Læknablaðið - 01.03.2023, Page 48
164 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
B Ó K A D Ó M U R
að gæta. Í fyrsta lagi blasir við rímþraut.
Bragarhátturinn er tersína: aba bcb cdc …
eins og í Gunnarshólma Jónasar, en jafn-
vel Jónas gafst upp undir lokin („Þar sem
að áður akrar huldu völl“ o.s.frv). Einar
brestur ekki örendið. Hann
eykur sér líka púlsmennsk-
una með norrænni stuðla-
setningu, sem Dante var
vitanlega undanþeginn. Þá er
að nefna táknmál og skírskot-
anir Dantes, sem Einar kemur
vel til skila, stundum með
neðanmálsskýringum. Þrjár
stjörnur tákna von, trú og
kærleika, refur táknar vantrú.
Loks gerir verkið kröfu til list-
rænnar tignar og fagurfræði.
Þennan vanda allan leysir
Einar með láði. Þess mætti geta í framhjá-
hlaupi að Guðmundur Böðvarsson skáld
þýddi fyrstu kviðurnar í Víti, sem komu
út 1968: Guðmundur var gagnrýndur á
þeim dómharða tíma fyrir að nota rím
og stuðla. Engum dytti það í hug í dag.
Erlingur Halldórsson þýddi Gleðileikinn
á prósa.
Einar Thoroddsen hefur raust sína
lystilega:
Faldi lyftir lítil skáldafleyta
og tekst af grimmu hafi ferð á hendur
hún svo megi rórri vatna leita
og syngja mun ég, en um aðrar lendur
hvar andi manna laugar burtu syndir
uns verður er að verða himni sendur…
Fljótlega verður ljóst hve sjónhringur
Dantes er víður. Hann lýsir til dæm-
is suðurkrossinum: – „Geislar á hans
andlit féllu niður / allra þeirra helgu
fjögra hnatta.“ Honum er kunnugt um
tímamismun Flórens og Jórsala og svo
Gangesbyggða. Hann hefur líka veður af
Evklíð: miðjulínugeiri og miðjufjórðungur
hrings eru skilgreindir. Ættanna Capellu
og Montegu er getið eins og hjá Shakespe-
are. Farfuglar dvelja við Níl. Víða kemur
fram víðtæk þekking á sögu fornaldar og
samtíma.
Skírnarfjallið er að hluta heims ósóma-
ljóð. Dante verður tíðrætt um niður-
lægingu mannlífs á Ítalíu („Ó Ítalía, áþjáð
Dante var læknir, einn af oss. Jæja –
hann var að minnsta kosti félagi í hinu
virta gildi lækna og lyfsala í Flórens
(merkilegt nokk fengu skurðlæknar og
bartsnyrtar stundum aðild með sem-
ingi). Flestir telja að formlegt
læknisnám Dantes hafi verið
brotakennt. Þó er líklegt að
hann hafi sótt fyrirlestra hjá
Alderotti í Bologna sem var
einn frægasti læknir samtíðar
sinnar og aðhylltist kenningar
Hippókratesar fremur en
kirkjufeðranna.
Í verkum Dantes kemur
fram læknisfræðileg þekking.
Hann lýsir einkennum malaríu
og ýmissa taugasjúkdóma,
einkum í Vítisbók. Í Divina
Commedia (Víti) er vitnað til frægra lækna
og vísindamanna, svo sem Aristótelesar,
Galens og Hippókratesar, sem hann nefn-
ir hinn mikla eða hávelborna. – Dante er
sem sagt okkar maður.
Er það nýlunda að íslenskur læknir
takist á við stórvirki eins og Gleðileikinn?
Því fer fjarri. Það nægir að minna á tvö
þýðingarafrek úr klassískum bókmennt-
um: Þýðingu Daníels Daníelssonar á
sonnettum Shakespeares og Stefáns
Steinssonar á Gilgamesarkviðu og Rann-
sóknum Heródótosar. Í læknastétt úir og
grúir af góðum þýðendum á lausu máli.
Í þeim hópi má nefna Þórarin Guðnason,
Bjarna Bjarnason, Kristínu Ólafsdóttur,
Jónas Rafnar og Kristin Björnsson.
Skáldin eru mörg, sum hagyrðingar,
önnur stórskáld: Guðmundur Björnsson,
Valgarður Egilsson, Ferdinand Jónsson,
Hjálmar Freysteinsson, Brynjólfur Ingv-
arsson, Gunnar Gunnlaugsson, Páll Ás-
mundsson og fleiri.
Með þýðingu sinni á Gleðileiknum
guðdómlega hefur Einar Thoroddsen
öðlast heiðursess við þessa skáldahirð.
Þegar liggur fyrir þýðing hans á Víti
(Inferno), sem kom út árið 2018, en nú
hefur bæst við bókin um Skírnarfjallið
(Purgatorio). Einar æfði sig raunar á
árum áður á Heine með miklum ágætum,
en með Danteþýðingunni hefur hann
tekist á hendur að klífa veggbrattan
hamar, sem fáum mun fær. Þar er margs
Þórður Harðarson
lyflæknir
Einar þýðir Skírnarfjall Dantes
gistibani / stjórnlaust skip í hæsta veður-
hami“) og hann úthúðar samtímamönn-
um, sem borið hafa ábyrgð á ástandinu.
Hann minnist Aþenu með söknuði.
Einar laumar stundum inn í textann
kátlegum nútímaorðum eins og asna-
skapur, smart og fatta. Hann smíðar líka
ný orð: „við komum á ströndu strama.“
Ég finn ekki orðið stramur í orðabók.
Þekktar ljóðahendingar eru honum akur:
fljót á flúðum duna og köld er sjávar drífa.
Grasa-Gudda kemur við sögu. Allur ber
texti Einars með sér einstakt listfengi og
hugmyndaauðgi.
Dante klífur Skírnarfjallið með Virgil.
Á leiðinni hitta þeir félagar fulltrúa
hinna ýmsu höfuðsynda: hroka, öfund-
ar, reiði, þunglyndis, ágirndar, ofáts
og munúðlífis, og Dante nafngreinir
oftast óvini sína meðal syndaranna. Þó
vekur það undrun hve lítt hann víkur
að þjáningum þeim sem vænta mætti í
hreinsunareldi. Fjallið er biðstöð fremur
en kvalastaður. Fjallsbúar eiga vonina
og iðrunina sameiginlega. Endrum og
sinnum opnast nýju sálartetri leið upp
til himna og þá skelfur fjallið af gleði í
hæverskum jarðskjálfta.
Líklega er kómidían táknmynd ferða-
lags sálarinnar um iðrunarklungur til
drottins náðar. Jarðbundnari skýring
væri sú að Dante hafi gert sér ljóst, að
hin guðlega skipun kaþólsks trúfélags
hefði brugðist tilgangi sínum, það er
dyggðum prýddu samlífi. Skáldið leggur
áherslu á að vilji mannsins sé frjáls, en
misnoti hann frelsið til illverka, má búast
við þjáningaradvöl á Skírnarfjallinu eða
jafnvel í Víti. Þessi guðlega skipan mála
hefur þó alls ekki tryggt farsælt mannlíf
í samtímanum. Þar er allt á vonarvöl og
Dante sér meiri von í fyrirmynd hinn-
ar fornheiðnu Aþenu eða Rómarborg
Ágústusar.
Dante Alighieri eftir
Botticelli. Hann ber einkenn-
iskápu læknafélagsins.
Einar Thoroddsen þýðandi og læknir.