Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 49
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 165
Af hverju vildir þú verða læknir?
Eldri bróðir minn hafði þegar farið í gegnum námið og mér
fannst læknastarfið virka sem spennandi starf. Þar að auki
hefur mannslíkaminn alltaf heillað mig.
Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10?
Það fer eftir dögum og hvar maður er staddur í doktorsnám-
inu. En með góðum stuðningi frá fjölskyldu, vinnustað og
leiðbeinanda er meðalerfiðleikaskalinn um 7. Þetta snýst allt
um góða skipulagningu og tímastjórnun.
Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra?
Að vera heilbrigðisráðherra á Íslandi í núverandi árferði
getur ekki verið auðvelt. En mitt fyrsta verk yrði að styrkja
heilsugæsluna og hjúkrunarheimilin. Kjarnastofnanir sem
stuðla að góðu flæði til og frá sjúkrahúsinu og auðvelda þar
með starfið sem sjúkrahúsið á að sinna. Svo er eitt lykilatriði:
að hlusta á raddir heilbrigðisstarfsmanna sem starfa á gólfinu.
Hvaða bók, þættir, músík, líkamsrækt er best?
Það hafa ekki verið margar lausar stundir í lestur, en síðasta
hljóðbók sem ég hlustaði á var The Art of Sleeping eftir Rob
Hobson. Ef ég hef tíma fyrir sjónvarpsþætti er valið venjulega
matreiðsluþættir eins og Top Chef og Master Chef.
Mér finnst íslensk tónlist alveg frábær og íslenskt tónlistar-
fólk svo einstakt og hæfileikaríkt. Sem dæmi má nefna Árs-
tíðir, Bríeti, Ásgeir Trausta, Ragnheiði Gröndal, og er listinn í
raun endalaus. Ég finn því oft góðan íslenskan spilunarlista á
Spotify og læt í gang.
Mín uppáhalds líkamsrækt er göngutúr. Að fara ein út í
göngutúr með góða tónlist eða hljóðbók í eyrunum hreins-
ar og endurstillir hugann og gefur manni góða hreyfingu í
leiðinni.
Hvað er skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki í vinnunni?
Skemmtilegast og mikilvægast fyrir mig þegar ég er ekki í
vinnunni er að njóta samveru með fjölskyldunni. Við reynum
að nýta okkur yndislegu náttúruna sem við höfum í Bergen og
göngum á fjöllin í kring. En ef það er rigningardagur höfum
við það huggulegt inni og bökum saman og eldum góðan mat.
Doktorsvörn frá Háskóla Íslands:
Bergrós Kristín
Jóhannesdóttir
Hvað segir nýdoktorinn?
Bergrós Kristín Jóhannesdóttir varði doktorsritgerð sína í
læknavísindum við læknadeild Háskóla Íslands 6. janúar 2023.
Ritgerðin ber heitið Alvarlegir æða- og brjóstholsáverkar í norrænu
sjúklingaþýði.
Andmælendur voru Timothy Resch, prófessor og yfirlæknir
við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn, og Fredrik Yannopoulous,
yfirlæknir á Háskólasjúkrahúsinu í Oulu, Finnlandi. Umsjónar-
kennari og leiðbeinandi var Tómas Guðbjartsson prófessor og
auk hans sátu í doktorsnefnd Sigurbergur Kárason prófessor,
Karl Logason lektor og Elsa Björk Valsdóttir lektor.
Úr ágripinu
Ritgerðin byggist á 5 vísindagreinum. Rannsóknirnar sýndu
að alvarlegir æðaáverkar eru sjaldgæf dánarorsök á Íslandi og
í Vestur-Noregi. Áverkarnir hljótast oftast af umferðarslysum,
ólíkt því sem tíðkast í Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem
skot- og hnífaáverkar eru algengari orsök alvarlegra æðaáverka.
Niðurstöðurnar staðfesta einnig háa 30 daga dánartíðni við
áverka á ósæð, sérstaklega þegar þeir verða í dreifbýli. Nýgengi
stunguáverka sem kröfðust innlagnar á Íslandi hélst nokkuð
stöðugt á þeim 16 árum sem rannsökuð voru (2000-2015). Sam-
anborið við hin Norðurlöndin var árangur eftir bráðar brjóst-
holsskurðaðgerðir ágætur hér á landi, jafnvel þó að sjaldan
þurfi að grípa til þeirra.
Doktorinn
Bergrós Kristín er stúdent frá náttúrufræðideild MR og lauk
embættisprófi frá læknadeild HÍ 2011. Hún leggur stund á æða-
skurðlækningar á Haukeland-háskólasjúkrahúsinu í Bergen í
Noregi, þar sem hluti doktorsverkefnisins var unninn.
Bergrós með doktorsritgerðina sína fyrir utan hátíðasal HÍ.
Mynd/Gunnar Sverrisson