Víkurfréttir - 03.07.2024, Page 4
Nýjustu aflögunarmælingarnar
Veðurstofu Íslands, bæði GNSS
og InSAR gervitunglamyndir,
sýna að landrisið undir Svarts-
engi heldur áfram. Hraði land-
risins jókst eftir að gosi lauk og
er nú orðin meiri en það sem
mældist fyrir gosið sem hófst 29.
maí. Hraða aflögunar má túlka
sem að kvikuinnstreymi inn í
kvikuhólfið á fjögurra til fimm
kílómetra dýpi haldi áfram.
„Með þessar forsendur að leiðar-
ljósi má gera ráð fyrir að kerfið
muni haga sér á svipaðan hátt og
áður og að nýtt kvikuinnskot og/
eða eldgos muni eiga sér stað á
ný á Sundhnúkssvæðinu á næstu
vikum,“ segir í tilkynningu frá
Veðurstofu Íslands.
Erfitt er að sjá fyrir með vissu
hvernig ástandið muni þróast.
Gögnum sem safnað verður á
næstu dögum/vikum munu hjálpa
til við að meta stöðuna og hugsan-
lega við að skilja breytingar og
þróun innan kvikukerfisins.
Niðurstöður líkanreikninga gefa
til kynna að miðað við núverandi
innflæði verður kvikuhólfið undir
Svartsengi komið í svipaða stöðu
og fyrir eldgosið 29. maí eftir þrjár
til sex vikur. Frá og með deginum í
dag er því líklegt að kvikuhlaup eða
eldgos fari af stað á næstu vikum
og mánuðum, segir í tilkynningu
frá Veðurstofu Íslands.
Dómsmálaráðherra gaf ríkislögreglustjóra nýlega heimild til að hefja
vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur
til þess að koma í veg fyrir að mikilvægir innviðir og aðrir almanna-
hagsmunir verði fyrir tjóni af völdum náttúruvár sem tengjast eld-
stöðvarkerfum á Reykjanesskaga. Dómsmálaherra hefur nú tekið
alls sex ákvarðanir um að reisa skuli eða styrkja varnargarða á þessu
svæði. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.
Þann 18. júní síðastliðinn braust
hrauntunga yfir varnargarðinn
við Svartsengi. Hraunið hækkaði
jafnt og þétt við varnargarðinn
og áður en gosi lauk var unnið í
kappi við tímann með jarðvegs-
framkvæmdum og hraunkælingu.
Markmiðið með hraunkælingunni
var að hægja á framgangi hrauns
og leitast við að stöðva hrauntauma
í myndun í þeim tilgangi að styðja
við jarðvegsvinnu og verja vinnu-
svæðið. Hraunkælingu hefur nú
verið beitt á fjórum staðsetningum
við varnargarð L1 og við Grinda-
víkurveg.
Að mati almannavarnardeildar
ríkislögreglustjóra hefur mikill
lærdómur verið dreginn af fram-
kvæmd hraunkælingar og er það
metið sem svo að þeim mark-
miðum sem sett voru í upphafi hafi
verið náð. Mikilvægt var að halda
áfram vinnu við að hækka varnar-
garðinn. Fyrri hluta júní lagði
ríkislögreglustjóri til við dóms-
málaráðherra að ráðist yrði sem
fyrst í viðbætur við varnargarðana
í Svartsengi með hækkun varnar-
garðs.
D ó m s m á l a r á ð h e r r a t ó k
ákvörðun að fenginni framan-
greindri tillögu ríkislögreglustjóra.
Aukin afköst voru því við að hækka
garðinn því þessi varnarlína er afar
mikilvæg. Allar innri línur eru
alltaf erfiðari og stutt er í orku-
verið. Staðan var orðin frekar tæp
og unnið var í kapp við tímann.
Áætlaður viðbótarkostnaður er um
250–350 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum frá
embætti ríkislögreglustjóra var
heildarkostnaður framkvæmda
upphaflega metinn á um sex til
sex og hálfan milljarð króna en er
með öllum viðbótum í dag talinn
verða nærri sjö milljarðar króna.
Í þeim kostnaði eru þær hækkanir
og styrkingar sem nefndar hafa
verið, innri garður í námunda við
orkuverið og ýmiss konar aðlögun
vegna vegtenginga og umhverfis-
sjónarmiða við lok framkvæmda.
Nú hafa 900 Grindvíkingar sótt um sölu á
eignum til Fasteignafélagsins Þórkötlu og
gengið hefur verið frá nærri 740 þinglýstum
kaupsamningum eða um 82% þeirra sem
sótt hafa um. Fjárfesting félagsins í þessum
eignum er um 57 milljarðar króna, en þar af
eru yfirteknar skuldir um 18 milljarðar og
kaupsamningsgreiðslur um 36,3 milljarðar
króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Þórkötlu 28. júní.
Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að
heildarfjöldi umsækjenda verði allt að 950
og að heildarfjárfesting félagsins verði allt
að 75 milljarðar króna. Félagið hóf fyrir
nokkru að taka við eignum frá seljendum og
hefur félagið tekið á móti nærri 400 eignum
í Grindavík. Tekið verður á móti nærri 300
eignum í júlí og ágúst.
Kaflaskil urðu í verkefninu í síðustu viku
þegar félagið hóf ferlið við endanlegan frá-
gang kaupa við fyrstu seljendurna með
lögskilauppgjöri, afsali og afsalsgreiðslum.
Eins og við aðra framkvæmd þessara kaupa
er frágangur lögskilauppgjörs og afsals með
rafrænum hætti, þ.e. rafrænum undir-
skriftum og rafrænni þinglýsingu. Mark-
visst er nú unnið í þeim umsóknum þar sem
ýmsar hindranir og frávik hafa komið upp.
Þetta eru oft nokkuð flókin mál sem
krefjast ítarlegri skoðunar, svo sem vegna
undanþágu um lögheimili, dánarbúa, vanda
við afléttingu veða eða skilgreinds bygg-
ingarstigs. Verið er að leita lausna fyrir bú-
seturéttarhafa en útfærsla þeirra mála hefur
reynst flókin. Áfram verður unnið að því að
finna farsæla lausn.
„Heilt yfir gengur þetta vel hjá okkur.
Fyrirkomulag skilafunda með eigendum
hefur komið vel út og frágangur þeirra
á eignunum hefur yfirleitt verið til fyrir-
myndar. Nú er komin af stað vinna við lög-
skilauppgjör og afsöl og hún fer vel af stað,”
segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmda-
stjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu í til-
kynningunni. „Stóra verkefnið framundan
er svo utanumhald og rekstur eignanna í
Grindavík og við erum að skoða hvernig
best sé að standa að því.“
Þórkatla hefur tekið á móti nærri 400 eignum í Grindavík
Varnargarðar
kosta um sjö
milljarða króna
Búast við kvikuhlaupi og/eða
eldgosi á Sundhnúkasvæðinu
n Land rís með auknum hraða í Svartsengi en erfitt að sjá hvernig ástandið þróast
Hraun rennur að varnargörðunum í eldgosinu þann 29. maí síðastliðinn. Nú er verið að hækka þessa garða. VF/Ísak Finnbogason
Vinna í gangi við varnargarða í Svartsengi. VF/Hilmar Bragi
4 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM