Læknablaðið - 01.03.2023, Síða 50
166 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
L I P R I R P E N N A R
Læknabörn
Ragnar Logi Magnason
heimilislæknir og
verðandi öldrunarlæknir
Um daginn rakst ég á grein í jólahefti
BMJ 2020 er fjallaði um arfgengi læknis-
starfsins: Does medicine run in the family -
evidence from three generations of physicians
in Sweden: retrospective observational study.
Greinin vakti forvitni þar sem einmitt
þessi spurning hafði vaknað í kolli mín-
um í læknadeild á tíunda áratug síðustu
aldar en þá tók ég sérlega góðan tíma í
fyrri hálfleik námsins og hafði því 2-3
árganga til hliðsjónar fyrir óformlega
athugun er fékk mig til að áætla að um
fjórðungur nema ætti læknismenntað for-
eldri og teldist því læknabarn.
Grein Svíanna í BMJ tók til um 28.000
lækna sem fæddir voru 1950-1990. Hún
leiddi í ljós að um einn af hverjum 5 yngri
lækna er læknabarn og er það þreföldun á
þremur áratugum. Af sænskum læknum
sem fæddir eru 1960 eru 7% læknabörn en
hjá þeim er fæddir eru 1990 er hlutfallið
20%. Skýringin er ekki augljós en Svíarnir
töldu hluta hennar vera að konur hafa í
auknum mæli lagt fyrir sig lækningar og
fyrirmyndargrundvöllur unga fólksins
því breikkað. Samhliða var gerð sambæri-
leg könnun meðal sænskra lögfræðinga
en þar var hlutfall lögfræðingabarna tals-
vert lægra og hafði haldist óbreytt lengi.
Hvað ætli fái unga fólkið til að feta í
fótspor foreldranna hinn hlykkjótta stíg
sem læknanámið getur verið? Erum við
læknar að dásama starfið heima fyrir eða
ómeðvitað að varpa frá okkur ímynd sem
börnin okkar vilja líkjast? Í fjölmiðlum
berast fréttir af uppgefnu heilbrigðis-
starfsfólki sem er að hugsa sinn gang
hvað varðar starfsvettvang og jafnvel með
starfsgetuna sjálfa á hálum ís.
Ólíklegt er að læknastéttin fái stjörnu í
kladdann fyrir nægan tíma með börnum
sínum sökum langra vinnudaga og
vaktabyrði. Skyldi það vera málið? Sjálfur
er ég stolt hjúkkubarn og mögulega fékk
það mig til að íhuga heilbrigðisgeirann
en nú á ég víkjandi hlut í ungum manni
sem er í fyrri hálfleik læknanámsins.
Ég hvorki hvatti hann né latti, alla vega
ekki meðvitað, en fylltist stolti er hann
fór í gegnum síuna. Um daginn spurði
ungi maðurinn hvenær við feðgarnir
gætum átt von á að vera saman á
vakt. Mér fannst ég heyra í röddinni
eftirvæntingartón. Já, þetta er málið,
hugsaði ég. Þau velja sama starfsvettvang
í von um að innheimta samveruna sem
við skuldum þeim úr æsku. Ég fann fyrir
undarlegri blöndu af stolti og gamalgrónu
samviskubiti. Þessar elskur.
Þetta samviskubitna og sjálfsupphafna
hugarjórtur vék fyrir rökhugsun.
Auðvitað hefur það verið þekkt öldum
saman að elta foreldrana í starfsvali af
skyldurækni og nauðsyn. Nú ræður för
symfónía ólíkra þátta. Samkeppnispróf
laða að keppnisfólk en líklega vegur
þyngst jákvæð ímynd af starfinu,
fræðilegur áhugi, löngunin að hjálpa
náunganum og sú virðing sem lengi
hefur fylgt starfsheitinu þó hafi nú
rýrnað eitthvað. Einnig skiptir miklu
máli að eftir kjarnanámið opnast
heill heimur fjölbreyttra sérgreina og
sjálfsþroskamöguleikarnir eru endalausir.
Hvað er slæmt við það að starfið gangi
í erfðir? Tja, ekki margt sem mér dettur í
hug utan skemmtilegri fjölbreytni mann-
flórunnar en hugsanlega gæti samfélagið
verið að fara á mis við bætta lýðheilsu
sem fylgir því að eiga hinn eina sanna
lækni í fjölskyldunni. Rannsóknir sýna að
fjölskyldur lækna eru við betri heilsu og
lifa lengur. Góðar fréttir fyrir læknabörn
og fjölskyldur þeirra vissulega en sjálf-
sagt væri að deila gleðinni eitthvað.
Lengi hafa fleiri viljað læra læknis-
fræði en komast að í náminu og ræður
þar mestu að kennslusjúkrahúsin geta
bara tekið við takmörkuðum fjölda nema.
Nám í læknaskólum erlendis er þó að
breyta þessu landslagi blessunarlega og
þaðan hafa komið góðir kollegar sem hafa
að auki í pokahorninu þann lífsþroska
sem hlýst af því að flytja milli landa og
kynnast öðru samfélagi. Samkeppnispróf-
in eru kafli út af fyrir sig og henta fólki
misvel. Mörg okkar þekkjum dæmi þess
að vegna prófanna hefur stéttin misst af
frábæru heilsteyptu fólki er hefðu orðið
framúrskarandi læknar.
Læknar og jafnvel læknabörn eldast
og hitta þá ekki ósjaldan fólk sem segir í
spítalasögum sínum frá kynnum sínum
af læknum sem það hélt að væri um ferm-
ingu. Sjálfur fékk maður fyrstu árin sem
fullgildur sérfræðingur í heimilislækn-
ingum spurninguna: „Ertu örugglega
búinn með námið?“ Ég finn að fólk ber
meira traust til manns eftir að Elli kerling
fór að strjúka manni um vanga með byrj-
andi gráma og bandvefshrörnun. Traustið
sem fylgir þeim gráu finnst manni nú
ekki endilega verðskuldað, alla vega ekki
hvað varðar ferskleika í fræðunum. Þegar
ég fer og heilsa upp á medisvínið í bak-
garðinum hefur það sjaldan virst jafnrýrt
og aumingjalegt en það getur þó átt það
til að róta með sínu þjálfaða trýni í jarð-
vegi Gúgglands og grafa upp þokkalega
ætileg hnýði af og til. Á móti kemur að
samskipti og hugmyndasöluhæfileikar
liprast með árunum og vonandi verður
hugsun heildrænni. Maður áttar sig betur
á því hversu mikil hjálp og styrkur felst
í góðu og traustu samstarfsfólki. Enginn
maður er eyland.
Forn-Grikkjum þótti yngri kynslóðin
klárlega síðri en sú eldri. Mín reynsla er
að þessu er öfugt farið með okkar stétt.
Eftir að hafa fengið að kynnast unga
fólkinu er mín upplifun sú að þau séu
heilsteypt fólk með frábæra samskipta-
færni, áhuga, þekkingu, fagmennsku og
vinnusemi. Maður hálfsaknar slugsans í
árganginum til að geta dregið augað föð-
urlega í pung og sagt eitthvað mátulega
gagnrýnandi og uppbyggjandi í senn en
þessi tegund virðist vera í bráðri útrým-
ingarhættu. Það sem meira er um vert: að-
dáunarverð framkoma yngri kolleganna
einkennist af hlýju, virðingu og góðvild
gagnvart skjólstæðingum. Þetta á meira
að segja við um skurðlæknanemana líka,
og lýk ég þar með máli mínu.