ræktina til að klára
hlaupaæfingu dagsins. Góð leið til að
hreinsa hugann og hlusta á hlaðvarpsþátt
The Curbsiders á meðan – að þessu sinni
áhugaverður þáttur um gáttatif.
19:30 Endurnærð eftir æfinguna fer ég
heim í kvöldmat – sushi er það sem hug-
urinn girnist á þessu laugardagskvöldi.
Förum yfir daginn meðan við njótum
matarins og ég sannfæri 5 ára barnið um
að smakka nokkra bita þó hann geri sitt
besta til að streitast á móti. Hann dregur
mig svo fljótlega í leik og umræðu um
búsetusvæði snæhlébarða og ég neyðist
til að grípa í símann til að leita svara við
nokkrum brennandi spurningum. Það
er áskorun að velja laugardagsmyndina
en við sammælumst að endingu um
spennumynd sem unglingurinn á eftir
að sjá. Ég fylgist með en sinni líka rann-
sóknarverkefnum á meðan.
23:30 Vinna á morgun og þreytan sækir
að en að vanda freistast ég til að vaka
lengur því það er svo nærandi að lesa.
Hugsa svo með tilhlökkun til kaffibollans
í fyrramálið þegar ég stilli vekjaraklukk-
una.